Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.08.2020, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 29.08.2020, Qupperneq 38
Arthur C. Clarke orðaði það vel að þegar tækni yrði nægi- lega háþróuð yrði ekki hægt að gera greinarmun á henni og göldrum. Spennandi að taka þátt í að láta þau orð rætast. Á aðeins einu ári hefur íslenska sýndarveruleika-fyrirtækið Aldin selt yfir 100.000 eintök af leiknum Waltz of the Wizard: Extended Edition. Þar mætir notendum sérstök upplifun í gagnvirkum sýndarveruleika sem meðal annars gerir þeim kleift að beita margvíslegum göldrum,“ segir Hrafn Þórisson, fram- kvæmdastjóri Aldin. Waltz of the Wizard: Extended Edition, hefur auk þess setið á metsölulistanum fyrir sýndarveruleikabúnaðinn Oculus Quest undanfarna mánuði, en það er einn vinsælasti vélbún- aðurinn í dag og er framleiddur af Facebook, bætir hann við. „Þetta er stór áfangi fyrir okkur hjá Aldin, en við höfum nálgast sýndarveru- leika frá upphafi með langtíma- sýn og áherslu á nýsköpun. Fyrir vikið höfum við verið fyrstir á markað með ýmislegt, sem hefur skilað sér í stöðugri framþróun og leiðandi stöðu fyrir Aldin. Á þessu öllu höldum við áfram að byggja, ásamt góðum bakhjörlum og sam- starfsaðilum.“ Spennandi þróun Í Waltz of the Wizard öðlast notendur ýmiss konar töframátt, að sögn Hrafns, möguleikunum er sífellt að fjölga. Nýlega bættu til dæmis Aldin og Oculus við möguleikanum að spila með eigin höndum, án þess að nota stýri- pinna. „Þannig er hægt að fram- kvæma galdra á borð við að smella eigin fingrum til að láta hluti hverfa, skjóta eldingum, lengja fingur, breyta hlutum í froska og ýmislegt f leira skemmtilegt.“ Hann segir Waltz of the Wizard vera reglulega nefndan besta leik- inn fyrir berar hendur á Oculus Quest og leikurinn var til dæmis í fyrsta sæti á nýlegum lista frétta- miðilsins UploadVR yfir topp 10 bestu leikina. „Tæknin okkar gefur náttúrulegra notandaviðmót, auk þess að gera okkur kleift að skapa gagnvirkari sýndarheima. Við líkjum meira eftir því hvernig maður ímyndar sér að galdrar virkuðu ef þeir væru raunveru- legir, eins og bókstaflega að smella fingrunum til að láta hluti hverfa.“ Til þess hefur Aldin þróað sér- stakan hugbúnað fyrir hegðunar- greiningu og hlaut nýlega styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís. „Styrkurinn mun hjálpa okkur að opna nýja möguleika fyrir gagnvirkni, náttúrulegt viðmót og sýndar-karaktera. Vísinda- skáldsagnahöfundurinn Arthur C. Clarke orðaði það vel, þegar hann lýsti því yfir að þegar tækni yrði nægilega háþróuð yrði ekki hægt að gera greinarmun á tækni og göldrum. Það er spennandi að taka þátt í að láta þau orð rætast.“ Hlotið mikið lof Hrafn segir hönnun á sýndarveru- leikaefni eiga oft meira sameigin- legt með hönnun skemmtigarða en hönnun tölvuleikja. „Markmiðið er að nýta það sem þessi miðill getur umfram aðra og við leggjum sérstaka áherslu á að skapa sterka tilfinningu notenda um að vera staddir í öðrum veruleika.“ Aldin vinnur í beinu sam- starfi við tæknirisana Facebook, Valve og Sony, við gerð efnis fyrir sýndarveruleikabúnað og hafa vörur og tækni fyrirtækisins hlotið mikið lof fyrir nýsköpun og gæði. „Fyrsta útgáfa Waltz of the Wizard var ókeypis sýnishorn sem kom út árið 2016. Á árunum 2017-2020 var Waltz of the Wizard það sýndarveruleika-app sem fékk hæstu einkunn í stærstu leikja- Vaxandi tækifæri í sýndarveruleika Undanfarið ár hefur íslenska sýndarveruleikafyrirtækið Aldin selt yfir 100.000 eintök af leiknum Waltz of the Wizard: Extended Edition. Fram undan eru spennandi og skemmtilegir tímar. Hrafn Þórisson, framkvæmdastjóri Aldins og Gunnar Valgarðsson, þróunar- og rekstrarstjóri Aldins.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Í Waltz of the Wizard öðlast notendur ýmsan töframátt. Nú er líka hægt að spila með eigin höndum, án stýripinna. verslun á netinu, Steam, eða þar til leikurinn Half-Life: Alyx kom út fyrr á þessu ári.“ Stækka jafnt og þétt Um þessar mundir vinnur Aldin að því að stækka Waltz of the Wizard enn frekar og efla tækni- þróun og markaðsstarf. „Við erum búin að stækka jafnt og þétt fram að þessu og höfum fyrir vikið getað valið fólk mjög vandlega með áherslu á framúrskarandi hæfileika og dugnað,“ segir Gunnar Valgarðsson, þróunar- og rekstrarstjóri Aldins. „Nú, þegar aðgengi að sýndarveruleika fer ört vaxandi, verða næstu skref meira spennandi en nokkurn tíma. Við sjáum fram á gífurleg tækifæri til að halda leiðandi stöðu á sviði sýndarveruleika á heimsvísu,“ bætir hann við og bendir á að áhugasamir geti kynnt sér lausar stöður á vefsíðu Aldins. Gunnar segir umhverfið á Íslandi hafa reynst Aldini vel, en það sem helst hefur verið krefjandi er fjarlægðin við helstu sam- starfsaðila og aðra í iðnaðinum. „Við höfum verið lánsamir að finna mjög góða fjárfesta á Íslandi sem hafa mikla reynslu og skilning á sýndarveruleikasviðinu. Einnig hefur stuðningur Tækniþróunar- sjóðs Rannís verið lykilatriði, til að hægt væri að byggja sterkar, tæknilegar undirstöður og verð- mæta þekkingu til langs tíma,“ segir Hrafn og bætir við: „Það er algengt að fólk segi að VR sé bylt- ingarkennt því við getum stigið inn í leiki, en okkur finnst það eins og að segja að sjónvarp sé bylt- ingarkennt því við getum horft á leikara lesa útvarpsleikrit. Bylting þýðir ný tækni og nýtt efnisform. Við hugsum efnið frá grunni og smíðum svo hugbúnaðartæknina sem efnið krefst, en hún er marg- vísleg og mun stanslaust þróast næstkomandi áratugi.“ Hrafn bætir við: „Þegar við byrjuðum var almenn þekking í iðnaðinum mjög lítil, en við tókum þá nálgun að öll okkar efnisgerð og tækni yrði frá grunni gerð fyrir sýnarveruleikamiðilinn, frekar en að breyta einhverju sem var þegar til yfir í að virka fyrir sýndarveru- leika, sem margir reyndu. Nálgun okkar leiddi til þess að helstu tæknirisar í framleiðslu á vél- búnaði höfðu samband við okkur, þar sem við hönnum vörur sem fullnýta vélbúnaðinn og sýna vel þættina sem gera sýndarveruleika að einstökum miðli.“ Öflug tækniþróun og framtíðarmöguleikar Ein helsta áskorunin í framleiðslu fyrir sýndarveruleika eru allir þeir mannlegu þættir sem þarf að hugsa fyrir. „Þetta er ekki eins og að hanna hefðbundinn tölvuleik sem byggir á því að ýta á takka og horfa á skjá. Við þurfum að taka inn alls kyns þætti sem við koma því hvernig manneskja er í laginu, hreyfir sig, og bregst við – allt með það fyrir sjónum að skapa áhrifa- ríka upplifun. Á undanförnum árum höfum við byggt sterka tækniþekkingu og hugverk innan Aldins, sem gengur mikið út á að gera upplifunina náttúrulega og vekja sterkar tilfinningar. Tæknin sem þarf til hefur fengið talsverða erlenda umfjöllum og einnig hlotið bandarísk einkaleyfi. Á næstu árum mun sýndarveruleiki og viðbættur veruleiki snerta fleiri svið daglegs lífs. Það hefur verið gífurlega spennandi að taka þátt í að móta þetta svið og tækifærin munu fara vaxandi á næstu árum og áratugum,“ Nánari upplýsingar má finna á aldin.io. 8 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNÝSKÖPUN Á ÍSLANDI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.