Morgunblaðið - 28.03.2020, Side 2

Morgunblaðið - 28.03.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 ALVÖRUMATUR Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Íbúar hjúkrunarheimila búa við vissa einangrun því heimilin hafa sett heimsóknarbann til að reyna að koma í veg fyrir að kórónuveiran smit- ist inn á heimilin. Aðstandendur hafa í sumum tilvikum getað heilsað upp á fólkið sitt úr fjar- lægð, með því að standa fyrir utan heimilin. Það vakti mikla lukku meðal íbúa á hjúkrunarheim- ilinu Mörk þegar sönghópurinn Lóurnar stillti sér upp á göngustígnum fyrir utan og söng. Heimilismenn sátu úti á svölum dúðaðir í hlý föt og vafðir í teppi, tóku undir, veifuðu til söng- fólksins og fögnuðu með lófataki. Einangrun íbúa hjúkrunarheimilisins Markar rofin Morgunblaðið/Eggert Fögnuðu söng Lóanna ofan af svölum heimilisins Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Í heildina séð eru aðgerðirnar gott fyrsta skref en þær hefðu í raun átt að koma fyrr og án þess að vera und- ir formerkjum þess að veiran geisar hér,“ segir Heiðrún Lind Marteins- dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, þegar leit- að er álits hennar á aðgerðum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra kynnti í gær og ætlað er að lágmarka neikvæð áhrif kórónu- veirunnar á íslenskan sjávarútveg og landbúnað. „Ég er jákvæður gagnvart því ef ríkisstjórnin ætlar að sýna landbún- aði þennan skilning. Annars hefur ekki staðið á ráðuneytinu að liðsinna okkur í þessum vandræðum,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Gunnar segir að Bændasamtökin og Samtök garðyrkjubænda hafi kallað eftir því að brugðist verði strax við takmörkun á innflutningi grænmetis með því að bæta í niður- greiðslu flutningskostnaðar raf- magns og auka landgreiðslur til úti- ræktunar grænmetis. Þannig sé hægt að auka framleiðslu innanlands en það taki tíma. Þá hafi Bændasam- tökin óskað eftir auknum framlögum til Ráðgjafarþjónustu landbúnaðar- ins vegna þeirrar vinnu sem hún hafi lagt í vegna faraldursins en ekki sé hægt að innheimta hjá einstökum bændum. Gunnar segir því jákvætt að fjallað sé um þessi mál í aðgerðum ráðuneytisins. Þar eru einnig boðað- ar greiðslur til fólks sem sinnir af- leysingarþjónustu fyrir bændur sem ekki geta sinnt skepnum sínum vegna veikinda. Geyma fiskinn í sjónum Boðað er að afgreiðslu rekstrar- leyfa í fiskeldi verði flýtt og stjórn- sýslan styrkt. Auka á fjárveitingar til hafrannsókna, sérstaklega loðnu- rannsókna, og aukið svigrúm til að flytja aflaheimildir á milli fiskveiði- ára. Heiðrún Lind segir að stjórn- kerfið hafi illa ráðið við aukin verk- efni sem fylgt hafi fiskeldinu sem nýrri atvinnugrein. „Það er mjög til bóta ef hægt er að standa við lög- bundna fresti því allar tafir hafa fjár- hagsleg áhrif.“ Hún segir að möguleikar á geymslu aflaheimilda séu í anda góðrar fiskveiðistjórnunar. „Þegar svona aðstæður skapast, þar sem eftirspurn hrynur, hjálpar það til við skipulagið að hægt sé að geyma fisk- inn í sjónum þar til betur árar.“ Aðgerðirnar eru gott fyrsta skref  Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum veirunnar  Forsvarsmenn atvinnugreinanna fagna  Bændasamtökin vilja auka innlenda framleiðslu matvæla Gunnar Þorgeirsson Heiðrún Lind Marteinsdóttir Stjórn Samherja ákvað í gær að Þorsteinn Már Baldvinsson sneri aftur til starfa og yrði forstjóri við hlið Björgólfs Jóhannssonar, sem gegnir forstjórastarfi sínu áfram þar til annað verður ákveðið. „Þorsteinn Már Baldvinsson fær það verkefni að leiða aðgerðir Sam- herja vegna þeirra fáheyrðu að- stæðna sem eru uppi vegna út- breiðslu Covid-19. Stjórn Samherja telur að sterk forysta með ítarlega þekkingu á mannauði, veiðum, vinnslu, sölu, flutningum og öllum öðrum rekstri samstæðunnar muni skipta sköpum í þeim aðgerðum sem ráðast þarf í,“ segir í tilkynn- ingunni. Þorsteinn Már aftur í forstjórastólinn hjá Samherja „Fyrst og fremst viljum við standa með sjóðs- félögum okkar. Við treystum því að fólk muni ekki sækja um þetta nema það sé að komast í vand- ræði. Við erum líka að verja okk- ur með því að stíga fljótt inn og bjóða upp á þenn- an möguleika,“ segir Guðrún Haf- steinsdóttir, formaður Lands- samtaka lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðirnir eru afar stórir lánveitendur í íbúðarhúsnæði. Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða hvetur lífeyrissjóðina til að veita sjóðsfélögum sem lenda í greiðslu- erfiðleikum greiðslufrest. Þá eru líf- eyrissjóðirnir aðilar að samkomulagi lánveitenda um tímabundna greiðslufresti á lánum fyrirtækja. Báðar aðgerðirnar eru vegna efna- hagsástandsins sem skapast hefur vegna kórónuveirunnar. Margir í vandræðum Búast má við því að þúsundir sjóð- félaga verði atvinnulausar eða í skertu starfshlutfalli og því verði margir í vandræðum með lífeyris- sjóðslánin. Guðrún veit ekki til þess að sjóðirnir hafi metið það við hverju megi búast í umsóknum um greiðslufresti en segir að það verði töluvert mikið. helgi@mbl.is Veita greiðslu- fresti  Koma til móts við sjóðsfélaga Guðrún Hafsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.