Vísbending - 20.12.2016, Qupperneq 16
„Oftast voru þessir menn aldir upp í þorpunum og nánast aldrei
langskólagengnir og höföu snemma tekið til hendinni. Svo höíðu þeir
tök á að ná til sín góðu fólki og virkjaþað, voru áræðnir og duglegir og
tóku ábyrgð á samfélaginu sem þeir störfuðu í. Þessir menn tilheyrðu
flestir öðrum tíma, þeim tíma sem ég ólst upp í og finnst að ég tilheyri
enn og geti vel verið „ein“ af þeim.
Það sem við tölum ekki um
Orðalagið sem notað er í dag er „samfélagsleg ábyrgð“ og fer alveg
sérstaklega í taugamar á mér,“ segir Rakel.
Sjálf hefur Rakel gefið til baka til samfélagsins í Stykkishólmi með
margvíslegum hætti. Hún hefur sýnt endurbyggingu og varðveislu
gamalla húsa sérstakan áhuga og hafa fleiri en eitt hús í hinum foma
kaupstað notið góðs af þessum áhuga hennar og gengið í endumýjun
lífdaganna. Mig langar til þess að vita hvort fleiri málaflokkar hafi
notið þess örlætis sem margir vita að Rakel býr yfir en hún gerir lítið
úr öllu tali um það.
„Eg skal segja þér að það er eitt prinsíp sem ég og mín fjölskylda
höfum haldið. Við tölum ekki um það sem við höfum látið af hendi
rakna hvorki fyrr né síðar. Þess vegna vil ég ekki ræða það.
Gömlu húsin hafa verið mitt sérstaka áhugamál og eflaust hefur
það mótast mikið á mínum fyrstu árum í Stykkishólmi þegar ég bjó
með manninum minum og tengdaforeldrum í Clausenshúsi sem var
byggt 1874 og þau áttu gamalgróið heimili þar sem hver hlutur átti
langa sögu,“ segir Rakel.
Ohætt er að fúllyrða að sú fýrirmynd sem Rakel var á þessu sviði
í Stykkishólmi hefúr orðið mörgum húseigendum hvati til dáða og
allir sem koma í Stykkishólm í dag heillast af hinu fagra bæjarstæði
við höfnina þar sem gamli tíminn lifnar við í fagurlega endurgerðum
húsum.
Ekki vill Rakel samt gangast við neinu sérstöku frumkvöðlastarfl
á þessu sviði.
„Þetta hefúr bara gerst, eitt leiðir af öðm og margt af þessu gerðist
fyrir hrun þegar fólk átti pening sem það vildi setja í svona verkefni.
Agúst heitinn sagði alltaf að Stykkishólmur væri byggður á sjö
hæðum eins og Rómaborg og fannst þetta fallegasti staður á Islandi.
Ég er ekki alin upp í Stykkishólmi en þar hef ég dvalið stærsta hluta
minnar ævi og vil hvergi annars staðar vera.Við Agúst áttum lengi
skútuna Buslu, sem við geymdum í Danmörku og sigldum þar á milli
þorpa og þar sá ég hvemig Danir varðveita gömlu húsin sín og eflaust
hefúr það líka haft áhrif á mig. Þeir fóm aldrei út í að eyðileggja húsin
með því að forskala þau og augnstinga eins og við og við höfum þurft
að eyða stórum fjárhæðum í að laga aftur.“
Við fáum okkur aftur kaffi í bollana og Rakel fer að segja mér fiá
endurgerð og uppbyggingu Frúarhússins svokallaða í Stykkishólmi.
Það fallega hús var byggt 1870 og hefúr verið endurgert af mikilli
vandvirkni. Við ferðumst saman aftur í tímann og fólk sem lifði og
dó í Stykkishólmi og átti líf og hamingju innan veggja hússins flögrar
í kringum okkur án þess að við sjáum það. Þannig er sagan. Hún lifir
í minningum og alúð fólks að mestu leyti en að hluta til í varðveislu
hluta sem tilheyra fomum tíma.
Rakel segist hafa verið hætt að gera upp gömul hús en svo kom að
því að hún gerði Stykkishólmsbæ tilboð um að kaupa Frúarhúsið, láta
gera það upp og þá myndi bærinn kaupa húsið aftur á kostnaðarverði.
Þetta varð að veruleika, bærinn nýtti samt ekki kaupréttinn, og í
dag er Frúarhúsið eitt þeirra sem gera Stykkishólm að Rómaborg
Snæfellsness og vekja gleði og aðdáun í hjörtum allra sem sjá. K9
Styrking krónunnar er útflutningsgreinunum mjög etjið ekki síst sjávarútveginum. En það talar enginn um það heldur bara um auknar álögur á
greinina.
16 | VÍSBENDING