Vísbending - 20.12.2016, Page 13
Ég vil að allir njóti eigin verðleika og konur og karlar takist saman á við sem flesta hluti.
Það kaupir silunginn í 25-30 kílómetra radíus, slátrar og heitreykir
og svo er afurðunum ekið á markað í Evrópu. Helstu kaupendumir
eru í Þýskalandi. Þessi tvö dönsku fyrirtæki voru svo sameinuð og
hefur rekstur þeirra gengið alveg piýðilega og veltan mun meiri en
hjá íslenska móðurfyrirtækinu. Með í kaupunum fylgdi verksmiðja
eða verksmiðjuhúsnæði sem hætt var að nota og í þetta húsnæði var
flutt kavíarverksmiðja sem Sigurður Ágústsson ehf. hafði rekið í
Stykkishólmi í allmörg ár.
Framkvæmdastjórinn heitir Esben Andersen og var áður starfs-
maður Maran Seafood í Hirtshals og má segja að hann hafi fylgt með
í kaupunum þegar Sigurður Ágústsson eignaðist það.
Esben fylgdi fyrirtækinu í gegnum ferlið þegar verið var að byggja
upp fyrirtækin í Danmörku og er framkvæmdastjóri í náinni samviimu
með Sigurði Ágústssyni jr.
Rakel tekur við
Eflir fráfall Ágústs árið 1993 tók Rakel við stjóm fyrirtækis fjöl-
skyldunnar og hefur vakað yfir því síðan.
Rakel hefur stýrt þessu gamalgróna fjölskyldufyrirtæki gegnum
miklar breytingar og má segja að hún hafi marga fjöruna sopið á þeim
vettvangi. Hún hefur alltaf vakið athygli fýrir stefnufestu, íhaldssemi
og ráðdeild i rekstrinum. Fyrir utan að stjóma hefur hún tekið virkan
þátt í starfi ýmissa samtaka sem tengjast sjávarútveginum og má
segja að hún hafi látið að sér kveða á félagslegum vettvangi innan
greinarinnar.
Á fyrsta áratug 21. aldarinnar fóm mörg útgerðarfyrirtæki með
himinskautum í ýmsum útrásarævintýrum og hlutafjárútboðum en
hinir varkám Hólmarar létu sér fátt um finnast og héldu áfram að gera
það sem þeir vom vanir að gera.
Árin eftir hrun þau bestu fyrir sjávarútveginn
-En hvað með bankahrunið? Hvemig kom það við þetta gamalgróna
fj ölskyldufyrirtæki?
„Bankahrunið kom illa við okkur öll. Við megum þó þakka fýrir
að við erum enn ein með eigirarhaldið á fyrirtækinu en það vom allir
þolendur í hruninu.
-Kom hrunið þér jafn mikið á óvart og öðrum?
„Algerlega. Ég var í útlöndum og horfði bara á Geir Haarde segja:
Guð blessi ísland og vissi jafhmikið og hver annar um það sem var að
gerast. Ég átti ágætar vinkonur í bankageiranum og ég held að þetta
hafi komið flatt upp á alla og það vildi enginn trúa þessu.“
-Er það sanngjamt mat að árin eftir hrun vegna falls krónunnar hafi
verið sjávarútveginum sérlega góð og jafnvel þau bestu ffá upphafi?
„Það er ekki fjarri lagi. Það hefur gengið alveg ágætlega í
nokkur ár en nú er ástandið að breytast mjög hratt til hins verra.
Styrking krónunnar er útflutningsgreinunum mjög erfið ekki síst
sjávarútveginum. En það talar enginn um það heldur bara um auknar
álögur á greinina.
Það vom fengnir spekúlantar á sínum tírna til þess að reikna út
hveijar álögumar ættu að vera á sjávarútveginn og þeir reiknuðu út
hvað greinin þyldi. En það talar enginn um að veiðigjöldin ættu að
lækka nú þegar staðan er að versna.“
VÍSBENDING I 13