Morgunblaðið - 28.03.2020, Page 48
G e i r s g a t a 4 - 5 1 9 4 4 9 0 - v i ð H a f n a r t o r g
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen)
Kringlunni 552 8600
Opið frá kl. 12 til 16
mánudag til laugardags
Lokað sunnudaga
567 0120
Pössum hvort annað.
Kær kveðja frá starfsfólki,
Saxófónleikarinn Tumi Árnason og trommuleikarinn
Magnús T. Eliassen koma fram á viðburðinum Tóma-
mengi í kvöld kl. 20 í samstarfi við Iðnó, Vodafone og
Vísi og verður tónleikum þeirra streymt í beinni á net-
inu og lokað verður í Mengi við Óðinsgötu meðan á því
stendur. Streymið fer m.a. fram á mengi.net, Youtube
og Facebook-síðu Mengis. Tekið verður á móti frjálsum
framlögum til listamannanna og má finna frekari upp-
lýsingar um þær stuðningsleiðir á vef menningarhúss-
ins Mengis.
Tumi og Magnús í Tómamengi
LAUGARDAGUR 28. MARS 88. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Við eigum eftir að vinna úr þessari stöðu sem upp er
komin. Það er einhvern veginn allt í biðstöðu. Allir eru
að bíða eftir að samkomubanni verði aflétt og hjólin
fari að snúast. Hvort sem það er hér eða erlendis,“
segir handknattleiksþjálfarinn Aron Kristjánsson í
samtali við Morgunblaðið.
Aron var á leið með landslið Barein á fyrirhugaða Ól-
ympíuleika í Japan í sumar. Þeim hefur nú verið frestað
og samningur Arons rennur út í haust. Aron er auk þess
búinn að ráða sig til Hauka á næsta tímabili. »40
Aron á eftir að funda með
vinnuveitendum sínum í Barein
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kvöldvakan Heima, stofutónleikar
Helga Björns og Reiðmanna vind-
anna, sló í gegn fyrir viku og verð-
ur því endurtekin með svipuðu
sniði í Sjónvarpi Símans, á út-
varpsstöðinni K100 og á mbl.is
klukkan átta í kvöld. Vilborg Hall-
dórsdóttir, eiginkona Helga, flutti
á eftirminnilegan hátt áhrifaríkt
ljóð frá Ítalíu,
en hjónin hafa
lengi verið
með annan
fótinn þar og
haldið
tengslum við
ítalska vini
sína.
Vilborg seg-
ir að þegar
ákveðið hafi verið að sýna Kvöld-
vökuna hafi hún nýlega fengið ljóð-
ið sent og nefnt það við Helga
hvort það ætti ekki heima í þætt-
inum. „„Jú,“ svaraði hann að
bragði og það var aldrei spurning.
Ég þýddi það því snarlega vegna
þess að í sýningu eins og þessari
er líka svo gaman að hlutirnir séu
alls konar.“
Útgöngubann
Írski munkurinn Richard Hed-
rick, sem býr á Ítalíu, samdi ljóðið,
sem nefnist „Útgöngubann“.
„Um allan heim vaknar fólk upp
við nýjan heim NÚNA,“ segir í
ljóðinu. Vilborg segir að það eigi
svo vel við um ástandið. „Allt er að
gerast núna,“ segir hún og bendir
á að ljóðið hafi farið sem eldur í
sinu í netheimum Ítalíu.
Hjónin voru saman í Leiklistar-
skólanum og hafa oft brugðið sér í
leik. Næsta verkefni Vilborgar er
hlutverk í kvikmynd Elvars Aðal-
steinssonar, Sumarljós og svo kom
nóttin, en stefnt er að tökum í júlí.
Annars er allt óráðið vegna
kórónuveirunnar, sem kemur í veg
fyrir að hjónin geti unnið við það
sem þau hefðu annars unnið við.
Vilborg á að vera fararstjóri á veg-
um Heimsferða í gönguferð á Ítal-
íu um mánaðamótin maí-júní en
óvíst er hvort ferðin verður farin.
„Ég hef engar tekjur meðan á
samskiptabanninu stendur en get
haldið áfram að skrifa og þýða,“
segir hún. „Svo hef ég boðið fram
aðstoð mína í sauðburði hjá vin-
konu minni í Gnúpverjahreppi, en
þar hef ég verið áður, skrifað leik-
rit og sett upp.“
Vilborgu er margt til lista lagt.
Hún samdi til dæmis ljóðið „Húsið
er að gráta – Mér finnst rigningin
góð“ 1978, sex árum áður en Helgi
og Grafík gerðu lag við textann,
sem nánast hvert mannsbarn á Ís-
landi þekkir. Hún hefur lengi verið
fararstjóri hjá ítölskum ferða-
mönnum og sungið mikið fyrir þá á
ferð um landið. „Mitt stærsta svið
er á Lögbergi og þar er góður
hljómburður,“ segir hún. Bætir við
að þar syngi hún alltaf ljóðið
„Þegar danski fáninn var týndur
við Öxará“ eftir Halldór Laxness.
„Það kann eiginlega enginn lagið
nema ég!“
Hún segir að ítölsku ferðamenn-
irnir kunni vel að meta sönginn á
íslensku. „Það skiptir svo miklu
máli að erlendir ferðamenn hafi ís-
lenskan leiðsögumann, því hann
getur tengt þá inn í tunguna,
menninguna, jarðfræðina og svo
framvegis. Sem leiðsögumaður er
ég allt í senn, bæði fjallkona og
forseti, nokkurs konar menningar-
sendiherra. Með það í huga er
óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld
hafi dregið lappirnar eins lengi og
raun ber vitni og ekki lögleitt
starfið. Eins og staðan er nú má
hundurinn minn leiðsegja. Enginn
getur bannað það!“
Fjallkona og forseti
Kvöldvakan Heima Vilborg Halldórsdóttir flytur ljóðið Útgöngubann sem
hefur farið sem eldur um sinu í netheimum á Ítalíu.
Vilborg Halldórsdóttir leikkona flytur ljóð og fer í sauðburð
Konur & Krínólín Vilborg er kona
margra hatta og hlutverka.