Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 118

Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 118
114 graslendisflokki og má til nefna Öxnadalsheiði I og II og Melshorn. Þar var stinnastör helsti fulltrúi hálfgrasa. Hlutur hálfgrasa breyttist lítt í áburðarlausu reitunum á tilrauna- tímanum. Við áburóargjöf dró úr þekju hálfgrasa, en breytingarnar urðu ekki ýkja fljótt. Þau hurfu hvergi alveg við árlega áburðargjöf, þótt nærri léti sumsstaðar. Undantekning var á Vaðlaheiði. Þar breiddust hálfgrös út við áburðargjöf annað hvert ár og í eftirverkunarreitunum. í Gæshólamýri var þekja hálfgrasa óháð áburði. Hálfgrös breiddust nokkuð út í eftirverkunarreitunum, en víðast hvar vantaði talsvert á, að þau næðu upphaflegri þekju á tilraunatímanum. Hér er fjallað um fimm tegundir hverja fyrir sig. Auk þess er fjallað um fífur í einu lagi. Sama máli gegnir um votlendisstarir og skúfgrös. Fleiri tegundir komu ekki fyrir, svo nokkru næmi. a. Móasef (Juncus trifidus) var að finna í flestum þurrlendistilraun- unum og náði 1% af gróðurþekju eða meira á 12 stöðum af 28 alls; mest 11% á Mel og 8% í Skálholtsvík að meðaltali áburðarlausra reita öll ár. Annars- staðarnáði þekjan hvergi meira en 4% af gróðurþekju og var víðast um 1%. í reitum,sem borið var á annað hvert ár,virtist móasef halda 1-2% hlut i gróður þekju, hafi það haft þá útbreiðslu eða meiri í upphafi. Við árlega áburðar- gjöf hvarf tegundin nær alveg. í eftirvekunarreitunum var hlutfallsþekjan ívið meiri en við áburð annað hvert ár, en náði þó ekki útbreiðslu óábornu reitanna að öllu jöfnu. Undantekning yar á Vaðlaheiði. Þar var hlutfallsþekja við eftirverkun 6%, áburð annað hvert ár 4%, en innan við 1% í áburðarlausu reitunum á sama tíma. Einnig má benda á óvanalegt hlutfall milli þekju móasefs og þursaskeggs í Skálholtsvík. Þar ríkti fyrrnefnda tegundin, en hvarvetna annarsstaðar var þursaskegg mun fyrirferðameira en móasef. Segir það væntanlega eitthvað um vaxtarskilyrði í tilrauninni. b. Þursaskegg (Kobresia myosuroides) kom fyrir í flestöllum þurrlendis tilraunum, en átti mjög misstóran hlut í groðurþekju hinna ýmsu staða. Á 12 stöðtim var hlutfallsþekja þursaskeggs 1-6%, en á sjö stöðum 14-35% og ekkert þar á milli. Mest var þekjan í Kýrholti 35% og á Skáldsstöðum 25%. Þessar sjö tilraunir, þar sem þursaskegg var að finna í miklum mæli, voru allar um miðbik Suður- og Norðurlands. Þær voru Svínavatn, Hrosshagi, Galtalækur, Ytra-Garðshorn, Skáldsstaðir, Kýrholt og Melur. Þurgaskegg virtist draga seglin lítillega saman við friðun, en þekja þess snöggminnkaði við áburðargjöf strax á fyrst sumri. Þursaskegg hvarf yfirleitt alveg við árlega áburöargjöf, en hélt víðast 1-7% þekju, þar sem borið var á annað hvert ár. í eftirverkunarreitunum breiddi þursaskegg tiltölulega ört úr
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.