Fréttablaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 20
FÓTBOLTI Rétt eins og Erik Hamrén
hefur Gareth Southgate, þjálfari
enska landsliðsins, þurft að smíða
saman nýtt lið í aðdraganda leiksins
gegn Íslandi í dag, enda eru margir
af reynslumestu leikmönnum liðs-
ins fjarverandi. Alls eru sjö leik-
menn í hóp enska liðsins sem gætu
fengið eldskírn sína með landslið-
inu í Laugardalnum í dag.
Raheem Sterling, leikmaður
Manchester City, er leikjahæsti leik-
maður enska hópsins með 56 leiki
og er einn átta leikmanna sem eiga
að baki meira en tíu leiki fyrir hönd
enska landsliðsins, ásamt Harry
Kane sem kemur til með að bera
fyrirliðabandið í dag. Þeir eru einn-
ig tveir af fáum sem eru enn í enska
landsliðshópnum frá fræknum 2-1
sigri Íslands á Englandi í útsláttar-
keppni EM 2016 ásamt Eric Dier og
Kyle Walker.
Walker og Sterling eru einu tveir
leikmennirnir í enska hópnum
sem hafa leikið á Laugardalsvelli.
Sterling var á skotskónum þegar
Manchester City lék æfingaleik hér
á landi fyrir þremur árum síðan.
Flestir af leikmönnum enska
landsliðsins leika í úrvalsdeildinni,
eða 21 leikmaður af 23. Aðeins
Jadon Sancho, leikmaður Dort-
mund og Kieran Trippier, leikmaður
Atletico, leika utan Englands. – kpt
Sjö nýliðar í
enska hópnum
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HANDBOLTI Strákarnir okkar í
handboltalandsliðinu fá að vita í
dag hverjir væntanlegir andstæð-
ingar liðsins verða á HM í handbolta
sem fer fram í Egyptalandi í byrjun
næsta árs. Þetta er í sjötta skiptið í
röð sem Ísland leikur í lokakeppni
HM eftir að hafa lent í ellefta sæti
í Danmörku og Þýskalandi í fyrra.
Strákarnir okkar áttu að mæta
Sviss í umspilsleikjum fyrr í sumar
en vegna kórónaveirufaraldursins
var þeim leikjum aflýst. EHF ákvað
þá að niðurröðun liða á Evrópu-
mótinu fyrr á þessu ári myndi ráða
hvaða lið færu á HM. Þar lenti Ísland
í ellefta sæti, sem dugði Íslandi til að
komast á tólfta stórmótið í röð.
Þetta verður í fyrsta sinn sem 32
þjóðir taka þátt í lokakeppni HM
og verður Ísland í þriðja styrkleika-
flokki þegar dregið verður í riðlana
í Kaíró í dag. – kpt
Dregið í riðla
fyrir HM í dag
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100
eða á heilbrigdi@rekstrarland.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
83
08
8
ABENA ÞVAGLEKAVÖRUR
FÁST Í REKSTRARLANDI
samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands og Ríkiskaupum
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17.
Abena hjálparvörurnar við þvagleka eru alhliða
lausnir fyrir alla þá sem glíma við þvagleka.
Sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val og veita
persónulega og faglega þjónustu. Skírteinishafar
geta leitað beint til Rekstrarlands.
Við komum vörunum heim til notenda.
FÓTBOLTI Tæplega 300 dögum eftir
síðasta keppnisleik karlalands-
liðsins í knattspyrnu fá strákarnir
okkar strembið verkefni í dag þegar
England heimsækir Laugardalsvöll
í fyrsta leik liðanna í Þjóðadeild
UEFA. Bæði lið sakna lykilleik-
manna í dag en ljóst er að íslenska
liðið þarf að vera á tánum frá fyrstu
sekúndu til leiksloka til að stöðva
ógnarsterka framlínu enska liðsins.
Englendingar höfðu orð á því á
blaðamannafundum fyrir leik að
þeir væru enn með óbragð í munni
eftir tapið gegn Íslandi á EM 2016
og gekk fyrirliðinn Harry Kane svo
langt að segja að það væri versta tap
ferilsins sem þýðir að þeir koma í
hefndarhug í fyrstu viðureign lið-
anna á íslenskri grundu í 38 ár.
Leikurinn er mikilvægur hluti
undirbúnings þjálfarateymisins
fyrir umspilsleikina gegn Rúmeníu
næsta haust. Erik Hamrén fær ekki
f leiri leiki til að undirbúa liðið og
skoða leikmenn áður en komið er
að hreinum úrslitaleikjum um sæti
á Evrópumótinu 2020.
Íslenska liðið náði sér aldrei á
strik í fyrsta leik Þjóðadeildarinnar
fyrir tveimur árum í fyrsta leiknum
undir stjórn Hamrén. Þrátt fyrir það
segist Hamrén ekki vera óttasleginn
fyrir komu enska liðsins.
„Í starfi knattspyrnustjóra er
ekki hægt að endast lengi ef maður
finnur fyrir hræðslu fyrir leiki en ég
ber vissulega virðingu fyrir enska
landsliðinu. Eftir leikinn í Sviss, Í
Þjóðadeildarinni og í undankeppni
EM sýndum við mun betri spila-
mennsku þrátt fyrir að við höfum
yfirleitt saknað einhverra lykil-
leikmanna,“ sagði Hamrén og hélt
áfram:
„Ef við erum raunsæir er England
líklegra á blaði miðað við úrslitin
sem þeir hafa náð í undanfarið og
leikmannahópinn en fótboltinn fer
ekki alltaf eftir bókinni. Ísland hefur
sýnt það áður og við vonumst eftir
öðrum óvæntum sigri.“
Fjórir af ellefu leikjahæstu leik-
mönnum karlaliðsins, Ragnar Sig-
urðsson, Aron Einar Gunnarsson,
Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg
Guðmundsson, eru fjarverandi í
dag. Samanlagt eiga þessir fjórir
330 leiki að baki. Þegar litið er til
baka er ekki hægt að finna keppnis-
leik hjá karlalandsliðinu í þrettán ár
þar sem þessir fjórir, Ragnar, Aron
Einar, Gylfi Þór og Jóhann Berg, hafa
allir verið fjarverandi á sama tíma.
Til þess þarf að fara aftur til leiks
Íslands og Kýpur árið 2007, einum
leik áður en Ragnar lék fyrsta
keppnisleik sinn í undankeppni EM
2008. kristinnpall@frettabladid.is
Fara óhræddir inn í verkefnið
Vængbrotið lið Íslands hefur leik í Þjóðadeild UEFA gegn Englandi í dag. Tvö ár eru liðin síðan Ísland var
rassskellt í fyrsta leik Eriks Hamrén og líkt og þá eru mörg af stærstu nöfnum hópsins fjarverandi í dag.
Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson einbeittur á svip á æfingu landsliðsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Leikurinn í dag er aðeins
annar keppnisleikurinn sem
miðvörðurinn Ragnar
Sigurðsson missir af undan-
farin níu ár.