Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad- pakki, Sport-pakki, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart o.fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 RAM Limited 3500 35” Litur: Pearl red/ Svartur að innan. 6,7L Cumm-ins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund. Einn með öllu: RAM box, Aisin sjálfskipting, dual alternators 440 amps, loftpúðafjöðrun, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. VERÐ 11.980.000 m.vsk 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Onyx black/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Einnig til í öðrum litum. VERÐ 12.490.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 Ford F-350 Lariat Sport Kominn með 10 gíra Allison sjálfskipt- ingu! Litur: Star white, svartur að innan, 6,7L Diesel ,475 Hö, 1050 ft of torque. Með Sport-pakka, Ultimate-pakka, FX4 offroad pakka, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, lyklalaust aðgengi, Bang Olufssen hljómkerfi, trappa í hlera. VERÐ 12.280.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ því og það hentar mér vel að vera í tarnavinnu og fá frí á milli.“ – Þú færð kannski meiri tíma í golfið? „Golfið er það besta sem hefur komið fyrir mig og það verður trú- lega nógur tími í það. Ég held að þessi íþrótt sé alveg jafn skemmtileg á hvaða stigi sem þú ert. Ég er bara ánægður með mig og mína 23 í for- gjöf.“ Víðir er fæddur og uppalinn í Bol- ungarvík. Sem strákur var hann í sex sumur í sveit á Ósi í Bolungarvík frá vori og fram á haust. Annars snerist lífið um sjómennsku, en bæði faðir hans og afi voru skipstjórar í Bolungarvík. „Ég var skráður á skip 15 ára gamall, það var 16. júní 1971. Ég var þá beitningamaður á Guðmundi Pét- urs ÍS sem var á útilegu á línu. Ég hef eiginlega aldrei þegið laun fyrir aðra vinnu en sjómennsku, að undanskildu einu lambi á hverju hausti í sveitinni og nokkrum krón- um fyrir að keyra leigubíl. Fyrsta túrinn sem skipstjóri fór ég daginn eftir að Vigdís Finnboga- dóttir var kosin forseti, það eru víst 40 ár síðan. Það var á Heiðrúnu ÍS og aflinn í trollið var 110 tonn á átta dögum. Ég var svo fastráðinn skip- stjóri um áramótin 1982-83 og var með Dagrúnu frá Bolungarvík næstu árin.“ Blaðamaður skýtur inn spurningu um hvort hann hafi kosið Vigdísi sem forseta í kosningunum 1980. „Nei, ég hef aldrei hitt á að kjósa forseta þegar þeir hafa boðið sig fram í fyrsta skipti.“ Kleifabergið ekki misst úr dag Í kjölfarið á gjaldþroti Einars Guðfinnssonar hf. í Bolungarvík fór Víðir til Ólafsfjarðar 1994 og varð stýrimaður á Mánaberginu. Hann tók síðan við sem skipstjóri á Kleifa- bergi 1997, en Þormóður rammi gerði skipið þá út. Kleifabergið er smíðað í Póllandi 1974 og er því komið til ára sinna. Víðir tekur til varna fyrir aflaskipið: „Þetta er kannski gamalt skip, en al- veg í fullkomnu lagi. Kleifabergið hefur ekki misst úr dag þann tíma sem ég hef verið á því.“ Skipið hefur á síðustu áratugum komið með mikinn afla að landi. Víðir vill ekki gera mikið úr árangri sínum og félaga sinna á skipinu, en þegar hann er spurður hvort hann þakki fyrst og fremst áhöfninni, út- gerðinni eða drjúgum aflaheimildum kemur svarið: „Eftir því sem maður lærir meira á lífið þá snýst þetta allt um að hafa gott fólk í kringum sig og með sér. Þannig ganga hlutirnir og ég held að Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ekkert varð af kveðjuathöfn þegar Víðir Jónsson, skipstjóri á frysti- skipinu Kleifabergi RE 70, kom úr síðasta túrnum á mánudaginn. Ekki liggur fyrir hvort og þá hvernig Kleifabergið verður gert út áfram og skipstjóranum fannst tímabært að stíga frá borði. Einhvern tímann hefði verið talin ástæða til að taka eins og eina kveðjuskál, en kórónu- veiran og samkomubannið komu í veg fyrir allt slíkt að þessu sinni. Víðir er 64 ára gamall og segist vera við góða heilsu, en finnist nóg komið eftir að hafa verið skipstjóri í um 40 ár og í raun alla sína tíð við sjóinn. Kleifabergið hefur verið ein- stakt aflaskip og á tímabilinu frá 1. janúar 2010 til 1. janúar 2020 var afli Víðis og félaga hans um borð alls 103.648 tonn og aflaverðmætið þennan áratug yfir 30 milljarðar króna. Tvær áhafnir hafa verið á Kleifaberginu, alls 52 sjómenn, og skiptast áhafnir á. Núna er heimurinn stopp – En hvað ætlar skipstjórinn að taka sér fyrir hendur? „Það er eiginlega óákveðið hvað ég fer að gera. Það var hugmyndin að fara að leysa af á leigubíl, en núna er heimurinn stopp svo ég veit ekki hvað verður. Ég hef aðeins verið að prófa að keyra leigubíl hér á Akur- eyri og finnst það skemmtilegt. Það kom mér reyndar á óvart hvað þetta er mikil vinna. Ég er svo sem vanur það sé alveg sama hvað er um að ræða. Ég hef verið með öndvegis- mannskap og ég hef líka verið ein- staklega heppinn með mína út- gerðarmenn og átt gott samstarf við þá. Þeir hafa aldrei beðið mig að henda fiski svo því sé haldið til haga.“ Alinn upp í beitningaskúrunum – Það er heldur ekki sama hver stendur í brúnni. „Hvað mig varðar hef ég alltaf haft ofboðslegan áhuga á þessu frá því að ég man eftir mér. Ég hlustaði á bátabylgjuna sem strákur og vissi hvað hver einasti bátur fiskaði og hver fiskaði mest. Þetta átti hug minn allan og stundum skammaðist ég mín fyrir hvað ég sökkti mér í þetta, en ef fólk hefur áhuga og fylg- ist með nær það árangri. Ég kem líka frá heimili þar sem mikið var talað um sjávarútveg, en pabbi og afi voru báðir skipstjórar. Maður var nánast alinn upp í beitn- ingaskúrunum i Bolungarvík.“ Bróðir Víðis er Guðmundur Jóns- son, skipstjóri hjá Samherja, núna á Margréti EA og áður á Vilhelm Þor- steinssyni EA. Þessi skip Samherja hafa bæði komið með mikinn og verðmætan afla að landi. Spurður um keppni á milli bræðranna segir Víðir að það sé kannski undir niðri, en ekki til vandræða. Ótrúlegur túr í Barentshafið – En hvaða túr er minnisstæð- astur á löngum ferli? „Það var túr austur í Barentshaf 2015. Gengi krónunnar var niðri og fiskverðið uppi og aflaverðmætið var 725 milljónir, hvorki meira né minna. Við fengum 1901 tonn upp úr sjó í 40 daga túr. Þá þarf að draga frá dagana sem fóru í stímið fram og til baka, millilöndun í Båts- fjord í Noregi og fleira þannig að við vorum tæplega 30 daga að veið- um. Þetta var óhemju vinna, meira en 60 tonn á dag og allt unnið um borð.“ – Hvað gerirðu ef Útgerðarfélag Reykjavíkur, FISK Seafood eða Samherji hringja eftir 2-3 mánuði og biðja þig að taka nokkra túra? „Ef þorskurinn á að vera aðal- tegundin veit ég ekki alveg hvað ég myndi segja. Það veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér, en er þetta ekki bara orðið gott?“ Aflaskipstjóri hyggst verða leigubílstjóri Kona Víðis er Jóna Sigurbjörg Arnórsdóttir og búa þau á Akur- eyri. Börn þeirra eru Valdimar, skólastjóri í Hafnarfirði, Hall- dóra deildarstjóri hjá geðsviði Landspítalans í Reykjavík, Jón Eggert, sem nú starfar með Læknum án landamæra í Kongó, og Stella (d. 2011). Barnabörnin eru fimm. Fjölskylda Ljósmynd/Ottó Harðarson Skipstjórinn Víðir segist hafa haft öndvegismannskap með sér til sjós og verið heppinn með útgerðarmenn. Hann fór í fyrsta róður sinnárið 1971.  Víðir Jónsson hættir til sjós eftir tæplega hálfa öld  Snýst allt um að hafa gott fólk í kringum sig og með sér Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Kleifaberg Annað heimili Víðis hefur verið um borð í skipinu síðustu 23 ár. Forysta Landssambands smábáta- eigenda (LS) hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðherra að gerðar verði breytingar á kerfi standveiða vegna kórónufaraldurs. Sú leið sem LS vill að farin verði er að fjöldi veiðidaga til strandveiða verði óbreyttur, að lágmarki 48. Leyfi gildi í tólf mánuði í stað fjögurra. Upp- hafsdagur verði áfram 1. maí og eng- ar takmarkanir verði á því hvenær menn kjósa að nýta veiðidagana. „Það er mat stjórnar LS að með breytingunni verði afkoma þeirra sem stunda strandveiðar eins vel tryggð og hægt er í því ófremdar- ástandi sem nú geisar. Auk sótt- kvíar, sýkingar og veikinda í kjölfar- ið eru margvíslegir aðrir þættir sem upp kunna að koma. Óvissa er um verð og markaði. Þá kallar strand- veiði á fjölmarga þjónustuaðila tengda útgerð hvers báts,“ segir í bréfi LS. Stjórn LS hefur einnig farið þess á leit við sjávarútvegsráðherra að heimilt verði að fresta greiðslu veiði- gjalda með gjalddaga 1. maí og á ein- daga 15. maí vegna kórónufaraldurs- ins. Veiðigjald fellur í gjalddaga fyrsta hvers mánaðar vegna veiða þarsíðasta mánaðar. Í bréfi stjórnar LS til ráðherra koma fram áhyggjur af gjalddaga hinn 1. maí, vegna veiða í mars, þar sem innkoma í apríl sé af- ar ótrygg. Á heimasíðu LS kemur fram að Samgöngustofa hafi ákveðið með hliðsjón af þeirri stöðu sem hefur skapast vegna kórónuveirunnar að virkja heimild til að fresta skipa- skoðun í allt að þrjá mánuði. Gildis- tími haffærisskírteinis framlengist þá til jafnlangs tíma Jafnframt verður hægt að sækja um almenna framlengingu á gildis- tíma atvinnuskírteina sem renna út meðan á faraldri stendur. aij@mbl.is Vilja strandveiðar allt árið og frestun á veiðigjöldum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.