Fréttablaðið - 11.07.2020, Page 72
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Margrétar
Kristmannsdóttur
BAKÞANKAR
Laugarásvegur 1
Pantaðu á skubb.is
OG FÁÐU HEIMSENT
Fyrir svanga
ferðalanga
Það skal viðurkennast að ég fékk smá kvíðahnút þegar átakinu „ferðumst
innanlands“ var hleypt af stokk-
unum, enda vildi ég leggja mitt af
mörkum til að koma hagkerfinu
upp úr þeim djúpa dal sem veiran
hefur komið okkur í.
Nú er ekki svo að við hjón
höfum ekki ferðast innanlands –
því fer fjarri. Hér áður fyrr var iðu-
lega tjaldað í grænni lautu – lítið
kúlutjald og þunnar tjalddýnur
voru engin fyrirstaða og fáir höfðu
roð við okkur þegar útilegulögin
voru kyrjuð. Seinna meir tók
tjaldvagninn við – þá fellihýsið
og að lokum húsbíll, en það var
einmitt þá sem frúin áttaði sig á að
eitthvað var ekki eins og það átti
að vera. Ferðalagið var ekki fyrr
hafið en hjónin voru farin að sjá
heita pottinn á pallinum og eigið
rúm í hillingum. Ljóst var að með
hækkandi aldri hafði frúin breyst í
heimakæra blúndu.
Og þá tók samviskubitið við!
Það voru greinilega allir að leggjast
á eitt – fara hringinn eða leggja upp
í margra daga óvissuferð með ekk-
ert nema áttavita og bakpoka að
vopni. Samfélagsmiðlar fylltust af
vinum á öllum helstu ferðaperlum
landsins – þar ríkti hamingjan
ein og sólin virtist skína hvern
dag. En heima sat ég á pallinum
eftir 9 holur í golfi eða göngu með
hundana og beið þess að „happy
hour“ og grilltími rynni upp.
Við hjón erum hins vegar stað-
ráðin í að leggja okkar af mörkum.
Hótel og gistiheimili um allt land
lokka með frábærum tilboðum
og höfuðborgin fær sitt, enda
ekki amalegt að ferðast milli
veitingastaða, safna og verslana á
rafmagnsknúnum reiðhjólum frá
Ikea. Enda hvaða endemis rugl er
það að hafa samviskubit yfir að
líða hvergi betur en heima hjá sér?
Heimakær
blúnda
ÚTSALAN
er í fullum gangi
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
02
0
Verslun opin 11-20 alla daga - Veitingasvið opið 11:00-19:30 - IKEA.is