Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
V
ið lifum í lausnamiðuð-
um heimi. Ef eitthvað
er að þá er eitthvað
hægt að gera. Við eig-
um tækni, lyf og alls
kyns verkfæri til að leysa ótrúleg-
asta vanda. Eina sem ekki er hægt
að leysa nú frekar en áður er sorg-
in. Þó detta sumir í þá gildru að
kalla eftir skyndilausnum, þá helst
þeir sem standa álengdar og finna
til vanmáttar að geta ekki komið til
hjálpar. Oft hef ég fengið upp-
hringingar frá vinum og nágrönn-
um syrgjandi fólks með ákall um
hvort ekki sé eitt-
hvað hægt að gera,
setningin „þau verða
að fá einhverja
áfallahjálp“ hljómar
þá oft eins og „það
verður að skera
manneskjuna upp
og taka meinið“.
Áfallahjálp og
sorgarsálgæsla er
hins vegar ekkert
annað en samfylgd á
göngu sem enginn
veit hvað varir lengi.
Þess vegna líður
manni aldrei eins
og reddara eða
hetju í hlutverki
sálgætisins, ekkert
gifs, engin verkja-
lyf og heldur engin
orð sem geta
breytt því sem orð-
ið er. Hins vegar
áttar maður sig
kannski betur á því
hvað þýðir að vera manneskja,
samferðamaður, samfélag. Það
þýðir samfylgd, samhugur, sam-
staða.
Nú þegar kórónuveiran tekur
óvænt stjórnina, rétt eins og sorg-
in gerir þegar hún vitjar okkar,
fáum við sem samfélag það verk-
efni að vera til staðar hvert fyrir
annað og upplifa hvert og eitt hvað
það er að veita áfallahjálp. Allt í
einu erum við öll á sama báti og
enginn sem hringir í annan og
segir „þú verður að bjarga þessu“.
Allt í einu erum við öll prestar. Og
það er eitt af því fallega og þakkar-
verða sem mun koma út úr þessum
undarlegu aðstæðum. „Eins og
vatnaliljan sem vex upp af leðj-
unni,“ sagði danski presturinn og
rithöfundurinn Kaj Munk. Það er
þegar erfiðar aðstæður færa okkur
saman og skapa kærleika sem er
kraftur alls sem lifir af og sigrar.
Sama hvað hendir, þá er lífið aldrei
vonlaust, vatnaliljan vex upp af
leðjunni.
Það besta sem við getum gert
núna í þessum aðstæðum sem
sannarlega munu taka enda er að
treysta fagfólki til að meta að-
stæður og hlýða ráðleggingum
þess. Vera í sambandi gegnum
síma og samfélagsmiðla við fjöl-
skyldu, vinieða Rauða krossinn
1717 eða prestana í sóknarkirkj-
unni ef okkur vantar mannlega
nánd, umhyggju og uppörvun.
Allar kirkjur hafa orðið heimasíður
eða Facebook-síður þar sem hægt
er að hafa samband og auglýstir
símatímar eru til staðar. Heil-
brigðisstarfsfólkið okkar er á fullu
við umönnun vegna líkamlegra
veikinda og við sýnum því skilning
og tillitsemi en Rauði krossinn,
kirkjan og fleiri hreyfingar og
stofnanir eru til staðar til að veita
sálrænan stuðning. Þá skiptir
einnig máli nú sem endranær að
taka einn dag í einu vegna þess að
ekkert okkar veit fyrir víst hvað
ástandið mun vara
lengi, þess vegna er
verra að eyða orku í að
kvíða hvað verði eftir
tvo, þrjá eða fjóra mán-
uði. Mundu líka þegar
þú ferð að sofa á kvöld-
in og upplifir angist að
það kemur nýr dagur
og þú ert nýr eða ný á
hverjum degi, með nýja
sýn, nýjan styrk, nýjan
þroska, nýjar upplýs-
ingar, nýja von.
Og svo er eitt sem þú
getur alltaf reynt að
gera og tileinka þér. Að
taka eftir öllu því góða
og fagra í lífinu. Já,
gefðu gaum þeim sem
finna lausnir á marg-
þættum vanda sem
veiran skapar. Sjáðu
fólkið sem hugsar dag-
leg samskipti og um-
gengni upp á nýtt til að
varna og hægja á smiti.
Hlustaðu á þá sem gefa góð og
gagnleg ráð og virkja forsjálni
okkar hinna.Taktu eftir heilbrigð-
isstarfsfólkinu sem hleypur hrað-
ar, meira og lengur þessa daga og
vikur að lækna og líkna. Sjáðu og
heyrðu listafólkið sem flytur ljóð
og lag, fegurð og yl inn í nýjar að-
stæður þegar samfélagið þarf á
sálarhnoði og huggun að halda.
Líttu á samkenndina og kærleik-
ann sem sprettur fram þegar allir
þurfa og verða að gæta hver ann-
ars. Sérðu ekki hvað veiran má sín
lítils í alheimsumhyggjunni?
Hlustaðu eftir barnsrödd í
fjarska eða nálægð, þar er fram-
vindan, gleðin og vonin.
Horfðu á allt sem þú hefur ár-
orkað í lífinu, allar hindranir sem
þú hefur lagt að baki, finndu styrk-
inn þinn.
Hlæðu að eigin bröndurum og
leyfðu þér að finna fyndinn flöt á
skrýtnum aðstæðum.
Elskaðu mikið, elskaðu meira og
þú getur allt.
Ljósmynd/Unsplash, Rod Long
Hugvekja
Hildur Eir
Bolladóttir
Höfundur er prestur í Akureyrar-
kirkju og hefur starfað samhliða
við ritstörf og þáttagerð fyrir
sjónvarp.
hildur@akirkja.is
Líttu á sam-
kenndina og
kærleikann sem
sprettur fram
þegar allir þurfa
og verða að gæta
hver annars.
Hildur Eir Bolladóttir
Björtu hliðarnar
„Hlustaðu eftir
barnsrödd í
fjarska eða ná-
lægð, þar er fram-
vindan, gleðin og
vonin.“
„Elskaðu mikið,
elskaðu meira“
Kirkjan til fólksins
GRAFARVOGSKIRKJA | Ekkert helgihald
verður í kirkjunni vegna samkomubanns.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í spöng |
Ekkert helgihald verður vegna samkomu-
banns.
GRENSÁSKIRKJA | Við sendum út bænir,
hugvekjur og helgistundir á heimasíðum og FB-
síðum Grensáskirkju og Bústaðakirkju. Með
hlýjum kveðjum frá prestum og djáknum Foss-
vogsprestakalls.
HÁTEIGSKIRKJA | Kirkjan er lokuð vegna
samkomubanns og allt helgihald og safn-
aðarstarf liggur niðri á meðan. Upplýsingar um
prestsþjónustu, s.s. sálgæslu og útgáfu vott-
orða er að finna á hateigskirkja.is
SELTJARNARNESKIRKJA | Streymi á helgi-
stund frá Seltjarnarneskirkju sunnudag kl. 13
og frá bænastund miðvikudaginn 1. apríl kl.
12.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Holtskirkja í Önundarfirði
ORÐ DAGSINS: Jesús
rak út illa anda.
(Lúk. 11)
Ég spilaði körfu-
bolta á mínum yngri
árum, með nokkrum
liðum meðal annars
KR. Einu sinni KR-
ingur, alltaf KR-ingur.
Margir af mínum bestu
þjálfurum notuðu
fyrirsögnina í sínu dag-
lega þjálfarastarfi,
vörnin vinnur leikinn.
Það er ekkert mikið
mál að skora, en það getur verið
erfiðara að koma í veg fyrir að and-
stæðingurinn skori hjá okkur.
Mér hefur liðið undanfarna daga
og vikur eins og ég sé í körfubolta-
leik. Og stöðugt í vörn. Þjálfararnir
eru þrír, Alma, Víðir og Þórólfur. Og
þetta framúrskarandi flotta tríó er
sífellt að leggja áherslu á vörnina.
Hvernig við getum varist því að
smitast og hvaða leiðir er hægt að
fara til að minnka líkur á að smit
berist manna á milli. Í körfunni er
spiluð maður á mann vörn annars
vegar og svæðisvörn hins vegar.
Báðar gerðir eru nauðsynlegar í
þessari baráttu. Hver
og einn einstaklingur
ber ábyrgð á því hvern-
ig hann hagar sér
(maður á mann vörn)
og svo er mikilvægt að
við sem samfélag ger-
um okkar besta til að
bregðast við veirunni
(svæðisvörn). Verum
heima þeir sem það
geta.
Ég hef orðið vitni að
mikilli samstöðu starfs-
manna Grundarheim-
ilanna undanfarið. Það er eins og all-
ir leggist á eitt til að láta þetta ganga
upp. Mér finnst eins og það sé ein-
hvers konar keppnisandi í liðunum
okkar. Allir leggja sig 100% fram.
Takk kærlega öll sömul fyrir allt það
sem þið hafið lagt á ykkur undan-
farið í tengslum við þessa veiru.
Einnig þakka ég heimilismönnum og
aðstandendum þeirra fyrir skilning
á verulega breyttum aðstæðum.
Staðan er ekki eins og ég óskaði
mér, en ég tek þetta, og sýnist flestir
gera það einnig, af æðruleysi.
Breytum því sem við getum breytt
en sættum okkur við það sem við
getum ekki breytt. Og svo þetta
mikilvæga sem við höfum öll, vitið til
að greina þar á milli.
Þetta er vissulega enginn leikur,
en samlíkingin á við að mínu mati
engu að síður.
Til að við eigum smá breik
og að lokum við stöndum öll keik
við handþvottinn stundum
og frestum öll fundum
því vörnin, hún vinnur hvern leik
Eftir Gísla
Pál Pálsson
»Ég hef orðið vitni að
mikilli samstöðu
starfsmanna Grundar-
heimilanna undanfarið.
Það er eins og allir legg-
ist á eitt til að láta þetta
ganga upp.
Gísli Páll Pálsson
Höfundur er forstjóri
Grundarheimilanna.
gisli@grund.is
Vörnin vinnur leikinn
Ég get ekki annað
sagt en að ég sé mjög
ánægður með hvað
fjarkennslan hefur
gengið vel í framhalds-
skólum landsins síðan
þeim var lokað vegna
samkomubannsins.
Undrum sætir hversu
mikill kraftur er í
skólastarfinu þrátt
fyrir allt. Það hefur
verið afar spennandi að fylgjast
með þróuninni og sjá hvernig fólk
nálgast verkefnin á margvíslegan
hátt. Kennarar bera sig vel og nem-
endur yfirleitt líka. Frábær frammi-
staða! Báðir hópar hafa verið undir
álagi en ég tel að jafnvægi sé að
nást og reglufesta.
Mestu skiptir að gott
og stöðugt samband sé
á milli kennara, nem-
enda og stjórnenda.
Ég hrósa Innunni,
upplýsinga- og
kennsluvef framhalds-
skólanna, fyrir nýja
möguleika sem fólk er
að nýta sér og prófa
sig áfram með. Það
hefur líka komið í ljós
hvað Innan er flott og
þróað tæki og hvað
bæði kennarar og nemendur eru vel
með á nótunum í upplýsinga-
tækninni. Stoðþjónustan hefur líka
verið að vinna af miklum krafti,
hvort sem eru starfs- og náms-
ráðgjafar, sálfræðingar og síðast en
ekki síst umsjónarkennarar. Ég
hvet starfsfólk skólanna og nem-
endur til þess að halda áfram á
þessari braut og vonandi verður
þess ekki langt að bíða að skólarnir
verði aftur iðandi af lífi á nýjan leik.
Frábær frammistaða
Eftir Hjalta Jón
Sveinsson
»Kennarar bera sig
vel og nemendur
yfirleitt líka. Frábær
frammistaða! Báðir hóp-
ar hafa verið undir álagi
en jafnvægi og reglu-
festa eru að nást.
Hjalti Jón Sveinsson
Höfundur er skólameistari Kvenna-
skólans í Reykjavík.