Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Bubbi Morthens er að nálgasteinhvers konar topp hvaðumfjöllun og áhuga okkar Íslendinga á honum varðar. Og hefur hann þó verið í fjölmiðlalegri eldlínu allan sinn feril. Eftir að hafa átt níunda áratuginn með húð og hári, tekið svo örlitla dýfu um miðjan tíunda áratuginn (ca. árin 1995-2000) fór þessi eilífðarsól, sem hann og við erum að baða okk- ur í nú, að rísa. Hægt en örugg- lega. Platan Nýbúinn (2001) bar með sér endurnýjaða orku, endur- nýjaðan tilgang, eitthvað sem hann hefur keyrt á síðan. Það er enginn „off“ takki á Bubba Morthens. Undanfarin tuttugu ár hefur okkar maður reynt sig við ýmsa stíla og blæbrigði, unnið með sér yngra fólki og smátt og smátt hefur hann orðið að lifandi goðsögn sem hefur mun meira vægi í raun en sá Bubbi sem var heimsfrægur á Íslandi á níunda áratugnum. Það er því ekki að undra að Borgarleikhúsið hafi ákveðið að setja upp söngleik, byggða á ævi og ferli þessa manns. Sýningin þarf eins og er að bíða vírusfaraldur af sér en þangað til hefur Borgarleikhúsið brugðist við eins og hægt er og m.a. er Bubbi að halda reglulega veftónleika. Stundum er sagt að íslenskan þjóðarpúls megi finna í þessum listamanni. Hann sé eins og lýsi, vatnið eða fjöllin, eins íslenskur og Bubbi, Bubbi, Bubbi… Morgunblaðið/Kristinn Magnússon það gerist. Þetta er rétt að vissu leyti. Í honum, textum hans og at- gervi (dugnaðurinn t.d.) má finna svo margt sem Íslendingar finna sig í. En á sama tíma er hann ósnertanlegur. Þetta er í raun eini íslenski tónlistarmaðurinn nústarf- andi sem hefur stöðu algerrar stór- stjörnu, er dýrkaður og dáður sem slíkur. Björk er annað dæmi, en í raun er það ekki sambærilegt. Mér var falið það verkefni að fjalla um feril og tónlist Bubba fyr- ir Endurmenntun á dögunum. Fyrirlesturinn tengdist inn í nám- skeið sem var keyrt vegna áður- nefndrar sýningar. Ég kenndi í tvisvar sinnum fjörutíu mínútur, rakti feril hans sögulega og reyndi um leið að rýna aðeins í persónu- leikann sem hann hefur að geyma. Spilaði lög, sýndi myndir og spjall- aði. Það sem við blasti er ég gekk inn í stofuna kom mér þó hressi- lega á óvart. Ég átti von á tíu til fimmtán karlmönnum á sextugs- og sjötugsaldri sem væru iðandi í skinninu yfir tækifærinu til að gata strákinn sem var ekki nema sex ára þegar Bubbi ruddist inn á svið- ið á sínum tíma. En svo var aldeilis ekki. Af þeim þrjátíu manns sem voru mættir voru tuttugu og fimm kon- ur á öllum aldri. Og þær sem eru samtíða Bubba voru hreinlega með blik í auga þegar myndir af goðinu tóku að birtast á skjánum. Allt í einu varð mér ljóst eitthvað sem ég hafði hálfpartinn gleymt. Maðurinn er auðvitað kyntákn líka! Þessir tveir tímar í Dunhaganum urðu því hinir ánægjulegustu. Ég fann mig í miðjum hópi eldheitra aðdáenda sem spjölluðu sín á milli um hvort þeir væru ekki örugglega búnir að kaupa miða á hina og þessa tón- leika á milli þess sem þeir fóru utanbókar með textana við þau lög sem leikin voru, hummandi þá með lygnd aftur augun og í mikilli inn- lifun. Já, Bubbi er alger risi hér á landi og ég efast um að við munum nokkru sinni sjá hans líka aftur. Og hann bíður faraldurinn af sér eins og hetja, með kærleikann að vopni eins og honum hefur verið lagið að undanförnu. Enda er hann með níu líf. »En á sama tíma erhann ósnertanlegur. Þetta er í raun eini ís- lenski tónlistarmaður- inn nústarfandi sem hef- ur stöðu algerrar stór- stjörnu, er dýrkaður og dáður sem slíkur. Er pláss fyrir enn eina greinina um Bubba Morthens? Er þörf á því að tala um þennan mann meira, rýna dýpra í hann, velta yfir honum vöngum, rétt einu sinni? Greinilega. Kærleikur Bubbi bíður far- aldurinn af sér eins og hetja, með kærleikann að vopni. Hér má sjá Bubba á fyrstu tón- leikum sínum í Borgarleikhús- inu í samkomubanninu. Helgi Björnsson og Reiðmenn vind- anna buðu á laugardagskvöldið var gestum heim í stofu á tónleika, fyrir tilstilli Sjónvarps Símans, K100 og Mbl.is. Viðtökur voru að sögn hús- ráðenda og forsvarsmanna miðl- anna framúrskarandi og það mátti líka sjá á lofsamlegum ummælum á samfélagsmiðlum. Í dagskránni „Heima hjá Helga“ fluttu Helgi og Reiðmennirnir valdar dægur- perlur. Gestur þeirra var söng- konan Salka Sól og þá las Vilborg Halldórsdóttir upp ljóð sem átti vel við stund, stað og ástæðu stofu- tónleikanna, eða samkomubannið. Ný hyggst Helgi endurtaka leik- inn í samstarfi við Sjónvarp Símans, K100 og Mbl.is í kvöld, laugardag, og hefst streymi heiman úr stofu hjá honum klukkan 20. „Ég hef fengið afskaplega góð viðbrögð við tónleikunum og ég er afskaplega þakklátur fyrir það,“ er haft eftir Helga. „Maður fyllist auð- mýkt og eftir að hafa fengið ítrek- aðar óskir um að endurtaka leikinn þá gat ég ekki annað en samþykkt það. Enda alveg óbókaður…“ Helgi Björns endurtekur leikinn í beinni Vinsælt Frá útsendingunni úr stofunni hjá Helga Björnssyni á laugardaginn var. Um þessar mundir er öld lið- in frá frumsýn- ingu hinnar kunnu kvik- myndar Sögu Borgarættar- innar, sem gerð var eftir rómaðri skáldsögu Gunn- ars Gunnars- sonar og markaði upphaf kvik- myndagerðar á Íslandi. Kvik- myndasafn Íslands hefur látið skanna og endurvinna allt það efni á filmum sem til er með myndinni og látið endurgera hana í háskerpu með nýjustu tækni. Þá hefur Þórð- ur Magnússon tónskáld samið tón- list við myndina sem til stóð að frumflytja á hátíðarsýningum í Hofi á Akureyri og Eldborg í Hörpu 3. og 10. maí næstkomandi. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn Petri Sakari ætlaði að flytja tónlist Þórðar á sýningunum. Vegna COVID-19 hefur þessum sýningum nú verið frestað fram til næsta árs. Þær verða í Hofi 14. mars og Eldborg 15. mars 2021. Tónleikasýningum á Borgarætt frestað Þórður Magnússon á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.