Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 53
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Samgöngustofa leitar að fjármálastjóra stofnunarinnar
Fjármálastjóri ber ábyrgð á vinnu við fjárhagslegan rekstur, áætlanagerð,
reikningshald, uppgjör, innra eftirlit og gjaldskrá stofnunarinnar. Í starfinu felst
einnig regluleg skýrslugerð til framkvæmdastjórnar og forstjóra auk samskipta við
Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið, Ríkisendurskoðun og Fjársýslu ríkisins.
Fjármálastjóri fer með faglega forystu og verkstjórn á daglegum verkefnum
fjármáladeildar og aðstoðar við samningagerð og önnur fjármálatengd verkefni.
Fjármálastjóri fer með mannaforráð fjármáladeildar og vinnur náið með forstjóra
stofnunarinnar, sem er næsti yfirmaður. Starfshlutfall er 100%.
Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri
stofnun í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum upp
á góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.
Við leitum að
fjármálastjóra
Umsóknarfrestur
er til 15. sept. 2020
Hægt er að sækja
um starfið rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Háskólamenntun á sviði fjármála, líkt og viðskipta-
fræði, rekstrarfræði eða sambærileg menntun.
Þekking á opinberum fjármálum er skilyrði.
Góð þekking á Navision bókhaldskerfi er kostur.
Haldgóð reynsla af fjármálastjórnun og víðtæk
fjármálaþekking.
Góð tölvukunnátta er skilyrði og áhugi og ástríða
gagnvart Excel er mikill kostur.
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
og sjálfstæði í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
21250 – FORVAL UM HÖNNUN
OG BYGGINGU BÍLASTÆÐA- OG
TÆKNIHÚSS NÝS LANDSPÍTALA
VIÐ HRINGBRAUT (ALÚTBOÐ)
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um
þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og
byggingu bílastæða- og tæknihúss (BT), sem verður
hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík (sjá
www.nlsh.is). Er stærð byggingarinnar áætluð um 19.500
fermetrar sem skiptast á 8 hæðir, þar af 3 hæðir neðan-
jarðar. Fjöldi bílastæða samkvæmt tillögunni eru um
550. Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum og er
auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr.
23. gr. laga um opinber innkaup. Að loknu forvali mun
verkkaupi velja fimm (5) fyrirtæki úr hópi hæfra umsækj-
enda til þátttöku í lokuðu útboði.
Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á
verkinu muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði
tryggð fjármögnun á fjárlögum og alútboðið hljóti sam-
þykki Samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir í
samræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda nr.
84/2001.Forval þetta er án skuldbindingar fyrir verk-
kaupa hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða
áföngum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 6 mánuði
eftir að þær liggja fyrir. Kynningarfundur fyrir þátttak-
endur verður á forvalstíma.
Nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi
Ríkiskaupa, https://tendsign.is/
Leiðbeiningar:
https://www.rikiskaup.is/is/innkaup_og_utbod/upp-
lysingar-fyrir-bjodendur/skil-a-tilbodum-tendsign
ÚTBOÐ
Bo ga túni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Löggildingarnámskeið fyrir
mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar
Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr.
ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður
haldið í nóvember 2020 og verður námskeiðið í fjarkennslu.
Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 2. nóvember og
verða þeir opnir til og með 21.nóvember. Námskeiðinu lýkur
með staðbundnu rafrænu prófi laugardaginn 21.nóvember,
(allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breyt-
ingar).
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja
námskeiðið til endurmenntunar án prófs.
Umsókn fer fram á vef IÐUNNAR- fræðsluseturs
https://www.idan.is/ ásamt fylgigögnum eigi síðar en
mánudaginn 12. okttóber 2020.
Fylgigön eru:
1) afrit af prófskírteini umsækjanda
2) vottorð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um
réttindi til starfsheitis
3) vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga
um mannvirki
Nánari upplýsingar í síma 590 6400.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Borgartúni 21,
101 Reykjavík.
Til leigu 77 m2 húsnæði við bensínstöð
Atlantsolíu Kópavogsbraut 115.
Húsnæðið er á tveimur hæðum og
hefur áður hýst veitingasölu og
söluturn en er tilvalið fyrir margskonar
þjónustu eða rekstur.
115
KópAVOgSBRa
UT
ALLAr FYrIRSpURNiR SeNDIsT á
lEiGa@ATlANTsOLIa.iS
fYRIR 20. SEpTEMbER.
Til leigu 192.3 m2 húsnæði við
bensínstöð Atlantsolíu Háaleitisbraut
12. Húsnæðið er á tveimur hæðum,
hæð 93.8 m2 og kjallari/geymslur 98.5
m2 og er tilvalið fyrir margskonar
þjónustu eða rekstur.
12
HáaLEItISBrA
UT
ALLAr FYrIRSpURNiR SeNDIsT á
lEiGa@ATlANTsOLIa.iS
fYRIR 20. SEpTEMbER.