Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 1
Heima er best Messu streymtbeint Um tíu þúsund Íslendingar eru nú í sóttkví og yfir 800 í einangrun.Aðrir hafa ákveðið að halda sig heima aðmestu. Morgunblaðið tók púlsinn hjá sex manns sem dvelja nú heima og láta tímann líða. Í blaði dagsins er einnig rætt við þrjá íslenska lækna sem starfa nú erlendis mitt í kórónufárinu. 4-17 29. MARS 2020SUNNUDAGUR Allir þurfa að borða Prestar í Linda-kirkju notfærasér tölvu-tæknina ogsenda hug-vekjur ogmessur út ánetinu. 2 Frá einum stíltil annars Lovísa Tómas-dóttir elskarað hoppamilli stílaog fékkást á bleiku tveggjaára gömul. 18 Nýlega opnaði20&SJÖMathúsog bar í Kópa-vogi. Þar má fásér svínarif semreykt eru í ofnisem kom allaleið fráTenn- essee. 22 L A U G A R D A G U R 2 8. M A R S 2 0 2 0 Stofnað 1913  75. tölublað  108. árgangur  FÖÐURLAUSIR EN SÍVINSÆLIR FÉLAGAR KATRÍN UM VIÐBRÖGÐ VIÐ VEIRU ÓSKÖDDUÐ 23ARFLEIFÐ UDERZOS 44 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þrír fulltrúar í framkvæmdastjórn SÁÁ hafa sagt sig frá störfum fyrir samtökin í kjölfar deilna sem leiddu til þess að Valgerður Á. Rúnars- dóttir, yfirlæknir á Vogi og forstjóri sjúkrahússins, sagði upp störfum fyrr í vikunni. Þá hafa sálfræðingar og lýðheilsufræðingur sem sagt var upp störfum í niðurskurðarað- gerðum hjá stofnuninni lýst yfir van- trausti á vinnubrögð framkvæmda- stjórnarinnar. Stjórnarmenn í samtökunum lýsa framkomu formanns Samtakanna gagnvart yfirlækninum sem ólíð- andi. Á stjórnarfundi lagði læknirinn fram formlega kvörtun vegna sam- skiptanna sem hún kallaði „óboðlega samskiptahætti“. Arnþór Jónsson formaður segir engan ágreining hafa verið uppi milli sín og læknisins og að slíkar ávirðingar séu aðeins „kjaftasögur“. Heimildir Morgun- blaðsins herma að fleiri stjórnar- menn íhugi nú stöðu sína vegna þeirrar upplausnar sem skapast hef- ur á vettvangi samtakanna og leggst ofan á aðsteðjandi rekstrarvanda þeirra. Þá mun mikið kurr vera með- al starfsmanna vegna uppsagnar yfirlæknisins. Heimildarmenn Morgunblaðsins herma að ágreiningurinn tengist meðal annars kröfum fyrrverandi formanns SÁÁ og yfirlæknis á Vogi, Þórarins Tyrfingssonar, um starfs- aðstöðu á sjúkrahúsinu. Mun yfir- læknirinn hafa lagst eindregið gegn þeim óskum í ljósi þess hve þröngt er um starfsemina. Þórarinn hefur á síðustu árum sinnt afmörkuðum verkefnum fyrir starfsemina sem ekki krefjast viðveru á sjúkrahúsinu. Þrjú hætta í stjórn SÁÁ  Alvarlegur og langvarandi samskiptavandi formanns samtakanna og yfirlæknis MUpplausnarástand á … »10-11 Við heilsugæslustöðina í Árbæ í Reykjavík voru í gær tekin sýni úr alls 30 manns vegna gruns um að viðkomandi væru með kórónuveiruna. Fólk er tekið í prufur tvisvar á dag, fyrst um miðjan morgun og svo strax eftir hádegi, og kemur heil- brigðisstarfsfólk í hlífðargöllum úr húsi og tekur sýni úr fólki sem situr í bílum sínum. Að sögn Helgu Sævarsdóttur, fag- stjóra hjúkrunar, nýtur fólk sem hefur þegar sýnt einkenni um smit forgangs í prufur og svo þau sem eru í framlínu, heil- brigðisstarfsfólk, lögregluþjónar o.fl. Niðurstöður úr sýna- tökum gærdagsins liggja fyrir í dag, en útkoman úr því 31 sýni sem var tekið á fimmtudag er sú að 5 manns voru með smit en 26 ekki. »4,6, 10, 19-22 Morgunblaðið/Eggert Kórónuveirufaraldurinn enn í vexti  Vilhjálmur Arason læknir, sem situr í sóttvarnaráði, vill að það komi saman til fundar. Þar ætti m.a. að ræða sé hvort rétt sé að halda skólum og leikskólum opnum í kórónuveirufaraldrinum. „Það eru ný vísindi fyrir mér ef faraldur eins og þessi dreifist ekki mest meðal barna,“ segir hann. Þá vill hann ræða hugmyndir tveggja lækna sem vilja loka norðaustur- horni landsins fyrir umferð til að hefta að veiran berist þangað. „Ég sem heimilislæknir er hugsi um stöðuna víða úti á landi þar sem innviðir eru ekki eins traustir.“ » 4 Vill kalla sóttvarna- ráð saman til fundar Njóttu hækkandi sólar á rúntinum. Uppáhaldsbíllinn þinn bíður! HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.