Fréttablaðið - 11.07.2020, Side 60
ÉG VIL EKKI SKEMMA
BARNSLEGA ÓTTANN
INNI Í ÁHORFENDUM, ÞEIR
VERÐA AÐ UPPLIFA VERKIN Á
SINN HÁTT OG SKRIFA SÍNA
SÖGU.Dauðar myndir er yfir-skrift sýningar Þór-arins Inga Jónssonar í Gallery Port. Verk-in eru akrýlmyndir á striga og í þeim er
að finna ýmislegt ógnvekjandi og
þar er manneskjan víðs fjarri.
„Mannleysið í verkunum opin-
berar skort á lífi. Margt í myndun-
um eru áhrif frá hryllingsmyndum.
Það er eins og litið sé handan við
hornið í hryllingsmynd, augna-
blikið er fryst og áhorfandinn upp-
lifir það í málverkunum,“ segir
Þórarinn.
Morðóð brúða
Hann segist strax á barnsaldri hafa
fengið áhuga á hryllingsmyndum.
„Óhugnanleiki hefur alltaf verið í
málverkum mínum. Ein af fyrstu
minningum mínum er að horfa
á Child‘s Play 1 og geta ekki sofið
alla nóttina, vegna þess að það var
morðóð brúða undir rúminu mínu.
Það er hinn barnslegi ótti við það
óþekkta sem er kominn upp á vegg
hérna í Gallery Porti.“
Hann segir frásögn vera í hverju
verki en harðneitar að lýsa því
nánar. „Áhorfandinn á að skapa
sína eigin sögu. Í f lestum verkunum
geta þeir lesið það sem ég var að
hugsa, en ég vil ekki skemma barns-
lega óttann inni í áhorfendum, þeir
verða að upplifa verkin á sinn hátt
og skrifa sína sögu.“
Verk sem breytti lífinu
Fyrir tíu árum komst Þórarinn í
heimsfréttirnar vegna verks sem
hann gerði þegar hann var í námi
í Ontario College of Art & Design
í Toronto. Í verkinu var skúlptúr
úr tré sem leit út eins og sprengja,
sem hann skildi eftir á listasafni
með miða sem á stóð: Þetta er ekki
sprengja. Mikið uppnám varð vegna
þessa. Þórarinn er spurður hvernig
hann líti á það mál, nú áratug síðar.
„Þetta var konseptverk sem gjör-
breytti lífi mínu. Ég var settur í
fangelsi í tvo daga, var sleppt með
mjög ströngum skilyrðum, rekinn
úr skóla og missti atvinnuleyfið.
Þrátt fyrir allt er þetta skemmti-
legur tími í minningunni.“
Gunguháttur listaheimsins
Spurður hvort það sé ekki for-
kastanlegt að listamaður sé hand-
tekinn og rekinn úr skóla vegna
listsköpunar sinnar, segir hann:
„Ég veit ekki hvort það er eðlilegt
eða óeðlilegt. Ég get ekki svarað því
hvort kerfið eigi að vera svona. Ég
var að vinna mína vinnu og kerfið
vann sína.
Ég var í námi og á hverjum ein-
asta degi sögðu prófessorarnir:
Vertu hugrakkur, ekki hlusta á
neinn, brjóttu reglur. Um leið og
ég var handtekinn svöruðu kennar-
arnir, fyrir utan tvo, hvorki sím-
tölum né tölvupósti. Ég hitti einn
þeirra á gangi og kallaði til hans
en hann horfði í hina áttina og
gekk framhjá mér. Þannig að það
er hræsnin og gunguháttur lista-
heimsins sem ég myndi fordæma,
frekar en lögregluna og almenning
í Kanada.
Eftir að mér var sleppt úr fangelsi
gerði stærsta dagblaðið í Kanada
skoðanakönnum þar sem spurt
var: Er Þórarinn Ingi Jónsson mynd-
listarmaður? 75 prósent svarenda
sögðu nei.“
Eftir hina sögulegu dvöl í Toronto
tók Þórarinn BA-próf frá Listahá-
skóla Íslands og síðan masters-próf
í Prag. Síðan hefur hann starfað sem
myndlistarmaður.
Sýning hans stendur til 16. júlí.
Hinn barnslegi ótti við það
óþekkta mætir áhorfendum
Þórarinn Ingi Jónsson sýnir myndir í Gallery Port. Sterk áhrif
frá hryllingsmyndum og morðóðri brúðu sem rændi hann
svefni. Konseptverk fyrir 10 árum gjörbreytti lífi hans.
Óhugnanleiki hefur alltaf verið í málverkum mínum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Alþjóðlega myndlistarsýningin Rúllandi snjóbolti/13, verður opnuð í dag, laugardaginn
11. júlí, kl. 15.00, í Bræðslunni á
Djúpavogi, sem breytt hefur verið í
sýningarsal. Alls taka 33 listamenn
frá Íslandi, Holl andi og Kína þátt í
sýningunni,sem er skipulögð af Chi-
nese European Art Center (CEAC).
Sýningin, sem er ein stærsta sam-
tímalistasýning á Íslandi, er sam-
vinnuverkefni Djúpavogshrepps
og CEAC. Þessi kínversk-evrópska
menningarmiðstöð er löngu orðin
þekkt í kínverska og evrópska lista-
heiminum og hefur staðið fyrir
mörgum, stórum sýningum í Kína
og á Íslandi. Sýningin Rúllandi snjó-
bolti hlaut Menningarverðlaun SSA
árið 2015 og tilnefningu til Eyrar-
rósarinnar árin 2016, 2017 og 2018.
CEAC er sjálfseignarstofnun og
var stofnuð árið 1999 af Ineke Guð-
mundsson með f járhagslegum
stuðningi eiginmanns hennar, Sig-
urðar Guðmundssonar. Eitt af mark-
miðum CEAC er að stuðla að menn-
ingarlegum samskiptum milli Kína
og Vesturlanda.
Listamenn sem taka þátt í ár eru:
Alexander Hugo Gunnarsson
Andri Þór Arason
Anika L. Baldursdóttir
Atli Pálsson
Auðunn Kvaran
Birkir Mar Hjaltested
Bjargey Ólafsdóttir
Clare Aimée Gossen
Daníel Ágúst Ágústsson
Einar Lúðvík Ólafsson
Hrafnkell Sigurðsson
Huang Shizun
Jóhanna Margrétardóttir
Kjáni Thorlacius
Lin Jing
Liu Yuanyuan
Lova Y & Tycho Hupperets
Margrét Dúadóttir Landmark
María Lind Baldursdóttir
Marike Schuurman
Rakel Andrésdóttir
Renate Feizaka
Sigurður Guðmundsson
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Sölvi Steinn Þórhallsson
Tara & Silla
Wei Na
Yang Zhiqian
Ye Qianfu
Þór Vigfússon
Rúllandi snjóbolti
Alls taka 33 listamenn þátt í
sýningunni á Djúpavogi.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
SANDBLÁSTUR
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Ráðgjöf
Tilboð
Hönnun
Uppsetning
Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni
sýningarverkefna allt að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningarverkefna,
útgáfu-/rannsóknarstyrkir allt að
2.000.000 kr.
Aðrir styrkir allt að 1.000.000 kr.
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða
Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. ágúst 2020
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunar
reglur og leiðbeiningar má
finna á vefsíðu myndlistarsjóðs,
myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í september
mánuði. Um er að ræða síðari
úthlutun úr sjóðnum árið 2020.
Opið er fyrir
umsóknir í
myndlistarsjóð
1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING