Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Side 32
H jónin John og Tanya Skelton bjuggu í smá-bænum Morenci í
Michigan og þau eignuðust
þessa drengi upp úr alda-
mótum. Sambúð hjónanna var
ekki stormasöm á yfirborð-
inu, en erfiður ágreiningur
um lykilatriði var hjónunum
þó fjötur um fót: John vildi
flytja með fjölskylduna til
Flórída. Það vildi Tanya ekki
heyra minnst á.
John gerði sér hins vegar
lítið fyrir, skráði drengina úr
skólanum í Morenci, og hélt
með þá til Flórída án þess
að segja Tönju frá því. Hún
hafði samband við lögreglu er
hún komst að því hvað hafði
gerst, alríkislögreglan gekk
í málið og drengirnir voru
endurheimtir af föðurnum.
Í kjölfarið sótti Tanya um
skilnað og var veittur skiln-
aður að borði og sæng. Hún
fékk jafnframt fullt forræði
yfir sonunum, en John fékk
takmarkaðan umgengnisrétt.
Hjónin bjuggu áfram í smá-
bænum Morenci, en hvort
í sínu lagi, eins og liggur í
augum uppi.
Örlagarík helgi
Helgina í kringum þakkar-
gjörðarhátíðina árið 2010
voru strákarnir hjá John, sem
bjó nokkrum götum frá barns-
móður sinni Tönju. Á mánu-
deginum mættu drengirnir
hins vegar ekki í skólann og
Tönju var gert viðvart.
Er hún náði símasambandi
við John hafði hann ótrúlegar
fréttir að færa. Hann sagðist
hafa komið drengjunum í
fóstur hjá fólki sem ræki
leyniathvarf (e. underground
sanctuary) fyrir börn. Þegar
Tanya krafðist þess að hann
næði í börnin, sagðist hann
ekki geta gert neitt í málinu
í bili þar sem hann lægi á
spítala, veikur eftir sjálfs-
vígstilraun!
Sem vænta má varð Tanya
viti sínu fjær af skelfingu
og hafði samband við lög-
reglu. Í lögregluyfirheyrslum
skömmu síðar sagði John að
fólkið sem hann hefði komið
drengjunum fyrir hjá tengd-
ist Amish-söfnuði. Hann
sagðist hafa tekið þessa ör-
væntingarfullu ákvörðun
vegna þess að hann vildi
bjarga drengjunum undan
ofbeldi móður þeirra.
John hafði áður sakað Tönju
um – og ítrekaði nú þær ásak-
anir – að hún beitti drengina
andlegu, líkamlegu og kyn-
ferðislegu ofbeldi. Vísaði hann
jafnframt til þess að hún væri
dæmdur kynferðisbrotamað-
ur. Það var raunar rétt. Árið
1998 var Tanya sakfelld fyrir
samræði við 14 ára dreng, en
á þeim tíma var hún sjálf ná-
lægt þrítugu. Fékk hún fang-
elsisdóm og lenti á lista yfir
kynferðisbrotamenn.
Hins vegar leiddu rann-
sóknir barnaverndaryfir-
valda ekki í ljós neitt sem
benti til þess að Tanya hefði
nokkurn tíma beitt syni sína
ofbeldi. Raunar voru niður-
stöðurnar þær að hún væri
frábær móðir.
Hvað gerði hann
við drengina?
„Hvað gerðirðu við syni
mína?“ hrópaði Tanya á
barnsföður sinn. Við þeirri
spurningu hafa aldrei feng-
ist svör. Um fimm hundruð
manna leitarlið fínkembdi
svæðið í kringum Morenci
og meðal annars fór fram
víðtæk leit í skóglendi. En án
árangurs.
Húsleit var gerð heima hjá
John. Tölva hans var gerð
upptæk og kom í ljós að hann
hafði skömmu fyrir hvarf
drengjanna aflað sér upp-
lýsinga um eiturbyrlun. Enn
fremur hafði hann skrifað:
„Guð og Tanya fyrirgefi
mér!“
Upplýsingarnar sem John
gaf um fólkið sem hann
sagðist hafa sett drengina í
umsjá hjá, reyndust gagns-
lausar. Ekki tókst að hafa
uppi á neinum sem passaði
við lýsingar hans. Rannsókn
lögreglu breyttist brátt úr
rannsókn á mannshvörfum
í morðrannsókn. Ekki tókst
þó að afla nægilegra gagna
til að ákæra John fyrir morð.
Hann var ákærður og fund-
inn sekur um mannrán og
ólöglega frelsissviptingu og
dómurinn var 10 til 15 ár.
Tanya, sem nú ber eftir-
nafnið Zuvers, viðurkennir að
John hafi verið góður faðir.
Hún telur hins vegar að hann
hafi verið skelfingu lostinn og
gert eitthvað hræðilegt. Hún
hefur reynt að halda athygli
almennings á málinu með
viðtölum við fjölmiðla, auk
þess sem hún hefur skrifað
mikið um syni sína og hvarf
þeirra á Facebook-síðu sína.
Í viðtölum við fjölmiðla
hefur John sagt að hann geti
ekki fundið drengina, vegna
þess að hann sé fastur í fang-
elsi. Hann hefur haldið fast
við sögu sína um að hann hafi
komið drengjunum í hendur á
leynilegum samtökum til að
vernda þá fyrir móðurinni.
Mögulegt er að John losni
úr fangelsi fyrir lok þessa
árs, en sem fyrr segir verður
umsókn hans um reynslu-
lausn tekin fyrir hjá fang-
elsismálanefnd síðar í sumar.
Jafnt rannsóknarblaða-
menn sem rannsóknarlög-
reglumenn í Michigan hafa
enn mikinn áhuga á hvarfi
drengjanna og freista þess
að ráða gátuna. Íbúar í smá-
bænum Morenci hafa ekki
gleymt bræðrunum þremur
og þrá að málið upplýsist. n
SAKAMÁL
Ágúst Borgþór
Sverrisson
agustb@dv.is Hvað gerðirðu
við syni mína?
Þann 27. júlí næstkomandi
kemur maður að nafni
John Skelton fyrir nefnd
vegna beiðni um reynslu-
lausn. Árið 2011 var hann
dæmdur í 10 til 15 ára
fangelsi fyrir mannrán og
ólöglega frelsissviptingu.
Þolendur þess glæps voru
synir hans þrír, Andrew 9
ára, Alexander 7 ára og
Tanner 5 ára. Mál þetta er
allt hið undarlegasta en
ekki hefur sést til drengj-
anna síðan 26. nóvember
árið 2010.
Dularfullt hvarf þriggja bræðra
Síðast sást til bræðranna þriggja er þeir voru að leik í bakgarði við heimili föður
síns árið 2010. Móðir þeirra hefur ekki gefið upp von um að málið verði upplýst.
Frá vinstri: Tanner, Alexander og Andrew. MYND/NATIONAL CENTER FOR MISSING & EXPLOITED CHILDREN
Tanya Zuvers
vill svör frá
John.
MYND/
YOUTUBE
SKJÁSKOT
John Skelton árið 2015. MYND/ DEPARTMENT OF CORRECTION, IONIA
32 FÓKUS 10. JÚLÍ 2020 DV