Morgunblaðið - 03.04.2020, Side 1
F Ö S T U D A G U R 3. A P R Í L 2 0 2 0
Stofnað 1913 80. tölublað 108. árgangur
GEFA 100
BRAUÐ Í TIL-
EFNI DAGSINS
HEIMAGERÐ
PÁSKAEGG SLÁ
ALLTAF Í GEGN
PÁSKAR 16 SÍÐURSANDHOLTSBAKARÍ 10
Guðni Einarsson
Þórunn Kristjánsdóttir
Kerti loguðu víða í Hveragerði í gær-
kvöld í minningu hjóna úr bænum
sem bæði létust af völdum kórónu-
veirunnar. Konan lést í síðustu viku
og maðurinn í gær.
„Það er gríðarlegur samhugur og
sorg í bænum,“ sagði Aldís Hafsteins-
dóttir bæjarstjóri. „Þetta er fólk sem
hefur búið hér lengi og á stóra fjöl-
skyldu, systkini, börn og barnabörn.
Mann grunaði ekki að þetta gæti
gerst svona.“
Íbúar í Hveragerði tóku sig saman
um að kveikja á kertum í görðum
klukkan 20 í gærkvöld og minnast
hjónanna um leið og þeir sendu inni-
legar samúðarkveðjur til ástvina
þeirra. „Kertaljós loga víða í görðum
bæjarbúa,“ sagði Aldís.
Innileg samúðarkveðja frá bæjar-
ráði Hveragerðis fyrir hönd bæjar-
stjórnar til þeirra sem nú eiga um
sárt að binda var birt á heimasíðu
bæjarins. „Stórt skarð hefur verið
höggvið í samfélagið hér í Hveragerði
vegna yfirstandandi faraldurs
Covid-19 og sorg ríkir í bænum okk-
ar,“ sagði í kveðjunni.
Fjögur hafa látist hér á landi af
völdum kórónuveirusjúkdómsins. Til-
kynnt var um andlát tveggja þeirra í
gær.
Ekkert barn af þeim 133 sem hafa
greinst með sjúkdóminn sem kórónu-
veiran veldur hefur veikst alvarlega.
Þetta segir Valtýr Stefán Thors,
barnasmitsjúkdómalæknir á Barna-
spítala Hringsins. Af þessum 133
börnum eru flest eldri en 10 ára eða
83, 50 eru yngri en 10 ára og af þeim
eru sex yngri en ársgömul. Ekki hef-
ur þurft að leggja neitt barnanna inn
nema dreng á Akureyri.
Fjögur dáin vegna kórónuveiru
Tvö andlát tilkynnt í gær Hvergerðingar syrgja hjón sem létust af völdum sjúkdómsins
Kerti loguðu um allan bæinn í gærkvöld Ekkert barn sem hefur smitast hefur veikst alvarlega
MKórónuveiran »2-4, 10-14
Hveragerði Kertaljós loguðu í
görðum bæjarbúa í gærkvöldi.
Tölvuvæðing Anna Hallgrímsdóttir, 102 ára íbúi á Hulduhlíð á Eskifirði, á nú myndsímtöl við vini sína
og ættingja með hjálp spjaldtölvu og þráðlausra heyrnartóla sem hjúkrunarheimilið fékk að gjöf.
Ljósmynd/Ragnar Sigurðsson
Myndsímtöl létta íbúum hjúkrunarheimila á Eskifirði og Fáskrúðsfirði lífið í heimsóknarbanninu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Mér finnst mjög gaman að geta talað við
fólk,“ sagði Anna Hallgrímsdóttir sem býr á
hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði.
Hún átti myndsímtal
við blaðamann í gegn-
um spjaldtölvu í gær.
Íbúar Hulduhlíðar og
Uppsala á Fáskrúðs-
firði geta nú rætt við
vini og ættingja og
séð þá í mynd. Það
léttir þeim lífið í
heimsóknarbanninu.
„Ég fæ mörg sím-
töl og er búin að fá mörg í dag, norðan af Ak-
ureyri og héðan og þaðan,“ sagði Anna. Hún
fæddist 7. ágúst 1917 og verður því 103 ára í
sumar. Anna var á öðru ári þegar spánska
veikin gekk árið 1918. Hún sagði að mikið
hefði verið talað um þá slæmu sótt í hennar
ungdæmi. En finnst henni kórónuveirusóttin
sem nú geisar eitthvað jafnast á við það sem
fólk sagði um spánsku veikina?
„Ég er nú kannski ekki manneskjan til að
segja til um það, en ég gæti trúað því að þetta
væri ekki ósvipað eftir því sem ég heyrði,“
sagði Anna. En hvað gerir hún fleira en að
tala við fólk í tölvunni?
Mælir eindregið með því að taka lýsi
„Bara ekki neitt nema að hugsa um lífið
eins og það er. Meira gerir maður nú ekki
þegar maður er orðinn svona fullorðinn,“
sagði Anna. Hverju þakkar hún góða heilsu
og það hvað hún ber aldurinn vel?
„Það er eins og ég hef sagt áður; ég hef
alltaf tekið inn lýsi og ég mæli eindregið með
því,“ sagði Anna.
Það voru Eskja á Eskifirði og Loðnu-
vinnslan á Fáskrúðsfirði sem gáfu fjórar
spjaldtölvur á hvort heimilanna, Hulduhlíð
og Uppsali. Þar búa samtals 40 manns.
Krossavík á Reyðarfirði gaf þráðlaus heyrn-
artól til að nota með spjaldtölvunum.
„Gaman að
geta talað
við fólk“
Er 102 ára og notar
spjaldtölvu í samtöl
Tímabundin skerðing mótfram-
lags atvinnurekenda til lífeyris-
sjóða myndi leiða til 772 króna
skerðingar á lífeyristekjum fólks á
meðaltekjum á mánuði, eftir 30 ár,
að gefnum vissum forsendum, sam-
kvæmt útreikningum hagdeildar
ASÍ. Ef ekkert yrði gert og það
leiddi til þess að kaupmáttur
minnkaði um 1% myndi það leiða til
4.300 króna tekjuskerðingar á
mánuði.
Skilningur virðist hafa verið fyr-
ir því innan samninganefndar Al-
þýðusambands Íslands og mið-
stjórnar að vandi atvinnulífsins er
mikill og hann bitnar á launafólki.
Eigi að síður var báðum þeim til-
lögum sem upp komu um að draga
tímabundið úr launakostnaði fyrir-
tækja hafnað. »9
Lífeyrir myndi
skerðast um 772 kr.
Við Tjörnina Lífeyrir skerðist í
framtíðinni ef mótframlag lækkar.
Búast má við
að versnandi
horfur í efna-
hagsmálum muni
hafa neikvæð
áhrif á afkomu
Landsvirkjunar.
Þetta segir Hörð-
ur Arnarson, for-
stjóri fyrir-
tækisins, í
samtali við Morgunblaðið. Hann
segir Landsvirkjun gera það sem
mögulegt er til að tryggja sam-
keppnishæfni viðskiptavina sinna.
Enn standi m.a. yfir viðræður við
Rio Tinto sem kvartað hefur undan
of háu raforkuverði. »12
Landsvirkjun veitir
rýmri gjaldfresti
Hörður Arnarson