Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 10
Við viljum vekja
von. Þó er engin
hræðsla við að gera gagn-
rýnið grín þegar það á við, á
sama tíma og virðing fyrir
fólki er í hávegum höfð.
Reynir Lyngdal, leikstjóri
Lág endurgreiðsla
hér gerir það að
verkum að hingað er komið
með kvikmyndaverkefnin í
skamma stund, tekið upp
það sem þarf og meirihlut-
inn svo kláraður
annars staðar.
Kristinn Þórðar-
son, framleiðandi
hjá True North
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Ódýrt
Ódýrt
Þessi gula
króna ...
Ódýrt
SPARAR þÉ
R
A
U
R
IN
N
Ód
ýrt
Ódý
rt
Ódýrt
Pssst ...
elt’ana
KVIKMYNDIR Undanfarin miss-
eri hafa borist fréttir af veru stór-
stjörnunnar Wills Smith hérlendis
við upptökur á sjónvarpsþáttum,
auk þess sem senn hefjast tökur á
gríðarstóru verkefni á Suðurlandi
sem mikil leynd hvílir yfir. Upp-
bókuð hótel á Suðurlandi og leyfis-
beiðnir til sveitarfélaga um kvik-
myndatökur með þyrlum og 50-70
bílum er til marks um umfangið.
Kristinn Þórðarson, framleiðandi
hjá True North og formaður Sam-
bands íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda, segir að vissulega séu ýmis
verkefni að koma til landsins og að
það sé afar ánægjulegt enda mikil-
væg búbót fyrir íslenskt efnahagslíf.
„Ísland er með orðspor um að hér
gangi glíman við faraldurinn vel og
það laðar verkefni að. Þá hefur sam-
starfið við sóttvarnayfirvöld verið
afar gott en þar hefur verið hugsað í
lausnum,“ segir Kristinn.
Hann segir þó vonbrigði hversu
hægt miðar varðandi auknar fjár-
festingar í greininni, til dæmis með
hækkun endurgreiðsluhlutfalls.
Hann finni fyrir jákvæðum við-
brögðum frá stjórnvöldum en mál-
unum miði hægt.
„Þessi verkefni eru oft og tíðum
gríðarlega umfangsmikil og marg-
földunaráhrif þeirra eru mikil. Til
marks um það komu fjögur erlend
verkefni til Íslands á vegum True
North undir lok síðasta árs. Þau
veltu þremur milljörðum hérlendis
á meðan á upptökunum stóð og um
milljarður af þeirri upphæð rann
beint til ferðaþjónustunnar í formi
gistingar, tækjaleigu og veitinga.
Við teljum að það blasi við hversu
mikilvægt sé að laða slík verkefni
til Íslands þegar ástandið er með
þessum hætti í ferðaþjónustunni,“
segir Kristinn.
Eitt af verkefnunum sem var tekið
upp var myndin The Midnight Sky,
sem George Clooney leikstýrir og
leikur aðalhlutverkið í, og bendir
Kristinn á að oft gleymist að leikarar
verkefnanna greiði skatta hérlendis
þá daga sem vinnan standi yfir. Það
gerði Clooney samviskusamlega.
Samkvæmt lögum fá erlendir
kvikmyndaframleiðendur 25 pró-
sent af framleiðslukostnaði endur-
greidd. Það vilja íslenskir kvik-
myndaframleiðendur hækka upp
í 35 prósent sem þekkist í öðrum
löndum. „Það er að mínu mati frá-
bær fjárfesting en ekki styrkur.
Við höfum talað fyrir því lengi að
íslensk stjórnvöld fjárfesti í iðnað-
inum með því að hækka endur-
greiðsluhlutfallið. Við töldum það
sérstaklega mikilvægt á meðan
kórónaveirufaraldurinn gengi yfir,
enda er þessi bransi að breytast
hratt og mörg tækifæri í boði. Við
erum í harðri samkeppni við lönd í
kringum okkur sem eru með hærra
hlutfall,“ segir Kristinn.
Hann nefnir sem dæmi Írland
sem býður upp á 35 prósenta endur-
greiðsluhlutfall og hefur verið vett-
vangur gríðarstórra kvikmynda-
verkefna undanfarin ár. „Þar voru
Game of Thrones-þættirnir teknir
upp að stóru leyti, en aðeins lítill
hluti hérlendis. Lág endurgreiðsla
hér gerir það að verkum að hingað
er komið með kvikmyndaverkefnin
í skamma stund, tekið upp það sem
þarf og meirihlutinn svo kláraður
annars staðar,“ segir Kristinn.
Hann segir að mikil ásókn sé í
kvikmyndaver um allan heim og því
sé afar spennandi tækifæri að ráðast
í slíkar fjárfestingar hérlendis. Það
haldist þó í hendur við endurgreiðsl-
una. „Við erum með aðila sem vilja
ráðast í slíkar fjárfestingar hérlendis
strax ef endurgreiðslan er hækkuð.
Það væri bylting fyrir okkur því
að þá getum við fengið verkefni
hingað til lengri tíma eins og gert er
á Írlandi, frekar en að menn reyni að
vera í eins stuttan tíma og hægt er
hérlendis,“ segir Kristinn.
bjornth@frettabladid.is
Ísland fær litla sneið af stórri
köku kvikmyndaframleiðslu
Nokkuð hefur verið um að stór sjónvarps- eða kvikmyndaverkefni séu eða verði tekin upp hérlendis.
Um góða búbót er að ræða fyrir hagkerfið, en formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda
segir Íslendinga aðeins fá lítinn hluta af þessum verkefnum. Það geti breyst bregðist stjórnvöld skjótt við.
Von er á stórstjörnum hingað til lands í stórt kvikmyndaverkefni sem tekið verður upp meðal annars við Þjófafoss.
Formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda segir stór verkefni hafa margföldunaráhrif. MYND/GETTY
Reynir Lyngdal leikstjóri sér um
stjórnartaumana á Skaupinu í ár
eins og í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÁRAMÓTASK AUP RÚV tilkynnti
í gær hverjir myndu sjá um að
skemmta landanum um áramótin
með gerð Áramótaskaupsins. Hug-
leikur Dagsson, Lóa Hjálmtýsdóttir,
Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn
Guðmundsson, Bragi Valdimar
Skúlason og Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir sjá um skrifin og líkt og í fyrra
mun Reynir Lyngdal leikstýra.
Í tilkynningu frá RÚV segir
Reynir að vinnan við Skaupið sé ein
skemmtilegasta vinna sem hægt sé
að hugsa sér, sem leikstjóri og höf-
undur.
„Að skoða og greina samtímann
í gegnum grín og hafa tækifæri til
að vinna með fyndnasta fólki á
landinu eru forréttindi. Þegar mér
bauðst að gera Skaupið í ár eftir að
hafa gert, að því er mér finnst, vel
heppnað Skaup í fyrra, þurfti ég
ekki að hugsa mig lengi um.“
Hann bætir við að erfiðleikarnir
vegna kóróna veirufaraldursins og
afleiðingar hans fyrir allt samfélagið
kalli á nærgætni og efnistök sem
gleðja og hlýja. „Við viljum vekja
von. Þó er engin hræðsla við að gera
gagnrýnið grín þegar það á við, á
sama tíma og virðing fyrir fólki er í
hávegum höfð. Vonandi tekst okkur
sem að þessu vinnum að gera árinu
góð skil og skemmta landanum í
leiðinni,“ segir leikstjórinn. – bb
Landsþekktir
grínarar semja
Skaupið í ár
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð