Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 84
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
419
„Óóó!“ skrækti Róbert af
hræðslu þegar hann sá
Dýradýrið. „Það er
hræðilegt, það borðar
okkur örugglega!“ Það
hnusaði í Kötu. „Bleyða,
eins og alltaf.“
„Þá er það næsta þraut,“
sagði Konráð. „Hún er
svona: Hvað er þetta
Dýradýr mörg dýr og
hvaða dýr?“ „Dýradýr?
Hverskonar bull er nú
þetta,“ hrópaði Róbert.
„Það er ekki til neitt
sem heitir Dýradýr!“
En Konráð var ekki eins
viss. Hann skimaði í
kringum sig, og jú.
„Sjáðu Róbert!
Þarna er það,
Dýradýrið!“
Hversu mör
g
og hvaða dý
r
sérð þú í þe
ssu
Dýradýri?
?
?
?
?
Lausn á gátunni
Dýradýrið er fimm dýr, risaeðlan T Rex, hreindýr,
hákarl, köttur og páfugl?
Inga Guðný hefur vaðið yfir ár og lent í vondu veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hún er kölluð Inga Guðný en heitir
fullu nafni Ingibjörg Guðný Guð-
mundsdóttir og er tíu ára.
Hver eru helstu áhugamálin
þín, Inga Guðný? Ég hef áhuga á
íþróttum, til dæmis sundi, fótbolta,
skíðum og að hlaupa. Svo er gaman
að fara í útilegur og ferðast.
Ert þú búin að fara víða um
Ísland? Já, ég ferðaðist um Norður-
og Austurland í sumar og var í þrjár
vikur í ferðinni. Svo hef ég farið í
tvær langar ferðir með Ferðafélagi
barnanna. Önnur var fimm daga
fjölskylduferð um Laugaveginn
2018 og hin var fjögurra daga ferð
um Víknaslóðir núna í sumar. Svo
hef ég farið í tvær styttri ferðir í
kringum Mosfellsbæ.
Hver var erf iðust? Ferðin um
Víknaslóðir var erfiðust, það var
mikið af brekkum upp og niður.
En skemmtilegust? Laugavegur-
inn var skemmtilegur. Við fengum
mikið að vaða yfir ár þar og gengum
í alls konar færi, snjó, sandi, möl og
grasi.
Fara foreldrarnir með þér í ferð-
irnar? Já, og tveir eldri bræður
mínir líka.
Er einhver staður á landinu sem
þér finnst öðrum fallegri? Mér
finnst Þingvallavatn fallegt og
útsýnið af Úlfarsfellinu.
Tekur þú myndir á ferðalög-
unum eða skrifar um þau þegar
þú kemur heim? Nei, mamma og
pabbi taka myndir. Ég tek ekki sím-
ann með í gönguferðir, það er bara
vesen.
Hefurðu lent í vondu veðri? Já,
þegar við vorum að labba Víkna-
slóðir í sumar þá fengum við einu
sinni mikinn vind. Við krakkarnir
áttum þá að leiða foreldra okkar og
allir áttu að labba þétt saman.
Einhverju öðru ævintýralegu? Það
var mikið ævintýri að fara á skíði
til Austurríkis í fyrsta sinn. Fjöllin
voru svo há og við urðum að taka
kláf langa leið upp á skíðasvæðið
þar sem voru alls konar skíðalyftur
og brekkur.
Er einhver ferð fram undan hjá
þér? Mig langar að labba Fimm-
vörðuháls næsta sumar en núna í
september ætla ég að fara að smala
kindum í Dalasýslu með fjölskyldu
minni.
Hvað finnst þér best í nesti? Besta
ferðanestið er göngunammið í
brúsa og líka f latkaka með hangi-
kjöti og heitt kakó.
Hvernig finnst þér skemmtilegast
að leika heima? Heima finnst mér
gaman að dunda mér í herberg-
inu mínu, föndra, leika við vin-
konur mínar og hamsturinn minn,
Hnoðra.
Ætla að fara að
smala kindum
LAUGAVEGURINN VAR
SKEMMTILEGUR. VIÐ
FENGUM MIKIÐ AÐ VAÐA YFIR
ÁR ÞAR OG GENGUM Í ALLS
KONAR FÆRI, SNJÓ, SANDI, MÖL
OG GRASI.
Uppskeruhátíð sumarlesturs Borgarbókasafnsins
Uppskeruhátíð sumarlesturs Borgarbókasafnsins – Inn á nýja bóka-
braut, var haldin með pompi og prakt á laugardaginn var. Í sumar
hafa börnin verið mjög dugleg að lesa og tóku rétt yfir þúsund börn
þátt í sumarlestri safnsins. Vikulega hafa verið dregnir út lestrar-
hestar sem hafa birst á Krakkasíðu Fréttablaðsins.
10 heppnir þátttakendur voru dregnir út í lokaútdrættinum og fengu
þeir, líkt og lestrarhestar sumarsins, vinning frá Bókabeitunni.
Aðalvinninginn frá Bókmenntaborginni, gjafabréf fyrir tvo í Fly over
Iceland.ís fyrir tvo og verðlaunabókina Blokkin á heimsenda, hlaut
Nikola Júlía Azymańska, 10 ára nemi í Austurbæjarskóla.
Jón Víðis töframaður vakti lukku á uppskeruhátíðinni.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar, Nikola Júlía?
Bækurnar um Svörtu kisu.
Hvaða bók var skemmtilegust
sem þú last í sumar? Svarta kisa
fer í bað.
Hvaða bók langar þig að lesa
næst? Gulli gullfiskur.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Mála og teikna. Ég er í
Myndlistarskóla Reykjavíkur.
Hvern ætlar þú að taka með
þér í ævintýraferðina sem
þú vannst í sumarlestrinum?
Systur mína.
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR