Morgunblaðið - 28.03.2020, Page 12
Krútt Mosi og Burkni eru þriggja mánaða.
Kálfarnir og hálfbræðurnir Mosi og
Burkni dafna vel í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Reykjavík og
nú geta landsmenn fylgst með þeim
í beinni útsendingu úr vefmynda-
vél, því Hægvarp Advania sýnir nú
beint frá fjósinu. Vegna Covid-19
hefur garðinum verið lokað eftir
tilskipun frá sóttvarnalækni og ætti
hægvarpið því að vera kærkomið
fyrir þá sem langar að fylgjast með
lífinu þar, en von er á fjölgun hjá
flestum húsdýranna.
„Náttúran hefur sinn vana gang
þó gestum sé ekki heimilt að heim-
sækja garðinn. Mosi og Burkni
komu í heiminn á bænum Bakka á
Kjalarnesi í byrjun febrúar og er
Mosi með svartar granir en Burkni
með rauðar. Bræðurnir njóta úti-
veru á hverjum morgni á meðan
fjósið er þrifið. Dýrahirðar sjá um
mjólkurgjafir á daginn en nætur-
vörður gefur þeim á nóttunni,“
segir í tilkynningu.
Á þessari slóð má sjá útsend-
inguna: advania.is/haegvarp
Hægvarp úr Húsdýragarðinum
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Eftir að hafa þjónað þjóðminni í þrjátíu ár var mérhent eins og rusli semenginn hafði lengur not
fyrir. Ég lagðist í djúpt þunglyndi en
byrjaði svo að hirða rusl sem enginn
vildi sjá og breyta því í eitthvað sem
gleður, gaf því nýtt líf og nýjan til-
gang,“ segir Gallo, Hector Gallo Por-
tieles, 95 ára listamaður sem býr í
Alamar, bæ rétt utan við Havana á
Kúbu. Gallo hefur breytt heimili sínu
og garði í listasafn og nágrannar hans
færa honum hversdagslega hluti sem
annars færu á haugana. Bíða svo
spenntir að sjá í hvað hann breytir
þeim. Hann leggur ríka áherslu á
visku, er boðberi gæsku og ástar,
aflsins að baki mannlegri von. Ekkert
verka hans er til sölu.
„Alvaran felst í skopskyninu, að
fá aðra til að hlæja eða brosa innra
með sjálfum sér. Það er lykilatriði,
lífsnauðsyn. Ég kýs að dvelja hér og
halda áfram að breiða út boðskapinn
með verkum mínum, frekar en flytja í
fínt hverfi þar sem mér yrði bannað
þetta. Ég verð að halda áfram, það
heldur mér lifandi að búa til verkin
mín. Ég sækist ekki eftir fullkomnun,
heldur einlægasta formi tjáningar.
Þeim mun meira sem verkin mín
virðast hafa verið gerð af börnum,
þeim mun betra.“
Þegar ég spyr Gallo að því hvers
vegna öll verkin hans séu með gler-
augu svarar hann því til að hann vilji
ekki að þau verði blind. „Allir í minni
fjölskyldu hafa dáið blindir, svo ég
gleymi aldrei að setja augu á verkin
mín.“
Fékk tilskipun að ofan
Saga þessa magnaða manns
hefst á kraftaverki, því Rósa móðir
hans átti þrjú ár í fimmtugt þegar
hún fæddi hann, 17. maí 1924. Hann
var sjötta og yngsta barnið í fjöl-
skyldunni, sem var vel sett, Antonio
faðir hans var borgarstjóri bæjarins,
Campo Florido. Gallo var kallaður
Tico litli, og segist aldrei gleyma ást-
ríki móður sinnar. Þegar hann var 12
ára, árið 1936, urðu pólitískar breyt-
ingar til þess að faðir hans var svipt-
ur borgarstjórastöðunni og fjöl-
skyldan varð skyndilega tekjulaus og
snauð. Tico litli þurfti að fara að vinna
fyrir sér og bróðir hans tók hann inn
á sína rakarastofu og kenndi honum
til rakara. Rakarastofan var fund-
arstaður ólgandi sósíalista og Tico
litli drakk í sig allt sem þeir sögðu.
Hann átti reiðhjól og fékk hlutverk
sem sendill, bar boð á milli félaga
vaxandi pólitískrar andspyrnuhreyf-
ingar. Í einni slíkri sendiferð hitti
hann ástina í lífi sínu, Maríu Emilíu,
sem hann giftist 1946 og átti með
henni þrjú börn.
Byltingarsinnar unnu sigur árið
1959 og þá fékk Gallo tilskipun frá
valdamestu mönnunum: „Héðan í frá
ert þú ekki lengur rakari heldur rík-
iserindreki.“ Ekki var í boði að neita
og líf Gallos umturnaðist, hann var
sendur til Paragvæ, opinberlega sem
sölufulltrúi en í raun sem njósnari.
Næstu þrjátíu ár bjó hann í tuttugu
löndum og sinnti erindum fyrir þjóð
sína. Þegar hann var sendiherra í
Kambódíu lauk hann þar námi í
blaðamennsku, 58 ára.
Bjargaði fjölda mannslífa
Gallo segir sögu frá byltingar-
árum þegar til hans leitaði örvænt-
ingarfullur fátækur maður sem átti
mjög veika dóttur. „Hann bauð mér
mikilvægar hernaðarupplýsingar í
skiptum fyrir peninga, svo hann gæti
leitað læknishjálpar, en ég sagði hon-
um að ég mætti alls ekki borga fyrir
slíkar upplýsingar. Til að hjálpa hon-
um lét ég hann hafa mína persónu-
legu peninga, ég hafði verið að leggja
svolítið fyrir, en það var ekki mikið.
Vesalings maðurinn var svo feginn að
hann sagði „Ég er líka heiðursmaður,
og læt þig í þakklætisskyni hafa þess-
ar hernaðarupplýsingar.“ Þetta
reyndust afar dýrmætar upplýsingar
sem ég kom áleiðis og þær björguðu
gríðarlega mörgum mannslífum sem
og verðmætum. Ég fékk varla takk
fyrir frá yfirvöldum.“
Þrátt fyrir glæstan feril og
mikilvægt framlag til þjóðar sinnar
naut Gallo ekki umbunar í ellinni. Við
fall Sovétríkjanna 1990, þegar hann
var 65 ára og kominn á eftirlaun,
breyttist allt. Þá hrundu launin og
hann varð fátækur maður, átti vart
fyrir mat, með fullt hús af fólki, konu,
tvær dætur og tengdasyni. „Allt sem
ég hafði trúað á hrundi og ég missti
lífslöngun. Þessi listsköpun bjargaði
lífi mínu, ég endurfæddist.“
Fjölbreytni Það kennir margra grasa þegar gengið er um heimili Gallos og garð, þar hafa símar, klukkur, skór, sjónvörp, brúður, hauskúpur og fleira öðlast nýtt líf í höndum listamannsins.
Ást og friður varða mestu í lífinu
Að heimsækja hinn aldna listamann og lífskúnstner
Gallo á Kúbu er töfrum líkast. Hjarta hans er opið
upp á gátt og hann hleypir gestum inn á heimili sitt
og í garðinn hjá sér, þar sem allt er bókstaflega þakið
í listaverkum hans, rusli sem hann hefur breytt í
gleðjandi fígúrur. Verkin hans eru óður til gleðinnar
og ástarinnar, sem veröld öll finnur nú að þörf er á.
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Lífskúnstner Gallo tekur á móti gestum í hjólastól og geislar af hlýju.
Menningarstofn-
anir í Reykja-
nesbæ færa
menninguna
heim til fólks í
samkomubanni.
Yfir 50 rafrænir
viðburðir af ýms-
um toga eru í
undirbúningi,
m.a. tónleikar
með Ásgeiri Trausta, Moses
Hightower, GDRN og Hjálmum.
Viðburðir verða auglýstir á Face-
book-síðum stofnananna, á Face-
book-síðu Reykjanesbæjar og í við-
burðadagatali á reykjanesbaer.is.
Rafræn menning
í Reykjanesbæ
Hreyfing er
mikilvæg fyrir
líkamlegt og
andlegt heil-
brigði. ÍSÍ hef-
ur farið af stað
með verkefnið
Ísland á iði,
sem er fræðslu-
og hvatningarverkefni ætlað fólki
á öllum aldri. Ísland á iði í 28
daga – 30 mínútur á dag er
Facebook-síða þar sem ÍSÍ setur
inn fjölbreytta hreyfingu, fróð-
leik, myndir, myndbönd og al-
menna skemmtun í samkomu-
banni.
Ísland á iði í 28 daga
í 30 mínútur á dag
Ásgeir Trausti