Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 2
Við viljum fara í þá
átt, sem samfélag
hlýtur að vilja, að fólk geti
verið eins og það er og vill.
Bergþór Bjarki Guðmundsson
Biðlaun síðasta starfandi
læknis hjá stofnuninni eru
sögð ástæða vandans. Til
standi að auglýsa eftir
nýjum lækni í september.
Veður
Víða hægur vindur og þurrt og
bjart veður á landinu, en snýst í
suðaustan strekking og þykknar
upp með dálítilli súld í kvöld.
Hiti 7 til 13 stig. SJÁ SÍÐU 46
- síðan 1986 -
Skútuvogi 6
104 Reykjavík
Sími: 568 67 55
alfaborg.is
Kári Árnason verður fyrirliði gegn Englandi í dag
Kári Árnason stendur hér í viðtali við fjölmiðla, en íslenska landsliðið mætir því enska í dag. Þó enginn hafi smitast af COVID í gær hér á landi eru
reglur UEFA skýrar. Fréttamenn sem voguðu sér að mæta þurftu að láta mæla hitann og fylla út spurningalista áður en þeir fengu aðgang. Vera með
grímur og ekkert grín. Fjölmarga lykilmenn vantar í íslenska liðið en verði Jordan Pickford í marki Englendinga er von. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
SAMFÉLAG Íþrótta- og tómstunda-
ráð Garðabæjar samþykkti á fundi
sínum í vikunni að styrkja verkefni
um að koma kynfræðsluspilinu
Sleik til allra félagsmiðstöðva og
elstu bekkja grunnskóla í bænum.
Sleikur er þróaður af Elísu Gyrðis-
dóttur og Bergþóri Bjarka Guð-
mundssyni, starfsmönnum félags-
miðstöðvarinnar Elítunnar.
Spilið er kynfræðsluspil ætlað
fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára
og er tilgangur þess að opna vett-
vang fyrir mikilvægar umræður af
ýmsum toga sem fá ekki endilega
rými í daglegu tali.
Spilið er byggt á hugmyndafræði
um hálf-formlegt nám og gefur leið-
beinendum og kennurum tækifæri
til að ræða málefni tengd kynlífi,
samskiptum, einelti, klámi, jafn-
rétti og f leiru á skemmtilegan, en
jafnframt lærdómsríkan hátt.
Bergþór segir að spilið sé kyn-
fræðsluspil sem snúist bæði um líf-
fræðilegu hliðina á kynlífi en einnig
samskipti kynjanna, sjálfsmynd og
alls konar kynhneigð. „Við erum að
vinna með hvað unglingarnir vilja
heyra, læra og fræðast um,“ segir
Bergþór.
Spilið fer ekki í almenna sölu
heldur er ætlunin að selja það til
félagsmiðstöðva og skólastarfs,
enda hannað sem námsgagn. Þau
Bergþór og Elísa eru að sækja um
styrki til bæjaryfirvalda víða um
land, enda draumurinn að spilið fari
um allt svo allir unglingar á Íslandi
geti fræðst og lært. „Við byrjuðum
að sækja um hjá Garðabæ enda
erum við að vinna þar. Styrkurinn
kemur sér vel en við þurfum að fjár-
magna þetta frekar til að koma því
um allt land. Það er töluverður áhugi
á spilinu, við finnum það, þannig að
núna er þetta í því ferli að sækja um
styrki til að fjármagna lokahnykk-
inn,“ segir Bergþór.
Lokaverkefni hans í Háskóla
Íslands í tómstunda- og félagsmála-
fræði fjallaði einmitt um spilið. Þar
kemur fram að kynfræðsla komi
hvergi fyrir í aðalnámskrá grunn-
skóla og að greinin Viðhorf og þekk-
ing 16 ára unglinga á kynlífstengdu
efni, sýndi að skortur sé á þekkingu
unglinga um ýmis grunnatriði kyn-
lífs svo sem um getnaðarvarnir. Það
er því þörf á að uppfæra kynfræðslu
og kynvitund unglinga.
„Okkar vonir eru að leiðbein-
endur geti haldið betur utan um
umræðuna þessu tengda, því hún
er oft vandmeðfarin. Það er ekkert
alltaf einfalt að ræða svona hluti við
unglinga, en okkur finnst það mikil-
vægt,“ segir hann.
Þau Elísa hafa prófað spilið með
unglingunum sem þau eru að vinna
með og er spilið hannað í kringum
það sem þau hafa lært af þeim. Hvað
þau eru að tala um og vilja fræðast
um. „Samfélagið er að kalla eftir
meiri umræðu og fræðslu og ungl-
ingarnir líka.
Við viljum fara í þá átt, sem sam-
félag hlýtur að vilja, að fólk geti
verið eins og það er og vill. Það eru
mörg nýyrði, sem við heyrum ekki
dagsdaglega, í gangi og flestir skilja
ekki hvað er á bak við. Við erum öll
að komast að þessu saman því öll
erum við alltaf að læra hvernig það
er að vera til.“
benediktboas@frettabladid.is
Kynfræðsluspilið sem
unglingar vilja spila
Þau Elísa Gyrðisdóttir og Bergþór Bjarki, starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar
Elítunnar, hafa hannað spilið Sleik fyrir unglinga. Spilið er kynfræðsluspil og
styrkti Garðabær þau til að koma því í allar félagsmiðstöðvar bæjarins.
Elísa og Bergþór hafa prófað spilið með unglingunum sem þau vinna með og
hlustað á hvað þau tala um og vilja læra meira um. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
STJÓRNSÝSLA Enginn læknir hefur
verið starfandi hjá Vinnueftirlitinu
í tæplega eitt og hálft ár, þrátt fyrir
að það sé skylda samkvæmt lögum.
Kristinn Tómasson, fyrrverandi
læknir Vinnueftirlitsins og stað-
gengill forstjóra, hætti um mitt ár
2019. Síðan þá hefur enginn læknir
starfað við stofnunina.
Fréttablaðið greindi frá málinu í
umfjöllun um mikinn óróa meðal
starfsfólks stofnunarinnar, í nóvem-
ber á síðasta ári. Mátti rekja hluta
vandans við óánægju starfsfólks
til stjórnarhátta Hönnu Sigríðar
Gunnsteinsdóttur, sem var skipuð
forstjóri stofnunarinnar í lok árs
2018. Í umfjölluninni kom fram að í
nýju skipulagi stofnunarinnar væri
gert ráð fyrir sérstakri atvinnusjúk-
dóma- og heilbrigðisdeild og að
læknir myndi veita deildinni for-
stöðu í samræmi við lög.
„Áður en starfið verður auglýst
þótti ástæða til að greina nánar
hvers konar sérþekkingu þyrfti á
að halda innan eftirlitsins með til-
liti til þeirra verkefna sem gert er
ráð fyrir að læknir sinni,“ var haft
eftir Hönnu Sigríði í fréttinni.
Tæpu ári síðar hefur lítið gerst í
málinu og enn hefur enginn læknir
verið ráðinn til stofnunarinnar.
Í skrif legu svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins um ástæður tafar-
innar segir Vera Einarsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Vinnueftirlitsins, að
ástæðuna megi rekja til þess að fyrri
læknir hafi verið á biðlaunum fram í
maí 2020. Til standi að auglýsa eftir
nýjum lækni núna í september. – bþ
Brjóta lög með
fjarveru læknis
STJÓRNMÁL Ríkisábyrgð á lánum til
Icelandair var samþykkt á Alþingi
laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi
og er þingstörfum lokið í bili. Þing-
menn koma aftur saman til haust-
þings sem sett verður 1. október
næstkomandi.
Kveðið er á um ríkisábyrgðina í
fjáraukalögum en um er að ræða allt
að 15 milljarða ríkisábyrgð á lána-
línum til f lugfélagsins. Frumvarpið
tók þeim breytingum í meðförum
þingsins að hún nær aðeins til lána
vegna flugstarfsemi félagsins í milli-
landaflugi til og frá landinu en hana
megi ekki nýta til annarrar starf-
semi félagsins.
Tillögu Þórhildur Sunna Ævars-
dóttur um að frumvarp um strand-
veiðar kæmist á dagskrá fyrir
þinglok var hafnað en með frum-
varpinu er sjávarútvegsráðherra
veitt heimild að leyfa strandveiðar
nú í september, eins og smábátasjó-
menn hafa óskað eftir með vísan til
efnahagsástandsins. – aá
Þingið afgreiddi
ríkisábyrgðina
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð