Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 70
Eftir mikið hrós og
hvatningu frá
honum sagði hann við
mig að ég yrði að hætta
að sauma í húfur og
nytjahluti, ég yrði að
fara að gera myndir.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Bílaríki, Akureyri
Glerárgötu 36
Sími: 461 3636
B
irt m
eð fyrirvara um
verð- og m
yndabrengl.
Verð: 8.990.000 kr. sjálfskiptur
Fimm ára
ábyrgð
+ 181 hestöfl, 420 Nm
+ 3ja tonna dráttargeta
+ Hátt og lágt drif
+ Byggður á grind
+ 7 manna
+ Sjálfstæð öðrun
+ Sjálfvirk öryggiskerfi
+ Fimm ára ábyrgð
Aukabúnaður á mynd: 33” hækkun - 30 cm. veghæð
Verð aukabúnaðar: 650.000 kr.
Jeppi ársins 2020
1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020
Opið í dag!benni.is
Nánari upplýsingar um búnað á
Harpa segist lengi hafa haft áhuga á handavinnu, en hún er dóttir handavinnukenn-
ara og því alin upp við alls konar
handavinnu.
„Ég byrjaði að sauma út í alls
konar fyrir nokkrum árum. Mjög
mikið í húfur. Ég gerði það lengi.
Svo á sýningu á handverki og
hönnun fyrir allmörgum árum
kom til mín myndlistarmaður.
Það var Þorvaldur Þorsteinsson
heitinn. Hann stoppaði lengi hjá
mér og eftir mikið hrós og hvatn-
ingu þá sagði hann við mig að ég
ætti að hætta að sauma í húfur og
nytjahluti, ég yrði að fara að gera
myndir. Annars myndi enginn
taka mark á mér,“ segir Harpa.
Hún segist aðeins hafa þurft að
melta þetta, en nokkrum mán-
uðum síðar fór að hún að sauma
myndir og hefur gert það síðan.
„Þetta tekur ægilegan tíma. Ég
er náttúrulega í fullri vinnu, þetta
er rosalega smágert og ég er mjög
lengi með hverja mynd. En ég fylgi
sem sagt ráðum hans.“
Harpa segist reyna að sauma
eitthvað á hverjum degi, þó að full
vinna geri það að verkum að hún
hafi ekki endalausan tíma til að
sinna útsaumnum.
„Ég reyni að sauma alltaf eitt-
hvað pínulítið áður en ég fer út í
daginn. Bara til að byrja á ein-
hverju sem er bara fyrir mig. Mér
finnst það rosalega gott, jafnvel þó
það séu bara nokkrar mínútur. Ég
sauma mjög oft á kvöldin og er þá
annað hvort að hlusta á sjónvarpið
eða hljóðbók. En þetta er allt
mjög smátt, ég er marga mánuði
með hverja mynd, ég er ekki mjög
afkastamikil,“ segir Harpa og hlær.
„Ég hef reynt að sauma stærra og
hugsað að það væri nú óskynsam-
legt að gera þetta svona smátt. En
svo fannst mér það ljótt. Ég verð
bara að vera ég sjálf, það er bara
minn stíll að gera þetta bara svona
pínulítið.“
Lífið í umhverfinu
Harpa er núna í haust að fara
að taka þátt í sýningu á vegum
svissnesku textílsamtakanna og
gallerísins Vielfaeltig-Produzent-
engalerie í Sviss. Á sýningunni
verða verk eftir 29 listamenn frá 13
löndum.
„Ég ákvað að þá myndi ég fara
að gera eitthvað í því að koma
verkunum mínum á framfæri. En
2020 er kannski svolítið sérstakt ár
til þess,“ segir Harpa hlæjandi.
„Ég sótti um að vera félagi í
alþjóðlegum samtökum útsaums-
listamanna og var tekin inn og var
mjög ánægð með það. Á síðunni
þeirra fann ég þessa sýningu, sótti
um að vera með á síðustu stundu
og var tekin inn þar líka, svo þetta
hefur gengið ágætlega þrátt fyrir
allt.“
Myndirnar sem Harpa er að gera
núna eru hluti af seríu og þær heita
allar Líf eða Life á ensku. Hún seg-
ist oft hafa í huga eitthvað ákveðið
sem myndirnar eiga að tákna. Hún
vill samt ekki útskýra það sérstak-
lega, svo fólk hafi möguleika á að
sjá það út úr myndunum sem það
vill.
„Fólk sér kannski eitthvað allt
annað en ég var að hugsa. En þetta
eru sem sagt áhrif af umhverfinu
og íslenskri náttúru. Þess vegna
heita þær Líf. Þetta er svona lífið í
umhverfinu.“
Harpa útskýrir að sýningin hafi
upphaflega átt að vera hluti af
stórri textílmessu í Þýskalandi en
það er nýbúið að aflýsa henni, eða
í það minnsta fresta henni.
„En sýningin verður örugglega í
Sviss. Það kemur svo í ljós hvar og
hvenær hún verður í Þýskalandi,“
segir hún.
Á vefsíðunni hoopatunframed.
wordpress.com má skoða verkin
eftir Hörpu sem verða á sýning-
unni í Sviss og verk hinna þátttak-
endanna.
Hver mynd
tekur marga
mánuði
Harpa Jónsdóttir byrjar daginn oft á
handavinnu. Hún saumar út fallegar
og listrænar myndir, en hugmyndirn-
ar að þeim sækir hún í íslenska nátt-
úru. Í haust sýnir hún útsaumsverkin
sín á alþjóðlegri sýningu í Sviss.
Harpa vill leyfa fólki að túlka verkin á sinn eigin hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Útsaumurinn er undir áhrifum frá íslenskri náttúru.
Verkin sem Harpa er að gera núna
eru hluti af seríu og kallast Líf.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R