Vísbending - 20.12.2016, Síða 15
Gömlu húsin hafa verið mitt sérstaka áhugamál.
-Myndir þú leggja fyrir þig rekstur ef þú værir ung í dag?
„Ég hef alltaf haft mikla aðlögunarhæfileika og haft gaman af því
sem ég er að fást við svo svarið er líklega já. Ef gott skipulag og regla
er á hlutunum þá er ég alltaf sátt við vinnuna. Svo er gott starfsfólk
afskaplega mikilvægt og brýnt að hafa gott samband við það.“
Er ekki femínisti
-Rakel hefur verið ein örfárra kvenna sem stýrt hafa sjávarútvegs-
fyrirtækjum. Fann hún einhvem tímann fyrir því að vera í þeirri stöðu
og fann hún fyrir feðraveldinu í sjávarútveginum?
„Nei aldrei nokkum tímann. Ég átti mann sem dró mig alltaf með í
það sem hann var að gera og vakti áhuga hans meðan aðrir vildu helst
að konan væri heima bakvið eldavélina. Þetta gerði tengdafaðir minn
líka og ég fór fljótlega að sækja allskonar fúndi og kynntist þessum
körlum vel sem á margan hátt vom brautryðjendur í íslenskum
sjávarútvegi á síðustu öld.
Ég er ekki kvenréttindakona í femínískum skilningi orðsins og
er alls ekki alltaf sammála kynsystrum mínum. Mér fannst það til
dæmis fráleitt þegar þeim tókst að drösla því gegnum Alþingi að 40%
stjómarmanna fyrirtækja skyldu vera konur. Ekki heíði ég viljað vera
kjörin í stjóm vegna þess eins að vera kona. Ég vil að allir njóti eigin
verðleika og konur og karlar takist saman á við sem flesta hluti.„
-Hvemig er þessu háttað í stjóm Sigurðar Ágústssonar ehf.?
,d>ar sitja tvær konur og einn karlmaður. Stjómarmönnum var
fækkað úr funm í þqa en ég held að lengst af hafi verið tvær konur
þar svo við náðum 40% hlutfallinu án allra lagasetninga.“
Horfnir snillingar
Rakel hefúr á löngum ferli sínum kynnst helstu útgerðarmönnum
og athafnaskáldum þessa lands. Hún nefnir sérstaklega af mikilli
hlýju nöfn Alla ríka eins og Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði var
alltaf kallaður, Guðfmns Einarssonar í Bolungarvík, Jóns Páls
Halldórssonar á Isafirði, Sigurðar Einarssonar í Vestmannaeyjum og
Elíasar Þorsteinssonar.
Rakel og Alli ríki vom sérstakir vinir því Rakel er ættuð ffá
Eskifirði. Auk þess var lykilstarfsmaður hjá Sigurði Ágústssyni sem
var jafhaldri Alla og vinur frá Eskifirði.
Sagt er að þegar Kjartan Jóhannsson var sjávarútvegsráðherra
ákvað hinn hvatvísi Aðalsteinn Jónsson ffá Eskifirði, þá staddur
í höfúðborginni, að ganga á fúnd nýja ráðherrans og vita hvemig
honum gengi að átta sig á verkefninu. Eitthvað hefur Kjartani
sjálfsagt fundist Alli tala kunnuglega um atvinnuveginn því eftir
góða stund spurði hann: „Hefur þú fengist eitthvað við útgerð
góði.“
Þessa sögu og fleiri rifjar Rakel upp þegar talið berst að horfhum
litríkum persónuleikum í hópi útgerðarmanna.
,A.lh sagði mér að það hefði verið þrennt sem hann missti þegar
hann hætti að drekka. Eitt var að hann missti taktinn til þess að geta
dansað og svo missti hann hæfileikann til þess að geta talað erlendar
tungur en það hafði reynst honum auðvelt áður. Ég man ekki hvert
þriðja atriðið var,“ segir Rakel og brosir að endurminningunum um
litrikan félaga.
„Margir em horfhir og farið að hægjast ofúrlítið á öðrum eins og ég
fmn vel á sjálffi mér,“ segir Rakel.
VÍSBENDING i 15