Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ARCO gólflampi Achille & Pier Giacomo Castiglioni 1962 Verð 319.000,- Vefmiðlun, eiginkona hans er Sigrún Björg Elíasdóttir, f. 15.5. 1985, leik- skólastarfsmaður. Þau eiga tvo syni; 3) Gauti Rafn, f. 27.7. 1987, fram- kvæmdastjóri. Eiginkona hans er Katrín Björgvinsdóttir, f. 10.4. 1987, hárgreiðslumeistari. Þau eiga tvær dætur. Fyrir átti Ólafur Írisi, f. 14.9. 1977, rafmagnsverkfræðing. Maki: Tómas Áki Gestsson, f. 29.6. 1976, stærðfræðingur. Þau eiga tvær dætur. Dóttir Agnesar er Hildur Aðalsteinsdóttir sérkennari, f. 31.7. 1969. Sambýlismaður: Garðar Gísla- son, gæðastjóri hjá Umhverfis- stofnun, f. 2.6. 1969. Þau eiga tvö börn. Systkini Ólafs: Sóldís, f. 21.2. 1948, d. 17.1. 2015, læknaritari í Reykjavík, Ingibjörg Þuríður, f. 5.5. 1957, skrif- stofumaður í Hafnarfirði og Draum- ey, f. 21.3. 1960, sérkennari í Hafnar- firði. Foreldrar Ólafs: Hjónin Ari Benja- mínsson, f. 15.11. 1917, d. 6.9. 2008, leigubílstjóri í Hafnarfirði og Sigríður Ólafsdóttir, f. 6.12. 1926, d. 4.2. 2020, húsmóðir og framreiðslukona. Ólafur Arason Jónína Helga Gísladóttir húsfreyja á Sjöundá Egill Árnason b. á Sjöundá á Rauðasandi Ólafía Egilsdóttir ljósmóðir á Hnjóti Ólafur Magnússon bóndi á Hnjóti við Patreksfjörð Sigríður Ólafsdóttir framreiðslukona og húsmóðir í Hafnarf. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Hnjóti Magnús Árnason bóndi á Hnjóti Gunnar Smári Egilsson leiðtogi Sósíalistaflokksins Sigurður Árnason élstj. og rithöfundur ggert Eggertsson bóndi á Miðbæ á Hvallátrum v MaríaSigurðardóttir viðskiptafr. í Rvík Gíslína Egilsdóttir úsfr. í Hafnarfirði Magnús Sædal Svavarsson fv. byggingarfulltrúi Rvíkurborgar Egill Ólafsson safnamaður á Hnjóti h Egill H. Hansen bifvélavirki Sigurbjörg Magnúsdóttir húsfreyja í Keflavík ESigurður Eggertsson skipstj. og b. í uður-Bár í EyrarsveitS Halldór E. Sigurðsson ráðherra Rannveig Rist forstjóri Rio TintoAlcan Guðrún Egilsdóttir húsfreyja íAusturkoti Hallgrímur Scheving Árnason útvegsbóndi íAusturkoti á Vatnsleysuströnd Þuríður Ingibjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja á Stóra-Knarrarnesi Benjamín Halldórsson bóndi á Stóra-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd Margrét Runólfsdóttir vinnukona í Naustakoti á Vatnsleysuströnd Halldór Kristjánsson vinnumaður á Vatnsleysuströnd, fór til Vesturheims Úr frændgarði Ólafs Arasonar Ari Benjamínsson leigubílstjóri í Hafnarfirði „ÞEGAR ÞEIR SÖGÐU AÐ ÉG VÆRI AÐ HLAUPAST UNDAN SKYLDUM LÉT ÉG MIG HVERFA.” „ÉG HEF SAFNAÐ ÖLLU KLINKINU MÍNU SAMAN SÍÐAN ÉG GIFTI MIG. NÚ Á ÉG FIMMHUNDRUÐKALL!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga litla pabbastelpu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞÚ ERT OF ÞUNGUR ÞÚ ÖFUNDAR MIG BARA AF NÝJU VÖRULYFTUNNI MINNI ÉG MUN VEITA ÞENNAN BIKAR SEM VERÐLAUN FYRIR HUGREKKI! HANN LÍTUR ÚT EINS OG ÓDÝRT DRASL! ÞÝÐIR ÞETTA AÐ HANN FÁI BIKARINN? ÞÚ ERT ALDEILIS KOKHRAUSTUR AÐ TALA SVONA VIÐ MIG! Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Konu jafnt og karl á við. Kreikar sá um taflborðið. Notum oft sem ávarpslið. Er svo líka fornafnið. Góður frændi sendi þessa lausn: Kona er maður, kjáninn þinn. Ég kem við mann á borði. Heyrðu hérna, maður minn! Maður kemur vart upp orði. Þannig leysir Helgi R. Einarsson gátuna: Jæja, þá, í þetta sinn, þó ég virðist staður, lausnina að lokum finn, hún líkast til er maður. Hér er enn ein lausnin frá Hörpu á Hjarðarfelli: Karl er maður og konan líka. Kreikar taflmaður um borð. „Heyrðu maður“ má svo flíka. Maður sagði nokkur orð. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Maður: Konu og karl þar finn. Kátir taflmenn upp rísa. Hlusta vel núna, maður minn. Manni finnst þetta vísa. Elsa Eysteinsdóttir á þessa lausn: Víst eru karlar og konur menn. Kanntu taflmann að færa? Maður, manstu að í den maður þurfti að læra. Eysteinn Pétursson svarar: Maður er karl og kona hver. Knátt taflmanni leikum vér. Maður stundum ávarp er, er svo líka fornafn hér. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Maður karl og meyja er. Maður fer um taflborðið. Maður ávarps orð er hér. Einnig maður fornafnið. Þá er limra: Kovid-smit varast ég kann og kveð niður fjanda þann, í spritti mig spúla, í spíra minn túla og allan minn innri mann. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Ljómar sól á himni hátt, held ég nú í gönguför, líður fugl um loftið blátt, leikur gáta mér á vör: Hálfa ræ ég hana á sæ. Til hægri og vinstri sný ég mér. Hana ritað fagra fæ. Fremri hreifi á selnum er. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Alltjafnt segja mennirnir til sín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.