Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 12
Upphæðin samsvarar
500 milljörðum íslenskra
króna en uppi eru efasemdir
um að simbabveska ríkið
geti staðið við samkomu-
lagið.
Gagnaver á
Hólmsheiði
Nánari upplýsingar og útboðsskilmálar
eru á reykjavik.is/lodir
Reykjavíkurborg leitar eftir kauptilboðum í byggingar-
rétt fyrir gagnaver á lóðinni Hólmsheiðarvegur 150.
Lóðin er rúmir 50 þús. fermetrar. Grunnflötur
bygginga sé ekki meiri en rúmir 25 þús. fermetrar.
Heimild verður fyrir spennistöð á lóðinni og kvöð er
um 8 metra gróðurbelti meðfram Hólmsheiðarvegi.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á
útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar kl. 14.00
þann 16. september 2020.
Byggingarréttur til sölu
SIMBABVE Hvítir bændur í Simbabve
munu fá bætur sem samsvara 3,5
milljörðum Bandaríkjadollara, eða
nærri 500 milljörðum íslenskra
króna, frá ríkisstjórn Simbabve. Er
þetta til uppbyggingar á landi sem
orðið hafði fyrir eyðileggingu vegna
ofsókna. Talið er að þetta sé liður
í að snúa við blaðinu frá tíð for-
setans Roberts Mugabe sem hvatti
til ofsókna skæruliðahreyfinga á
hvítum bændum og flæmdi marga
þeirra úr landi.
Samkvæmt samkomulagi for-
setans Emmersons Mnangagwa
við samtök bænda verður helm-
ingur upphæðarinnar greiddur út
á einu ári og hinn helmingurinn á
næstu fimm árum. Aðeins bændur
sem eiga nú land geta sótt í sjóðinn.
Mnangagwa sagði hins vegar að
þeir sem höfðu misst land í þjóð-
nýtingu gætu fengið land annars
staðar í bætur.
Fyrir sjálfstæði voru nærri 300
þúsund hvítir í landinu, sem þá
hét Ródesía, en í dag eru aðeins um
30 þúsund eftir. Flestir f luttu eða
f lúðu til Suður-Afríku en margir
voru drepnir af skæruliðum. Hvítt
fólk var svipt ýmsum réttindum og
Mugabe sagði einfaldlega að þessir
fyrrverandi nýlendukúgarar ættu
að fara aftur heim til Englands.
Mugabe var steypt af stóli árið 2017
eftir 30 ára valdatíð og lést tveimur
árum síðar.
Landeigendurnir sem tóku yfir
jarðirnar og kalla sig uppgjafar-
hermennina voru að stórum hluta
gamlir samstarfsfélagar Mugabe
úr sjálfstæðisbaráttunni. Þeir hafa
gagnrýnt samkomulagið harðlega.
Segja þeir það mismuna fólki á
grundvelli kynþáttar og þar að auki
grafa undan þeirri baráttu sem þeir
háðu fyrir frelsi. Mnangagwa telur
samkomulagið hins vegar nauðsyn-
legt til þess að bæta samskiptin við
Vesturlönd, en um áratuga skeið
komst Simbabve aðeins í heims-
fréttirnar fyrir spillingu og ofsóknir
á hendur hvítum bændum.
Þá hefur samkomulagið einnig
verið gagnrýnt vegna þess að Sim-
babve er bláfátækt land, þar sem
rúmur þriðjungur íbúanna á mjög
erfitt með að brauðfæða sig. Fyrir
rúmum áratug var hætt að nota
simb abveska dollarann þar sem
hann var orðinn verðlaus og gjald-
miðlar átta annarra landa notaðir í
daglegum viðskiptum. Landið sem
áður var stórútflytjandi í landbún-
aðarafurðum og góðmálmum er nú
orðið verulega háð innf lutningi á
matvælum og alþjóðlegri aðstoð.
Mesta bjartsýnin er bundin við
tóbaksframleiðslu og sölu til Kína.
Ekki eru allir sannfærðir um að
Mnangagwa og stjórn hans geti efnt
samkomulagið við hvítu bændurna
en hann hefur sagt að það verði fjár-
magnað með 30 ára erlendum lán-
tökum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Hvítir bændur fá bætur fyrir ofsóknir
Emmerson Mnangagwa, forseti Simbabve, hefur ákveðið að greiða hvítum bændum háar bætur fyrir áratuga ofsóknir og bændur
sem hafa verið flæmdir af jörðum sínum geta fengið nýjar. Er þetta gert til þess að milda afstöðu Vesturlanda gagnvart landinu.
Mnangagwa er umhugað að bæta samskipti við vesturveldin. MYND/GETTY
Almenningur fékk upplýsingar um
upptökurnar frá Edward Snowden.
BANDARÍKIN Bandarískur áfrýj-
unardómstóll hefur dæmt símaupp-
tökur þjóðaröryggisstofnunarinnar
NSA ólöglegar. Upptökurnar, sem
eru frá milljónum Bandaríkja-
manna, komust fyrst upp á yfir-
borðið árið 2013, fyrir tilstilli upp-
ljóstrarans Edwards Snowden.
Þegar þær litu fyrst dagsins ljós
fullyrtu fulltrúar NSA að upptök-
urnar hefðu þjónað lykilhlutverki
í stríðinu gegn hryðjuverkum, en
samkvæmt úrskurði áfrýjunardóm-
stólsins halda þær staðhæfingar
ekki vatni.
„Mér datt ekki til hugar að ég
myndi nokkurn tímann sjá dóm-
stóla okkar fordæma starfsemi NSA
sem ólöglega og í sama úrskurði
heiðra mig fyrir að af hjúpa þær,“
sagði Snowden á Twitter-reikningi
sínum, en hann hefur búið í útlegð í
Moskvu undanfarin ár. – atv
Upptökur NSA dæmdar ólöglegar
BA N DA R Í K I N Dagblað banda-
ríska hersins, Stars and stripes,
mun koma út í síðasta skipti þann
30. þessa mánaðar. Mark Esper,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, ákvað í upphafi þessa árs að
minnka fjárveitingu til blaðsins
og nú hefur Pentagon tilkynnt að
síðasta blaðið muni rúlla úr prent-
smiðjunni þann 30. september.
Alls hafa 15 þingmenn úr báðum
flokkum í Bandaríkjunum skrifað
Esper og beðið hann að endurskoða
ákvörðun sína, en hvorki hann né
Pentagon hafa haggað sinni ákvörð-
un. Flestallir þingmennirnir eru
fyrrvreandi hermenn og hafa lýst
yfir í hjartnæmum bréfum hvers
virði það var að fá fréttir hvar sem
var í heiminum. Stars and Stripes
hefur f lutt herfréttir fyrir banda-
ríska hermenn frá 1861 en það kom
út daglega þegar seinni heimsstyrj-
öldin braust út. – bb
Herinn hættir með dagblaðið sitt
Trúlega hafa farþegar þessa bíls verið að lesa Stars and Stripes. MYND/GETTY
Fimmtán þingmenn
hafa mótmælt ákvörðuninni
og skorað á ráðherra að
tryggja útgáfunni fjármagn.
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð