Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 50
SÉRFRÆÐINGUR Í ÁHÆTTUSTÝRINGU
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun og viðhald á líkönum, meðal annars
vegna útlánaáhættu og markaðsáhættu
Þátttaka í innramatsferli og gerð álagsprófa
Þátttaka í að móta og viðhalda stefnum og
ferlum
Upplýsingagjöf innanhúss og til ytri aðila
Hæfniskröfur
Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
Afburða greiningarhæfni og færni við úrvinnslu
og framsetningu gagna
Reynsla af forritun og gagnagrunnvinnslu er
kostur
Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á
íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Harðarson,
forstöðumaður áhættustýringar, brynjarh@lykill.is
Lykill | Síðumúla 24 | 108 Reykjavík | lykill.is | lykill@lykill.is | 540 1700
Sótt er um störfin í gegnum umsóknarvef
TM, sem fer með umsjón umsókna sem
móðurfélag Lykils, á umsokn.tm.is
Umsóknarfrestur er til og með
13. september 2020.
Lykill er dótturfélag TM og býður fjölbreytta
fjármögnunarþjónustu til einstaklinga og
fyrirtækja. Áhersla er lögð á að tryggja
viðskiptavinum skjóta þjónustu, hagstæð
kjör og öryggi í viðskiptum.
Hjá Lykli starfar hópur kvenna og karla
með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og
áhugamál. Það er Lykli sérstakt kappsmál
að skapa lifandi og kraftmikið starfs-
umhverfi og vera aðlaðandi vinnustaður
fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk.
LÖGFRÆÐINGUR
Helstu verkefni og ábyrgð
Alhliða lögfræðiþjónusta fyrir félagið
Ábyrgðaraðili á grundvelli laga um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka
Þátttaka í þróun á vörum Lykils
Samskipti við opinbera aðila og viðskiptavini
Hæfniskröfur
Starfsreynsla sem nýtist í starfi
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
Lögmannsréttindi eru æskileg
Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og
riti á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Árni Huldar
Sveinbjörnsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs,
arni@lykill.is
Lykill leitar að tveimur öflugum sérfræðingum til að taka þátt í að móta nýja framtíð í fjármálaþjónustu. Við leitum
að einstaklingum með brennandi áhuga á starfsemi fjármálafyrirtækja ásamt metnaði til að takast á við fjölbreytt
og krefjandi úrlausnarefni. Ef þú býrð yfir sjálfstæði og frumkvæði ásamt framúrskarandi samskiptahæfileikum þá
hvetjum við þig til að sækja um starfið.
TVÖ STÖRF SÉRFRÆÐINGA HJÁ LYKLI FJÁRMÖGNUN
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR