Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 96
VIÐ ERUM HERBERGIS-
FÉLAGAR, BÚUM Í MIÐ-
BÆNUM OG VORUM ALLTAF AÐ
LENDA Í VANDRÆÐUM MEÐ
HVAÐ VIÐ ÆTTUM AÐ FÁ OKKUR
AÐ BORÐA.
Garndagar
20% afsláttur af öllu garni & hannyrða- vörum
Við g e r ð u m s m á rannsókn og gátum ekki betur séð en að Íslendingar fari helmingi sjaldnar út að borða en Banda-
ríkjamenn. Við höfum báðir búið
í Bandaríkjunum og þegar við
f luttum hingað fundum við fyrir
því að það eru í rauninni bara færri
tækifæri til þess að versla við veit-
ingastaði. Það vantar kannski f leiri
möguleika á einhverju sem þér líður
vel með að borða reglulega en tæmir
ekki alveg budduna þótt þú farir
nokkrum sinnum í viku,“ segir Sig-
mundur Helgason um matarmenn-
ingarbilið sem hann og félagar hans
vonast til að brúa með smáforritinu
EatUP.
Persónulegur samfélagsvandi
„Við vorum færðir niður í 25%
starfshlutfall í upphafi COVID
og fór aðeins að leiðast og ætli
það megi ekki segja að við séum
kannski báðir með svolítið frum-
kvöðlaeðli í okkur og langaði til
þess að nýta aukatímann til þess að
leysa eitthvert vandamál í íslensku
samfélagi. Þannig að við fórum að
hugsa. Við erum herbergisfélagar,
búum í miðbænum og vorum alltaf
að lenda í vandræðum með hvað við
ættum að fá okkur að borða.“
Lendingin varð svo að leysa einn-
ig persónulegt vandamál í leiðinni
með appi sem er ætlað að auðvelda
fólki að velja sér og panta „take
away“ mat hratt og örugglega á við-
ráðanlegu verði.
Góðu vanir
„Eftir að hafa búið í Bandaríkjunum
fannst okkur Ísland vera of langt á
eftir þegar kemur að raunhæfum
kosti á því að fara út að borða reglu-
lega, án þess að fara ítrekað á sömu
fimm skyndibitastaðina. Við sáum
okkur þarna leik á borði, að reyna
að hagræða í viðskiptum Íslendinga
við veitingastaði með EatUP og
leysa þannig samtímis tvö vanda-
mál,“ segir Sigmundur og segir fólki
annars vegar finnast of dýrt að fara
út að borða á Íslandi og hins vegar
fari Íslendingar ekki nógu oft út
að borða til þess að halda veitinga-
Skyndibitabylting boðuð með appi
Skert starfshlutfall vegna COVID varð til þess að herbergisfélagarnir Sigmundur Helgason og Daniel Pantuso
fengu tíma til þess að hugsa upp smáforritið EatUP sem þeir vona að muni bæta íslenska skyndibitamenningu.
EatUP-hópurinn
boðar matar-
menningar-
byltingu, en
hér standa þeir
Steinar Þór
Smári, Njáll
Skarphéðins-
son og Daniel
Pantuso að baki
Sigmundi Ragn-
ari Helgasyni
og Örnu Rut
Arnarsdóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
bransanum uppi, eftir að erlendum
ferðamönnum snarfækkaði.
„Markmið EatUP er að skapa
ný tækifæri fyrir Íslendinga til að
fara út að borða, með því að gera
það bæði hagstætt og hentugt. Það
mætti segja að þær aðstæður sem
COVID skapaði hafi haft mikil
áhrif á mótun þessarar hugmynd-
ar, enda sérstaklega tímabært að
skapa meiri „take out“- menningu
á Íslandi núna.“
100% vinna
EatUP virkar í stuttu máli þann-
ig að notandinn kaupir inneign
fyrir þrjár eða fleiri máltíðir í einu í
gegnum aðgang sinn í appinu. Hver
inneign kostar 1.290 krónur og hægt
er að skipta á henni og máltíð þegar
hentar.
„Við erum ný á markaðnum og
höfum það háleita markmið að
bjóða úrval gæðamáltíða á ein-
staklega lágu verði og einfalda líf
notenda okkar,“ segir í stefnuyfir-
lýsingu EatUP og Sigmundur segir
viðtökurnar fyrsta mánuðinn gefa
góðar vonir um framhaldið.
„Planið var að ná þessu fyrir 1.
september en við komum þessu
út 10. ágúst þannig að það gekk
bara mjög vel og við erum bara að
einbeita okkur að þessu 100% og
þetta er talsvert meira en maður
myndi höndla ef maður væri enn
þá að vinna einhvers staðar annars
staðar líka,“ segir Sigmundur en þeir
félagar hættu báðir í sínum skertu
störfum í maí þegar þeir ákváðu að
veðja á EatUP.
„Þetta er orðinn tæplega mán-
uður og hefur bara gengið vel. Við
erum búin að vera að fókusera á
miðbæinn með veitingastaðina
og erum alltaf að bæta við okkur.
Ég held við séum komin upp í ein-
hvers staðar á milli 40-50 máltíðir í
heildina, og á hverjum degi, og það
er hægt að velja úr um það bil 30
máltíðum á dag sem þú getur valið
úr. Og við stefnum á að stórauka
það líka og fara yfir í stærra svæði
en bara miðbæinn.“
Tímasparnaður
„Okkar pantanir eru gerðar fyrir-
fram þannig að til dæmis klukkan
11 þá eru allar pantanir komnar
fyrir veitingastaðina í hádeginu og
klukkan 16 í kvöldmat. Þannig að
okkar viðskiptavinir eru alla veg-
ana að panta með smá fyrirvara og
veitingastaðurinn hefur smá tíma
til að undirbúa sig og skipuleggja,
þannig að maturinn er tilbúinn
þegar þú mætir á staðinn, sýnir
pöntunarnúmer og færð matinn,“
segir Sigmundur um einn kost
appsins.
„Bara inn og út á 20 eða 30 sek-
úndum þannig að fyrir fólk snýst
þetta náttúrlega bara um að ein-
falda lífið og auka í rauninni lífs-
gæðin. Við ætlum bara að koma fullt
af góðum máltíðum til þín. Alltaf á
sama verði þannig að það þarf aldr-
ei að hugsa um verðið. Þú velur bara
það sem þér líst vel á þann daginn
og appið sýnir nákvæmlega á korti
hvar og hvenær þú átt að koma og
sækja. Þetta er bara tilbúið þegar
þú mætir þannig að það er hægt að
skipuleggja sig í kringum þetta.“
toti@frettabladid.is
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ