Morgunblaðið - 28.03.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 28.03.2020, Síða 40
HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Handknattleiksþjálfarinn Aron Kristjánsson segir algera óvissu ríkja að svo stöddu um framhaldið hjá sér varðandi mögulega þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó. Aron er landsliðsþjálfari karla hjá Asíurík- inu Barein. Síðasta haust vann liðið sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum undir stjórn Arons í fyrsta skipti í sögunni. Var samningur Arons fram- lengdur fram yfir leikana en þeim hefur nú verið frestað vegna kór- ónuveirunnar. Fara þeir fram á næsta ári en dagsetning liggur ekki fyrir.Aron er í svolítið sérkennilegri stöðu því í millitíðinni samþykkti hann að taka aftur við stjórn karla- liðs Hauka í sumar. „Þetta er allt í óvissu eins og stað- an er núna,“ sagði Aron þegar Morgunblaðið hafði samband við hann og spurði hann út í stöðuna. „Við eigum eftir að vinna úr þessari stöðu sem upp er komin. Það er ein- hvern veginn allt í biðstöðu. Allir eru að bíða eftir að samkomubanni verði aflétt og hjólin fari að snúast. Hvort sem það er hér eða erlendis. Auk þess er enn óákveðið hvenær Ól- ympíuleikarnir fara fram. Verða þeir haldnir að vetri til eða að sumri til?“ sagði Aron en hann hefur hing- að til ekki stýrt félagsliði samhliða landsliði Barein. Hann segist í raun eiga eftir að funda bæði með vinnuveitendum sín- um í Barein og forráðamönnum Hauka um framhaldið. Aron segir fleiri verkefni spila inn í varðandi landsliðsþjálfarastarfið en Persaflóaleikarnir hafi átt að fara fram í apríl en hefur verið frestað og þykir líklegt að þeir verði í desem- ber á þessu ári. Missti af leikunum í Aþenu Aron Kristjánsson hefur ekki keppt á Ólympíuleikum. Hann var í landsliði Íslands sem vann sig inn á leikana í Aþenu 2004 með árangri sínum á HM í Portúgal árið 2003. Aron meiddist hins vegar á hné áður en að leikunum kom og gat ekki ver- ið með í Aþenu. Annar kunnur þjálf- ari, Kristján Andrésson, kom þá inn í landsliðshópinn. Meiðslin sem um ræðir bundu raunar endi á leikmannsferil Arons á sínum tíma. Í vetur sá hann fram á að upplifa Ólympíuleika sem þjálfari en nú er staðan óljós hjá honum eins og áður segir. Eigum eftir að vinna úr þessari stöðu  Aron var á leið á ÓL 2020 með lið Barein en hefur samið við Hauka Morgunblaðið/Hari Barein Aron Kristjánsson hefur átt góðu gengi að fagna sem þjálfari karla- landsliðs Barein en liðið er á leiðinni á Ólympíuleikana í Tókýó. 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 28. mars 1980 „Við leikum ekki fallegan handknattleik en hins vegar árangursríkan. Liðið þarf að bæta við sig einni æfingu á viku til þess að verða betra, æfa sex sinnum í viku. Það á ýmislegt eftir ólært og getur náð enn lengra,“ segir pólski þjálfarinn Bogdan Kowalc- zyck við Morgunblaðið eftir að lið Víkings vinnur Íslands- mót karla með fullu húsi stiga, fyrst íslenskra liða eft- ir að tvöföld umferð var tekin upp. 28. mars 1976 Kvennalandslið Íslands í handknattleik sigrar Kanada, 14:13, í vináttu- landsleik í Laugardalshöll en liðin höfðu gert jafntefli, 12:12, þar dag- inn áður. Arn- þrúður Karls- dóttir skorar helming marka íslenska liðsins, 7 talsins, en hún lék sama leik í fyrri við- urHeigninni og skoraði þá líka helminginn, eða 6 mörk. 28. mars 1976 Karlalandslið Íslands og Kan- ada mætast sama dag í Laug- ardalshöllinni og það er mun ójafnari viðureign því Ísland vinnur auðveldlega, 22:11. Jón H. Karlsson og Guðjón Magnússon eru markahæstir í íslenska liðinu með 4 mörk hvor. Kanadísku liðin komu til Íslands til að búa sig undir handknattleikskeppni Ól- ympíuleikanna á heimavelli í Montreal um sumarið. 28. mars 2001 „Þessir strákar gefast aldrei upp. Þeir hafa gífurlegan metnað og sýndu það svo sannarlega núna. Ég er alveg í skýjunum yfir árangrinum,“ segir Atli Hilmarsson, þjálf- ari KA, við Morgunblaðið eft- ir að lið hans tryggir sér deildarmeistaratitilinn í handbolta karla á ævintýra- legan hátt. Jónatan Magnús- son skoraði sigurmark KA gegn ÍR, 21:20, þegar þrjár sekúndur voru eftir, á sama tíma og Fram missti titilinn úr höndum sér með óvæntu tapi gegn Stjörnunni. 28. mars 2009 Sandra Pétursdóttir úr ÍR set- ur nýtt Íslandsmet í sleggju- kasti kvenna og bætir gamla metið um 3,29 metra þegar hún kastar 54,19 metra á vetrarkastmóti ÍR í Laugardal. Sandra endurheimti þar með metið sem Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir náði af henni átta mánuðum áður og hún hélt því í fimm ár, þar til Vig- dís Jónsdóttir sló það árið 2014. 28. mars 2015 Ísland sigrar Kasakstan 3:0 undir þaki á Astana Arena- leikvanginum í undankeppni EM karla í fótbolta. Eiður Smári Guðjohnsen og Birkir Bjarnason koma Íslandi í þægilega stöðu með mörkum á fyrsta hálftímanum og Birkir innsiglar sigurinn með öðru marki sínu á lokamínútu leiksins. Á ÞESSUM DEGI Þrátt fyrir að Ólympíuleikunum í Tókýó hafi verið frestað er Anton Sveinn McKee, eini Íslendingurinn sem hafði unnið sér keppnisrétt þar, öruggur með að þurfa ekki að vinna sér hann inn að nýju. Alþjóða- ólympíunefndin, IOC, tilkynnti í gær að allir sem hefðu tryggt sér keppnisrétt á leikunum mundu halda honum. Reiknað er með að leikarnir fari fram sumarið 2021 en þá á að halda þá í síðasta lagi sam- kvæmt upplýsingum frá IOC. Leik- arnir áttu að standa yfir frá 24. júlí til 9. ágúst í sumar. Anton öruggur á leikana að ári Ljósmynd/Simone Castrovillari Tókýó Anton Sveinn McKee keppir í bringusundi á Ólympíuleikunum. Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Jón Gunnlaug Viggósson og mun hann þjálfa meistaraflokk karla til ársins 2023. Þá hefur fé- lagið ráðið Andra Berg Haraldsson sem aðstoðarþjálfara. Jón Gunn- laugur tekur við í sumar af Gunnari Gunnarssyni, sem hefur þjálfað lið- ið undanfarin fimm ár. Jón Gunn- laugur er með Master Coach- þjálfaragráðu frá Handknattleiks- sambandi Evrópu. Áður hefur hann m.a. þjálfað kvennalið FH og ÍBV og karlalið HK, ásamt yngri lands- liðum Íslands. Jón Gunnlaugur tekur við Víkingi Morgunblaðið/Kristinn Þjálfari Jón Gunnlaugur Viggósson tekur við karlaliði Víkings. DANMÖRK Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eggert Gunnþór Jónsson, knatt- spyrnumaður frá Eskifirði, veltir þessa dagana fyrir sér hvert hans næsta skref verði á ferlinum en samningurinn við SönderjyskE frá Suður-Jótlandi í Danmörku rennur út í sumar. „Það er alveg inni í myndinni hjá mér að semja aftur við SönderjyskE, enda kann ég vel við mig hérna,“ sagði Eggert við Morgunblaðið í gær en hann hefur leikið með danska lið- inu í rúmlega þrjú ár og spilað með því 75 leiki í úrvalsdeildinni, tuttugu þeirra á yfirstandandi tímabili sem óvíst er hvenær lýkur. Orðrómur hefur verið um að Eggert sé á heimleið og þá mögu- lega í FH, en hann sagði að engar viðræður um slíkt hefðu átt sér stað. „Nei, það er ekkert til í þessu. Ég er svo sem opinn fyrir öllu, útiloka ekki möguleikann á að fara til Ís- lands eða eitthvað annað, en er ekki búinn að ákveða neitt eða hugsa mikið út í það enn sem komið er. Enda er maður aðallega að bíða og sjá hvernig málin þróast alls staðar út af því sem er í gangi. Ég tel mig hafa ennþá hafa mikið fram að bjóða, kroppurinn er í góðu standi, ég spila alla leiki hérna hjá SönderjyskE, þannig að ég sé bara hvernig þetta þróast. Og það verða ýmsir möguleikar hérna úti. En vissulega horfir maður í kringum sig á einhverjum tímapunkti fyrst samn- ingurinn er að renna út,“ sagði Egg- ert. SönderjyskE er sem stendur í ell- efta sæti af fjórtán liðum þegar tvær umferðir eru eftir af hefðbundinni keppni í úrvalsdeildinni og á fyrir höndum umspilskeppni um áfram- haldandi sæti þegar hægt verður að spila á nýjan leik í Danmörku að loknum kórónufaraldrinum. Launin greidd af ríkinu Þar er Eggert í sömu stöðu og flestir aðrir leikmenn í dönsku úr- valsdeildinni um þessar mundir en danska ríkið greiðir laun þeirra sem stendur. „Já, við erum á þessari hjálp frá ríkinu og fáum laun eins og venju- lega á meðan við erum í leyfi. SönderjyskE fylgir bara leiðbein- ingum frá ríkinu eins og allir aðrir. Vonandi getum við byrjað að æfa aft- ur sem fyrst en um það veit auðvitað enginn neitt enn sem komið er.“ Eggert hefur verið atvinnumaður í tæp fimmtán ár, eða síðan hann yfirgaf heimaslóðirnar og lið Fjarða- byggðar á miðju sumri 2005, þá tæp- lega sautján ára gamall, og samdi við skoska úrvalsdeildarfélagið Hearts frá Edinborg. Eftir rúm sex ár þar og 133 leiki í skosku úrvalsdeildinni lék Eggert með Wolves og Charlton á Englandi, Belenenses í Portúgal og Vestsjælland í Danmörku en síðan með Fleetwood á Englandi í tvö ár áður en leiðin lá til Danmerkur á ný og í raðir SönderjyskE. Samtals hef- ur Eggert spilað 312 deildaleiki á ferlinum og 21 leik með A-landsliði Íslands, síðast vináttuleik gegn Sví- þjóð í janúar 2019. „Ég kann vel við mig hérna“  Eggert Gunnþór Jónsson hefur áhuga á að leika áfram með SönderjyskE  Samningurinn að renna út  Heldur öllum möguleikum opnum Ljósmynd/SönderjyskE Danmörk Eggert Gunnþór Jónsson kom til liðs við SönderjyskE frá enska liðinu Fleetwood Town fyrir rúmum þremur árum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.