Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Vetrarsól er umboðsaðili
40 ár
á Íslandi
Sláttuvélar
Snjóblásarar
Sláttutraktorar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vaxtalækkanir Seðlabankans hafa
aukið eftirspurn eftir endurfjármögn-
un íbúðalána. Þá er óskað eftir
greiðslufresti vegna faraldurs
kórónuveiru að undanförnu.
Kveðið var á um vaxtalækkanir í
lífskjarasamningunum í byrjun apríl í
fyrra en meginvextir SÍ hafa síðan
lækkað úr 4,5% í 1,75%.
Birta lífeyrissjóður býður nú
lægstu breytilegu vextina, eða 1,69%
af verðtryggðum lánum og 3,85% af
óverðtryggðum lánum.
Meðal bankanna býður Lands-
bankinn lægstu vextina í breytilegum
vöxtum. Þeir eru 4,1% af óverð-
tryggðum lánum og 2,4% af verð-
tryggðum lánum, samkvæmt upplýs-
ingavefnum aurbjörg.is.
Hjá Landsbankanum fengust þær
upplýsingar að eftirspurn eftir íbúða-
lánum hefði aukist nokkuð stöðugt
undanfarin ár. „Í þeim aðstæðum sem
við stöndum frammi fyrir í dag þá
sjáum við að hægt hefur á umsóknum
um ný íbúðalán, sér í lagi vegna fast-
eignakaupa.
Töluverður vöxtur er í beiðnum um
endurfjármögnun íbúðalána, ekki að-
eins frá okkar viðskiptavinum, heldur
einnig þeim sem eru með íbúðalán hjá
öðrum lánveitendum. Síðustu mánuði
hafa vextir farið lækkandi og það er
greinilegt að fleiri eru að færa lánin
úr föstum vöxtum í breytilega vexti,“
sagði í svari Landsbankans.
Tugprósenta vöxtur
Eftirspurnin hefði aukist mikið.
„Eftirspurnin eftir endurfjármögn-
un íbúðalána er nú mjög mikil og í
mars hefur vöxturinn skipt tugum
prósenta. Um leið erum við að af-
greiða allmargar beiðnir um fryst-
ingu á greiðslum íbúðalána. Vegna
Covid-19 hefur bankinn auk þess
gripið til ýmissa varúðarráðstafana
sem tímabundið verða til þess að úr-
vinnsla gengur hægar fyrir sig. Af-
greiðsla á nýjum lánum, á endurfjár-
mögnun og óskum um greiðslufrest
getur því tekið lengri tíma en áður og
við biðjum viðskiptavini vinsamlegast
um að sýna biðlund.“
Fá lánaskjöl send í pósti
Jafnframt var spurt hvernig nýir
lánasamningar væru afgreiddir við
þessar aðstæður hjá bankanum.
Vegna takmarkana á heimsóknum
viðskiptavina í útibú hefur bankinn
boðið viðskiptavinum að fá lánaskjöl
send heim með pósti eða sækja lána-
skjöl í útibúin, sem eru þá tilbúin í
umslögum. „Við þessar aðstæður fara
samskipti við þessa viðskiptavini
meira og minna fram í gegnum síma
og tölvupóst. Við leitumst eftir því að
finna lausnir og eins öruggar leiðir og
hægt er hverju sinni fyrir viðskipta-
vini og okkar starfsfólk,“ sagði í svari
bankans um þetta atriði.
Metár í íbúðalánum
Hjá Íslandsbanka fengust þau svör
að árið í fyrra hefði verið metár í hús-
næðislánum er þau jukust um 11%.
Eftirspurn eftir endurfjármögnun
lána hefði verið heilmikil á núverandi
vaxtalækkunarskeiði. „Hvað varðar
íbúðalán einstaklinga er um þriðjung-
ur allra lánveitinga vegna endurfjár-
mögnunar. Vegna vaxtalækkana
undanfarnar vikur og mánuði eru því
oft og tíðum kjöraðstæður hjá fólki að
endurfjármagna lánin sín, sem hætt
er við að séu á lakari kjörum en hægt
er að nálgast í dag,“ sagði í svarinu.
Jafnframt var spurt um hlut endur-
fjármögnunar í lánasamningum í jan-
úar, febrúar og mars. Svar Íslands-
banka var að þær upplýsingar yrðu
því miður ekki gefnar upp fyrr en við
árshlutauppgjör.
Bjóða rafrænar lausnir
Loks var spurt hvernig nýir lána-
samningar væru afgreiddir við þessar
aðstæður hjá bankanum.
Sagði í svari bankans að hann reyni
eftir bestu getu að aðstoða viðskipta-
vini í gegnum rafrænar lausnir.
„Nú geta viðskiptavinir undirritað
öll fylgiskjöl vegna húsnæðislána með
rafrænum hætti en enn þarf þó að
undirrita skuldabréf á pappírsformi
vegna þinglýsingar hjá sýslumanni. Í
ljósi aðstæðna geta viðskiptavinir
okkar einnig sótt um greiðslufrest á
lánum á vef bankans, vegna CO-
VID-19-faraldursins og er slíkt af-
greitt með rafrænum hætti.“
Vaxtalækkanir hafa áhrif
Hjá Arion banka fengust þær upp-
lýsingar að mikil eftirspurn hefði
verið eftir íbúðalánum, bæði vegna
endurfjármögnunar og nýrra lána.
„Íbúðalán með breytilegum óverð-
tryggðum vöxtum hafa verið mjög
vinsæl og síðustu lækkanir stýrivaxta
hafa ýtt undir áhuga lántaka á þeirri
gerð lána. Starfsfólk bankans vinnur
nú alla daga vikunnar að því að útbúa
lánaskjöl vegna nýrra íbúðalána,
endurfjármögnunar og greiðsluhlés
íbúðalána fyrir þá sem hafa óskað
eftir því,“ sagði í svari Arion banka.
Bjóða símafund með ráðgjafa
Hvað snertir skiptingu milli endur-
fjármögnunar nýrra og eldri lána
hefði bankinn ekki veitt slíkar upplýs-
ingar í gegnum tíðina.
„Til að ganga frá lánasamningum
þessa dagana bjóðum við upp á síma-
fund með ráðgjafa. Í framhaldi fá við-
skiptavinir gögnin send heim til sín í
pósti sem þeir þurfa síðan að senda til
baka til bankans, undirrituð og vott-
uð. Þetta á við um öll íbúðalán. Það er
einungis þegar viðskiptavinir hafa
óskað eftir greiðsluhléi sem bankinn
samþykkir rafræna undirritun. Í
þeim tilfellum þarf þó lántaki síðar
meir að koma í útibú til að skrifa
undir skilmálabreytinguna. Þegar við
erum að leysa úr flóknari vanda-
málum með viðskiptavinum okkar þá
þarf að fá tíma í útibúi til að skrifa
undir skjölin,“ sagði í svari Arion
banka um afgreiðslumátann.
Skapar tekjur fyrir bankana
Við endurfjármögnun lána greiða
lántakar lántökugjald, ásamt því sem
kveðið er á um uppgreiðslugjald í
mörgum lánasamningum.
Fyrir vikið getur endurfjármögnun
lána skapað tímabundnar tekjur fyrir
bankana en jafnframt þarf að greiða
fyrir þinglýsingu lána.
Með þessari þróun hefur vaxta-
munur milli Íslands og annarra landa
á Norðurlöndum minnkað undan-
farið.
Morgunblaðið/Samsett mynd
Á niðurleið Vextir íbúðalána hjá bönkunum hafa farið lækkandi.
Margir endurfjár-
magna íbúðalánin
Margar umsóknir til Landsbankans um frystingu lána
Aukin ásókn í endurfjármögnun hjá stóru bönkunum
Skipting nýrra íbúðalána hjá Landsbankanum
Janúar til mars 2020
Fasteignaviðskipti
Endurfjármögnun
Heimild:
Landsbankinn
Janúar 2020 Febrúar 2020 Mars 2020
28%
72%
31%
69%
46%
54%
Vextir Seðlabankans
Frá ársbyrjun 2016
6%
5%
4%
3%
2%
1%
'16 '17 '18 '19 '20
5,75%
1,75%Heimild: Seðlabanki Íslands
Þórunn Reynisdóttir, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals Út-
sýnar, segir í samtali við Morgunblað-
ið að það standi ekki á fyrirtækinu að
endurgreiða öldruðum hjónum pakka-
ferð, sem sagt var
frá í Morgun-
blaðinu í gær.
Hendur skrifstof-
unnar séu hins
vegar bundnar
vegna þess að enn
eigi eftir að koma
upplýsingar frá
tryggingafélagi
fólksins, VÍS, um
hve stóran hlut
VÍS muni endur-
greiða af ferðinni, sem kostaði tæpar
750 þúsund krónur.
Frá VÍS heyrist sama sagan. Hildur
Sif Haraldsdóttir, forstöðumaður lög-
fræði og persónutjóna hjá VÍS, segir í
samtali við Morgunblaðið, og vísar í
nýleg lög um pakkaferðir, að fyrst
þurfi ferðaskrifstofan að greiða sinn
hluta endurgreiðslunnar, til að trygg-
ingafélagið geti greitt það sem upp á
vantar. Lögin séu skýr hvað það varði.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
þurftu hjónin að afpanta pakkaferð í
byrjun mánaðarins með skömmum
fyrirvara, og höfðu keypt sér forfalla-
tryggingu hjá Úrvali Útsýn. Þau voru
jafnframt tryggð í gegnum platinum
VISA kort hjá Íslandsbanka sem
tryggð eru hjá VÍS.
Eins og Þórunn útskýrir er forfalla-
trygging þeim kostum gædd að hún á
að tryggja endurgreiðslu á þeim hluta
fargjalds og gistikostnaðar sem þegar
er greiddur og ekki fæst endurgreidd-
ur frá tryggingafélagi. Það sé sú
trygging sem hjónin keyptu. „Hefðin
er sú að viðkomandi hafi samband við
tryggingafélag sitt og fái staðfestingu
á hve mikið fæst greitt þar út, og komi
svo til okkar og við greiðum það sem
upp á vantar.“
Þórunn segir að í þessu máli vanti
upp á að barnabarn hjónanna, sem er
þeim til aðstoðar í málinu, skili inn um-
boði, bæði til þeirra og VÍS. „Það er
nauðsynlegt út frá persónuverndar-
lögum, til að hægt sé að nálgast upp-
lýsingar um málið.
Hildur Sif segir að það sé alveg
skýrt að í pakkaferðum eigi viðskipta-
vinir alltaf rétt á endurgreiðslu frá
ferðaskrifstofu. Það sé skýlaus réttur
neytandans, óháð ástæðu fyrir því af
hverju afbókun er gerð. Viðskipta-
vinurinn leiti því fyrst til ferðaskrif-
stofunnar og fái hluta eða alla upp-
hæðina þar endurgreidda. Ef hann fái
ekki alla ferðina endurgreidda þar
geti hann snúið sér til trygginga-
félagsins.
Allt áfram í hnút
í máli eldri hjóna
Fyrirtækin benda enn hvort á annað
Ferðir Frá Tosk-
ana á Ítalíu.