Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 89

Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 89
85 FRAMRÆST, GRASGEFIN MÝRI. (Gerðuberg í Hnappadal, Hnapp.) Tilraunin stóð árin 1969-1976 eða í átta ár. Uppskera var mæld öll árin nema 1970. Gróðurfar var metið öll árin nema 1974 og 1976. Tilrauna- skipulag var samkvæmt flokki III. (sjá bls. 14). Tilraunin var á framræstu mýrlendi í um 40 m hæð. Gróðurfar einkenn- ist af störum, einkum mýrastör (35%), og grösum (37%) (sjá nánar bls. 11). Uppskera á óáboma landinu var að meðaltali 17.6 hestburðir á hektara þau sjö ár, sem uppskera var mæld, mest 23.1, minnst 8.4. Uppskera jókst nokkuð eftir því sem leið á tilraunatímann. Það gæti stafað af því, að land- ið var ræst fram fimm árum áður en tilraunin hófst. Það er því hugsanlegt, að áhrif framræslunnar hafði verið að koma í ljós á tilraunatímanum. Önnur ástæða gæti verið aukning sinu í landinu vegna friðunar, en hún gæti ef til vill hafa slæðst með við mælingar á uppskeru. Við áburðinn jókst uppskera fyrsta árið um 6 hestburði á hektara, ef miðað er við meðaláburðarskammtinn 50N-36P. Uppskeruaukinn var síðan um 7 hestburðir, ef borið var á árlega (80N-44P). Hlutdeild grasa var yfirleitt milli 60 og 70%, ef borið var á annað hvert ár, en yfir 90% ef borið var á árlega. Gróðurfarsbreytingunni virð- ist hafa verið lokið þegar á öðru ári. Fosfór án annarra áburðartegunda gaf lítinn uppskeruauka eða 2 hest- burði á hektara, en hafði hins vegar nokkra gróðurfarsbreytingu í för með sér og jók hlutdeild grasa úr 37% í um 56%. Enginn munur kom fram milli áburðarskammtanna 26P og 44P án köfnunarefnis. Engin svörun fékkst fyrir blandaðan áburð umfram 40N-26P. Breytileiki var mikill á uppskeru, bæði milli áburðarliða og milli ára. Tveggja ára áburðargjöf hafði fremur lítil áhrif á uppskeru eftir að hætt var að bera á, en hins vegar mjög til bóta að því er varðar hlutdeild grasa. Það virðist einkum hafa verið fosfór, sem jók grasmagnið, því að enginn munur var á milli áburðarliða í eftirverkun (lægst 0N-26P, hæst 80N- 44P-58K). Meginniðurstaða tilraunarinnar er sú, að með tiltölulega litlu magni af fosfór megi stórbæta gróðurfar framræstra mýra. Hins vegar er köfnunar- efni nauðsynlegt til að auka uppskerima. Ekki virðist ástæða til að nota stóra áburðarskammta. Áhrif mismunandi áburðarliða á uppskeru í tilrauninni eru sýnd í töflu 5 bls. 22. Á næstu síðum eru línurit, sem sýna uppskeru og gróðurfar. LÍnurnar, sem sýna áhrif áburðargjafar annað hvert ár og eftirverkun tveggja ára áburðargjafar, eru byggðar á meðaltali allra áburðarliða. Meðaláburðar- skammtur var 50N-36P á hektara. Línan, sem sýnir áhrif árlegar áburðar- gjafar, byggir á sama meðaltali fyrstu tvö árin, en síðan á áburðarliðnum 80N-44P á hektara.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.