Morgunblaðið - 28.03.2020, Side 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Höfn
Hátíðarstemning skapast ávallt í þekkingar-
setrinu Nýheimum á Höfn þegar fram fer árleg
afhending viðurkenninga og fjölmargra styrkja
sveitarfélagsins til ýmissa aðila og félagasam-
taka. Athöfnin fór fram 13. mars og rétt slapp við
samkomubannið. Það er mikilvægt og ekki síður
á tímum eins og við erum að upplifa í dag að
fagna og vekja athygli á fjölbreyttri menningu,
félagastarfsemi, umhverfisvitund og frumkvöðla-
starfsemi.
Mesta eftirvæntingu skapa oftast menn-
ingarverðlaunin og umhverfisverðlaunin. Menn-
ingarverðlaun Hornafjarðar hlaut að þessu sinni
Kristján Heiðar Sigurðsson fyrir áralangt starf
og framlag að menningarmálum í héraðinu. Hann
byrjaði ungur að leika á hljóðfæri og hefur alla tíð
skemmt Hornfirðingum á dansleikjum og ýmsum
skemmtunum, m.a. stjórnað vinsælum sýningum
Hornfirska skemmtifélagsins í tæp 20 ár og
Kvennakórnum yfir áratug svo fátt sé nefnt.
Umhverfisverðlaun hlutu: Heiðrún Þor-
steinsdóttir og Hermann Hansson fyrir fallega og
snyrtilega lóð í Hlíðartúni 14, veitingastaðurinn
Pakkhúsið í flokki fyrirtækja og stofnana fyrir vel
hirta og snyrtilega lóð og Gunnar Helgason og
Hafdís Bergmannsdóttir, bændur á Stóra-Bóli á
Mýrum, fyrir fallegt og snyrtilegt lögbýli.
Ekrubandið (kallast við sum tækifæri Hilmar
og fuglarnir) er áhugaverð hljómsveit, skipuð
hljóðfæraleikurum, sem gerðu garðinn frægan á
árum áður. Þeir hafa haldið sér við með því að
leika saman við ýmis tækifæri og þá helst fyrir
eldri borgara, t.d. á þorrablótum. Undanfarin ár
hafa þeir reglulega skemmt heimilisfólki á hjúkr-
unarheimilinu Skjólgarði. Þeir létu ekki slá sig út
af laginu þegar heimsóknarbannið vegna kórónu-
veirunnar tók gildi á heimilinu. Þeir notfærðu sér
tækjabúnað í Hafnarkirkju sem hægt er að senda
atburði og athafnir beint í sjónvarp á hjúkrunar-
heimilinu og fyrstu tónleikar þeirra félaga voru
haldnir í vikunni.
Vertíðin hefur verið óvenjuleg. Menn muna
vart aðrar eins ógæftir. Þá kemur sér vel að mikil
endurnýjun hefur orðið í bátaflotanum og hægt
að róa í verri veðrum. Sömuleiðis er engin loðnu-
veiði annað árið í röð og humarveiðar sem byrja
fljótlega verða ekki svipur hjá sjón. Tekist hefur
að halda úti daglegri vinnslu hjá Skinney-
Þinganesi en engar tarnir hjá starfsfólki vegna
loðnubrestsins. Eins og ástand mála er í dag
kemur sér vel að geta unnið ferskar afurðir,
frystar og saltaðar allt eftir síbreytilegum að-
stæðum.
Hitaveituframkvæmdir eru áberandi í
sveitarfélaginu þar sem verið er að leggja um 20
km lögn frá Hoffelli í Nesjum og út á Höfn
ásamt framkvæmdum á virkjunarstað. Þrátt
fyrir erfitt tíðarfar og óvissu í þjóðfélaginu von-
ast menn eftir að það hafi ekki afgerandi áhrif á
verklok.
Farfuglarnir vekja alltaf áhuga íbúa hér
um slóðir enda Suðausturlandið fyrsti viðkomu-
staður fjölda þeirra. Sömuleiðis heldur Fugla-
athugunarstöð Suðausturlands áhugafólki upp-
lýstu um komu fuglanna á fésbókinni og
fuglar.is. Það fer vel á því einmitt núna að fá sér
göngutúr úti í náttúrunni og horfa eftir þessum
kærkomnu vorboðum.
Menning og framtakssemi verðlaunuð
Ljósmynd/Menningarmiðstöð
Verðlaunahafar Frá úthlutun menningarverðlauna, umhverfisviðurkenninga og styrkja í Nýheimum.
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Sótthreinsiþrif
Áratuga þekking og reynsla
er kemur að smitgát og sýklavörnum
eftir COVID-19 smit
á vinnustöðum og stofnunum
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Grásleppuvertíð er hafin en fyrstu
bátarnir byrjuðu um síðustu helgi.
Byrjunin var ekkert til að hrópa
húrra fyrir og afli var lítill hjá þrem-
ur fyrstu bátunum sem lönduðu á
Þórshöfn í byrjun vikunnar og sjó-
veður hefði mátt vera betra.
„Það var rosaleg kvika og þá
rótast þarinn upp en grásleppan
sýgur sig fasta við botninn og hreyf-
ir sig ekki fyrr en um hægist, verk-
unin á netunum er oft hroðaleg við
þessar aðstæður,“ sögðu grásleppu-
sjómenn sem höfðu ekki erindi sem
erfiði, sumir með netin full af þara.
Nánast ekkert var af meðafla og
þorskur sést varla þarna á miðunum,
sögðu sjómenn.
Þótt þessir fyrstu dagar vertíð-
ar séu daufir segja þeir lítið um
framhaldið, veðurfarið ræður alltaf
mestu um hvernig gengur. Páskarn-
ir eru einn helsti sölutíminn á afurð-
inni, ásamt jólunum. Einnig er
óvissa með sölu á grásleppubúk því
Kína er eini markaðurinn fyrir hann.
Morgunblaðið/Líney
Rýrt Guðjón Gamalíelsson með
rýran afla eftir fyrstu löndun.
Hafa séð
betri byrjun
Grásleppuvertíð
hafin á Þórshöfn