Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 12
Krútt Mosi og Burkni eru þriggja mánaða. Kálfarnir og hálfbræðurnir Mosi og Burkni dafna vel í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík og nú geta landsmenn fylgst með þeim í beinni útsendingu úr vefmynda- vél, því Hægvarp Advania sýnir nú beint frá fjósinu. Vegna Covid-19 hefur garðinum verið lokað eftir tilskipun frá sóttvarnalækni og ætti hægvarpið því að vera kærkomið fyrir þá sem langar að fylgjast með lífinu þar, en von er á fjölgun hjá flestum húsdýranna. „Náttúran hefur sinn vana gang þó gestum sé ekki heimilt að heim- sækja garðinn. Mosi og Burkni komu í heiminn á bænum Bakka á Kjalarnesi í byrjun febrúar og er Mosi með svartar granir en Burkni með rauðar. Bræðurnir njóta úti- veru á hverjum morgni á meðan fjósið er þrifið. Dýrahirðar sjá um mjólkurgjafir á daginn en nætur- vörður gefur þeim á nóttunni,“ segir í tilkynningu. Á þessari slóð má sjá útsend- inguna: advania.is/haegvarp Hægvarp úr Húsdýragarðinum 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Eftir að hafa þjónað þjóðminni í þrjátíu ár var mérhent eins og rusli semenginn hafði lengur not fyrir. Ég lagðist í djúpt þunglyndi en byrjaði svo að hirða rusl sem enginn vildi sjá og breyta því í eitthvað sem gleður, gaf því nýtt líf og nýjan til- gang,“ segir Gallo, Hector Gallo Por- tieles, 95 ára listamaður sem býr í Alamar, bæ rétt utan við Havana á Kúbu. Gallo hefur breytt heimili sínu og garði í listasafn og nágrannar hans færa honum hversdagslega hluti sem annars færu á haugana. Bíða svo spenntir að sjá í hvað hann breytir þeim. Hann leggur ríka áherslu á visku, er boðberi gæsku og ástar, aflsins að baki mannlegri von. Ekkert verka hans er til sölu. „Alvaran felst í skopskyninu, að fá aðra til að hlæja eða brosa innra með sjálfum sér. Það er lykilatriði, lífsnauðsyn. Ég kýs að dvelja hér og halda áfram að breiða út boðskapinn með verkum mínum, frekar en flytja í fínt hverfi þar sem mér yrði bannað þetta. Ég verð að halda áfram, það heldur mér lifandi að búa til verkin mín. Ég sækist ekki eftir fullkomnun, heldur einlægasta formi tjáningar. Þeim mun meira sem verkin mín virðast hafa verið gerð af börnum, þeim mun betra.“ Þegar ég spyr Gallo að því hvers vegna öll verkin hans séu með gler- augu svarar hann því til að hann vilji ekki að þau verði blind. „Allir í minni fjölskyldu hafa dáið blindir, svo ég gleymi aldrei að setja augu á verkin mín.“ Fékk tilskipun að ofan Saga þessa magnaða manns hefst á kraftaverki, því Rósa móðir hans átti þrjú ár í fimmtugt þegar hún fæddi hann, 17. maí 1924. Hann var sjötta og yngsta barnið í fjöl- skyldunni, sem var vel sett, Antonio faðir hans var borgarstjóri bæjarins, Campo Florido. Gallo var kallaður Tico litli, og segist aldrei gleyma ást- ríki móður sinnar. Þegar hann var 12 ára, árið 1936, urðu pólitískar breyt- ingar til þess að faðir hans var svipt- ur borgarstjórastöðunni og fjöl- skyldan varð skyndilega tekjulaus og snauð. Tico litli þurfti að fara að vinna fyrir sér og bróðir hans tók hann inn á sína rakarastofu og kenndi honum til rakara. Rakarastofan var fund- arstaður ólgandi sósíalista og Tico litli drakk í sig allt sem þeir sögðu. Hann átti reiðhjól og fékk hlutverk sem sendill, bar boð á milli félaga vaxandi pólitískrar andspyrnuhreyf- ingar. Í einni slíkri sendiferð hitti hann ástina í lífi sínu, Maríu Emilíu, sem hann giftist 1946 og átti með henni þrjú börn. Byltingarsinnar unnu sigur árið 1959 og þá fékk Gallo tilskipun frá valdamestu mönnunum: „Héðan í frá ert þú ekki lengur rakari heldur rík- iserindreki.“ Ekki var í boði að neita og líf Gallos umturnaðist, hann var sendur til Paragvæ, opinberlega sem sölufulltrúi en í raun sem njósnari. Næstu þrjátíu ár bjó hann í tuttugu löndum og sinnti erindum fyrir þjóð sína. Þegar hann var sendiherra í Kambódíu lauk hann þar námi í blaðamennsku, 58 ára. Bjargaði fjölda mannslífa Gallo segir sögu frá byltingar- árum þegar til hans leitaði örvænt- ingarfullur fátækur maður sem átti mjög veika dóttur. „Hann bauð mér mikilvægar hernaðarupplýsingar í skiptum fyrir peninga, svo hann gæti leitað læknishjálpar, en ég sagði hon- um að ég mætti alls ekki borga fyrir slíkar upplýsingar. Til að hjálpa hon- um lét ég hann hafa mína persónu- legu peninga, ég hafði verið að leggja svolítið fyrir, en það var ekki mikið. Vesalings maðurinn var svo feginn að hann sagði „Ég er líka heiðursmaður, og læt þig í þakklætisskyni hafa þess- ar hernaðarupplýsingar.“ Þetta reyndust afar dýrmætar upplýsingar sem ég kom áleiðis og þær björguðu gríðarlega mörgum mannslífum sem og verðmætum. Ég fékk varla takk fyrir frá yfirvöldum.“ Þrátt fyrir glæstan feril og mikilvægt framlag til þjóðar sinnar naut Gallo ekki umbunar í ellinni. Við fall Sovétríkjanna 1990, þegar hann var 65 ára og kominn á eftirlaun, breyttist allt. Þá hrundu launin og hann varð fátækur maður, átti vart fyrir mat, með fullt hús af fólki, konu, tvær dætur og tengdasyni. „Allt sem ég hafði trúað á hrundi og ég missti lífslöngun. Þessi listsköpun bjargaði lífi mínu, ég endurfæddist.“ Fjölbreytni Það kennir margra grasa þegar gengið er um heimili Gallos og garð, þar hafa símar, klukkur, skór, sjónvörp, brúður, hauskúpur og fleira öðlast nýtt líf í höndum listamannsins. Ást og friður varða mestu í lífinu Að heimsækja hinn aldna listamann og lífskúnstner Gallo á Kúbu er töfrum líkast. Hjarta hans er opið upp á gátt og hann hleypir gestum inn á heimili sitt og í garðinn hjá sér, þar sem allt er bókstaflega þakið í listaverkum hans, rusli sem hann hefur breytt í gleðjandi fígúrur. Verkin hans eru óður til gleðinnar og ástarinnar, sem veröld öll finnur nú að þörf er á. Morgunblaðið/Kristín Heiða Lífskúnstner Gallo tekur á móti gestum í hjólastól og geislar af hlýju. Menningarstofn- anir í Reykja- nesbæ færa menninguna heim til fólks í samkomubanni. Yfir 50 rafrænir viðburðir af ýms- um toga eru í undirbúningi, m.a. tónleikar með Ásgeiri Trausta, Moses Hightower, GDRN og Hjálmum. Viðburðir verða auglýstir á Face- book-síðum stofnananna, á Face- book-síðu Reykjanesbæjar og í við- burðadagatali á reykjanesbaer.is. Rafræn menning í Reykjanesbæ Hreyfing er mikilvæg fyrir líkamlegt og andlegt heil- brigði. ÍSÍ hef- ur farið af stað með verkefnið Ísland á iði, sem er fræðslu- og hvatningarverkefni ætlað fólki á öllum aldri. Ísland á iði í 28 daga – 30 mínútur á dag er Facebook-síða þar sem ÍSÍ setur inn fjölbreytta hreyfingu, fróð- leik, myndir, myndbönd og al- menna skemmtun í samkomu- banni. Ísland á iði í 28 daga í 30 mínútur á dag Ásgeir Trausti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.