Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 þegar vinnusambandið við þá verður endurnýjað. Segja sálfræðingarnir að meðferð við fíknsjúkdómum byggist meðal annars á sálfræðikenningum og að því sé einkennilegt að framkvæmda- stjórnin vilji ekki hafa sálfræðinga í framlínu og þverfaglegu meðferðar- teymi innan stofnunarinnar. Benda þau á að í 2. grein laga SÁÁ standi að kappkosta skuli að „á sjúkrahúsi SÁÁ starfi fagfólk úr ýmsum greinum heil- brigðisþjónustunnar...“ Segja þau sem undirrita ályktunina að þau sjái ekki hvernig uppsagnirnar geti sam- rýmst þessum markmiðum. Þá benda þau á að með uppsögnunum tapist sérfræðiþekking og reynsla sem ekki síst verði nauðsynleg í kjölfar heims- faraldurs sem muni hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar. Segjast þau hafa áhyggjur af framtíð stofnunarinnar, sjúklingum og aðstandendum. „Þá viljum við fá nánari skýringar á þessari ákvörðun framkvæmda- stjórnar og vonumst við til þess að þessi ákvörðun verði endurskoðuð.“ Ágreiningur Valgerðar og Arnþórs virðist þó aðeins vera kornið sem fyll- ir mælinn í langvarandi ágreiningi þeirra í milli. Þannig mun Valgerður lengi hafa talið framkomu Arnþórs í sinn garð ámælisverða. Varð það til þess að á stjórnarfundi síðastliðið haust kom hún á framfæri athuga- semdum um það sem hún kallaði „óboðleg samskipti“. Lýstu fulltrúar í framkvæmda- stjórninni þungum áhyggjum af stöð- unni á fundinum og kölluðu eftir því að utanaðkomandi fagaðili yrði feng- inn til þess að leggja mat á ástandið og leggja í kjölfarið fram leiðir til þess að bæta það. Ekki var fallist á þá málsmeðferð að sinni. Lýsingar þeirra stjórnarmanna sem Morgunblaðið hefur rætt við stangast á við þá lýsingu sem Arnþór gaf á samskiptum sínum og yfir- læknisins í viðtali við mbl.is í gær. Sagði hann þar að frétt Morgunblaðs- ins um djúpstæðan ágreining þeirra tveggja væri aðeins komin frá Gróu á Leiti. Ekki hefði andað köldu þeirra í milli. „Við erum bara góðir vinir. Þetta er kjaftasaga,“ sagði Arnþór og bætti við að enginn faglegur ágreiningur hefði verið uppi á milli þeirra. „Hún er frábær fagmaður og búin að vinna gott starf hjá SÁÁ lengi, það er slæmt að missa hana ef það gengur eftir.“ Þá stangast þessi lýsing einnig á við vitnisburð tveggja stjórnarmanna sem segja að það hafi gerst að minnsta kosti í tvígang á undanförnum miss- erum að Valgerður hafi gengið af fundi stjórnar vegna harðrar gagnrýni og persónulegrar í hennar garð af hendi formannsins. Segja stjórnarmenn í samtali við Morgunblaðið að ágreiningurinn milli formannsins og yfirlæknisins hafi meðal annars tengst kröfum sem Þór- arinn Tyrfingsson, fyrrverandi yfir- læknir, forstjóri og formaður SÁÁ, hafði uppi um að fá starfsaðstöðu á Vogi. Í kjölfar þess að hann lét af starfi yfirlæknis var honum falið að halda utan um gagngrunn samtak- anna en því verkefni fylgdi ekki starfsaðstaða á sjúkrahúsinu. Mun Valgerður hafa verið því mjög mót- fallin að Þórarinn fengi aðstöðu á sjúkrahúsinu, sem þá þegar var að- þrengt í húsnæðismálum. Segir annar stjórnarmaður að Arnþór hafi gengið svo hart fram í málinu að á einum fundi með framkvæmdastjórninni hafi yfirlæknirinn boðist til þess að gefa eigin skrifstofu eftir, væri það vilji framkvæmdastjórnarinnar að hann fengi starfsaðstöðu í húsinu. Sú tillaga var talin til marks um að lengra yrði ekki gengið í kröfugerð- inni að sinni. Deilur um skrifstofuaðstöðu Þá hafa meðlimir í framkvæmda- stjórn, starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn á Vogi bent Morgun- blaðinu á að Valgerði hafi verið gert erfitt fyrir í störfum sínum þar sem Þórarinn og fjölskyldumeðlimir hans hafi verið mjög atkvæðamiklir á vett- vangi SÁÁ á síðustu árum. Benda þeir á að Björn Logi Þórarinsson læknir, sonur forstjórans fyrrver- andi, sitji í framkvæmdastjórninni og þá sé dóttir Þórarins einnig starfandi læknir á sjúkrahúsinu. Þá dyljist það engum að samstarf Arnþórs og Þór- arins sé náið, en þeir störfuðu um nokkurra árabil sameiginlega á vett- vangi samtakanna, Þórarinn sem yfirlæknir og Arnþór sem formaður. Stjórnin bíður átekta Það er ekki aðeins níu manna, og nú sex manna, framkvæmdastjórn sem kemur að meiriháttar ákvörðun- um á vettvangi SÁÁ. Framkvæmda- stjórn er valin úr hópi 48 stjórnar- meðlima. Síðarnefndi hópurinn hittist aðeins um þrisvar sinnum á ári. Morgunblaðið hafði samband við full- trúa í stjórninni og leitaði álits þeirra á stöðunni á vettvangi samtakanna. Voru þeir sem blaðið ræddi við sam- mála um að það væru slæm tíðindi að horfa á bak yfirlækni Vogs, sem hefði átt meira en tveggja áratuga flekk- lausan feril þar. Þá töldu stjórnar- menn einnig einboðið að stjórnin yrði kölluð saman við fyrsta tækifæri og að formaður samtakanna myndi þar gera grein fyrir ástandinu sem skap- ast hefði. Nefndi einn viðmælandi blaðsins að hann myndi ekki aðhafast ef fundarboð bærist um miðja næstu viku en að hann tæki að ókyrrast ef ekkert gerðist upp úr því. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Atvinna Bílar Þá hafa heyrst gagnrýnisraddir um að úrræðið gagnist atvinnurek- endum misvel. Til dæmis njóti kráar- eigandi með einn starfsmann í 100% starfi góðs af því en annar með fjóra starfsmenn í 25% starfi sé í jafn vondum málum og fyrr. „Hugsunin var að það þyrfti að vera ákveðið grunnráðningarsam- band. Við breyttum því í meðförum þingsins og teygðum okkur lengra en upphaflega var áætlað. Ég á síður von á að við förum neðar en 25% markið. Ef menn sjá ekki fyrir sér að geta brúað þetta bil þurfa fyrirtækin að velta því fyrir sér hvort þau geti yfir höfið haldið ráðningarsamband- inu.“ Morgunblaðið/Eggert Atvinna Fjöldi fólks er að missa vinnuna eða minnka starfshlutfallið. Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND ÚT MARS CHARM SPANGALAUS HALDARI Stærðir: 65 D - DD- E - F - FF - G 70 C - D - DD - E - F - FF 75 A - B - C - D - DD - E - F 80 A - B - C - D - DD - E 85 B - C - D - DD 90 B - C - D 95 B - C 100 B Verð 7.550,- stk. Ekkert mál að skipta og skila Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook FISLÉTTIR DÚN OG VATTJAKKAR MARGIR LITIR FRÁ KR. 19.900 Persónuleg Símaþjónusta FRÍ HEIMSENDING hjá Laxdal gætum við fyllsta öryggis OPIÐ 12-16 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Barbara Lebek kjóll 11.984.- 14.980.- Stærðir: 36-48 NÝVEFVERSLUN www.hjahrafnhildi.is 20-30% af Lebekog náttfötum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.