Fjölrit RALA - 20.03.1980, Side 40

Fjölrit RALA - 20.03.1980, Side 40
36 MOSAÞEMBA MEÐ GRÖSUM. (Austurhlíð í Skaftártungu/ V.-Skaft.) Tilraunin stóð árin 1969-1975 eða í sjö ár, og var uppskera mæld öll árin nema 1969. Gróðurfar var metið fimm fyrstu árin. Tilraunaskipulag var samkvæmt flokki II (sjá bls. 13). Tilraunin var í um 160 m hæð á sléttum þurrum móa. Mosi er ríkjandi gróður, og er hlutur hans í þekju rúm 70%. Af öðrum tegundum ber mest á grösum (um 10%), þursaskeggi, móasefi og möðrum (sjá nánar bls. 19). Mosaþemban, sem tilraunin stendur á, er ófrjó. Uppskera í óábornu reit- unum var að jafnaði 1.1 hestburður á hektara og litlar sveiflur milli ára, nema þurrkasumarið 1974, en þá féll uppskeran niður í 0.6 hestburði á hektara. Uppskera jókst fremur lítið við áburðinn fyrstu árin og allmiklar sveifl- ur voru milli ára. Uppskera var ekki mæld fyrsta árið, en annað árið var upp- skeruaukinn aðeins um 6 hestburðir miðað við áburðarskammtinn 85N-38P. Á þeim reitum, sem borið var á árlega (100N-44P) komst uppskeruaukinn í 33 og 27 hestburði árin 1972 og 73, en féll niður í 8 hestburði 1974. Eins var um þá reiti, sem borið var á annað hvert ár (85N-38P). Á þeim varð uppskeruaukinrf mestur 15 og 13 hestburðir 1972 og 73, en féll niður í 5 hestburði 1974; þó var borið á reitina það ár. Talsverður uppskeruauki fékkst fyrir stærri fos- fórskammtinn (31P-44P). Eftiirverkun tveggja ára áburðargjafar (85N-38P) var ekki langvinn. Á þriðja ári var gróðurfar að mestu leyti komið í sitt fyrra horf, og á fjórða ári voru áhrif áburðarins ekki merkjanleg i uppskeru. Við áburðinn jókst hlutdeild grasa á fyrsta ári úr 10% í um 40% og öðru ári í um 65%. Eftir að megin gróðurfarsbreytingarnar eru um garð gengnar, en það virðist ekki vera fyrr en á fjórða ári, má reikna með, að hlutdeild grasa verði um 80-90%, ef borið er á árlega, en um 65%,ef borið er á annað hvert ár. Hlutdeild hálfgrasa og blómjurta jókst nokkuð við áburðinn, einkum í upphafi, en slíkt er algengt, þar sem æðri gróður er gisinn. í heild má segja, að þessi landgerð sé ekki sérlega góður valkostur til áburðardreifingar. Uppskeruhæfni landsins er lengi að byggjast upp, og miklar sveiflur koma frrfm eftir árferði. Eftirverkun áburðarins er lítil. Áhrif mismunandi áburðarliða á uppskeru í tilrauninni eru sýnd í töflu 5 bls. 21. Á næstu síðum eru línurit, sem sýna uppskeru og gróðurfar. LÍnumar, sem sýna áhrif áburðargjafar annað hvert ár og eftirverkun tveggja ára áburðar- gjafar, eru byggðar á meðaltali allra áburðarliða. Meðaláburðarskammtur var 85N-38P á hektara. LÍnan, sem sýnir áhrif árlegar áburðargjafar, byggir á sama meðaltali fyrstu tvö árin, en síðan á áburðarliðnum 100N-44P á hektara.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.