Vísbending - 20.12.2016, Qupperneq 10
PÁLL ÁSGEIR
ÁSGEIRSSON
BLAÐAMAÐUR
SKÁTASTÚLKAN
SEM VARÐ ÚTGERÐARMAÐUR
Rakel Olsen í Stykkishólmí hefur lifað tímana tvenna í margvíslegum skilningi.
Hún ólst upp í Keflavík en kynntist ungum athafnamanni úr Stykkishólmi gegnum skátastarfið
og fluffi vestur. Hún hefur verið ein fárra kvenna í framvarðasveit útgerðar og fiskvinnslu
og er orðlagður stjórnandi og gcetinn.
Rakel Olsen fæddist í Keflavík árið 1942 og er því nálægt
því að verða 7 5 ára gömul þegar þetta er ritað. Hún er hálfur
íslendingur og hálfur Færeyingur, önnur í röð flögurra
bama sem Ole Olsen frá Tóftum á Austurey í Færeyjum
og Þóra Gísladóttir, kona hans, frá Eskifírði eignuðust saman.
Rakel ólst upp á hefðbundnu íslensku heimili í Keflavík en faðir
hennar var sjómaður. Hún lauk námi í bamaskóla og gagnfræðaskóla
í Keflavík og tók virkan þátt í blómlegu skátastarfi sem skátafélagið
Heiðabúar hélt úti í Keflavík á þessum ámm.
Árið 1960 þegar Rakel var 18 ára gömul má segja að örlög
hennar hafi ráðist. Þá fór hún ásamt félögum sínum í Heiðabúum
á svokallaðan Gilwellskóla austur að Úlfljótsvatm. Þetta er nám
eða námskeið ætlað skátum, 18 ára og eldri, sem vilja taka að sér
leiðbeinendastörf innan hreyfingarinnar. Á þessu sama námskeiði
var einnig ungur maður vestan úr Stykkishólmi, skátaforingi þeirra,
í sömu erindagjörðum.
Þetta var Ágúst Sigurðsson, einkasonur Sigurðar Ágústssonar
þingmanns og athafnamanns í Stykkishólmi og Ingibjargar Helga-
dóttur. Ágúst var átta árum eldri en Rakel en þau felldu hugi saman
og þremur árum seinna, árið 1963, flutti Rakel vestur í Stykkishólm,
giftist Ágústi og þau áttu samleið þar til hann féll frá 8. mars 1993.
lengst af sinnar starfsævi. Ágúst þessi var ættaður austan úr
Hreppum, bróðir hins landsfræga klerks, Ama Þórarinssonar. Sá varð
ódauðlegur þegar Þórbergur Þórðarson rithöfundur skráði ævisögu
hans sem er einstök í sinni röð. Á sínum tíma var sagt að þar hefði
lygnasti maður landsins sagt frá en sá trúgjamasti fært í letur. í þeirri
ódauðlegu bók em skemmtilegar sögur af „Gústa bróður“ sem var
sérlega orðheppinn og lífsglaður maður.
Sigurður Ágústsson, tengdafaðir Rakelar, byijaði ungur að
fást við eigin rekstur m.a. loðdýrarækt og útgerð. Þann 18. febrúar
1933 kaupir hann á uppboði þrotabú Tang&Riis, sem var hefð-
bundin bændaverslun, sem gat rakið sögu sína aftur til dönsku
einokunarverslunarinnar og Clausensverslunar. Þrátt fyrir að við
miðum stofnun fyrirtækisins við árið 1933 má með góðum vilja
halda því fram að fýrirtækið sé í rauninni enn eldra. Meðan Sigurðar
naut við var íyrirtækið rekið í hans nafni en árið 1976 var því breytt í
hlutafélag í eigu íjölskyldunnar og þannig er eignarhaldið enn í dag.
„Það em sjálfsagt ekki mörg fyrirtæki íslensk sem hafa verið
með óbreytt eignarhald svo lengi. Ætli við séum ekki eitt af
fáum fyrrrtækjum sem hefur haldið saman í rekstri svo lengi án
utanaðkomandi hluthafa,“ segir Rakel.
Erfðaprinsinn í Hólminum
Ágúst var á þessum tíma einn af efnilegustu sonum Stykkishólms,
gróinn heimamaður, einkabam foreldra sinna sem voru atkvæðamikil
í atvinnulífi og félagsmálum síns héraðs.
Sigurður faðir hans var fæddur 1897, sonur Ágústs Þórarinssonar
kaupmanns og verslunarstjóra sem stýrt hafði verslun í Hólminum
Með mörg járn í eldinum
Sigurður fékkst við marga ólíka þætti í rekstri sínum. Hann rak
frystihús, refa- og minkarækt, sláturhús, bakarí, bifreiðastöð, bænda-
verslun og hóf að frysta bolfisk 1942. Bændaverslunin var rekin
nákvæmlega eins og kaupfélag og reyndar með líku sniði og danskir
kaupmenn höfðu gert á íslandi um aldir. Bændur lögðu inn afurðir
10 | VÍSBENDING