Fréttablaðið - 25.11.2020, Page 23
Nordic Smart
Government
VERÐMÆTASKÖPUN MEÐ STAFRÆNUM LAUSNUM
Fjarfundur 27. nóvember 2020 kl. 8:30 - 10:00
Dagskrá:
8:30 Setningarávarp
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra
Nýsköpunarlandið Ísland
Sigríður Valgeirsdóttir, sérfræðingur, staðgengill skrifstofustjóra
hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
Vegvísir að stafrænu vistkerfi Nordic Smart Government
Linda Rut Benediktsdóttir, sviðsstjóri hjá Skattinum
Notkun stafrænna viðskiptaskjala
Jóhanna Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Skattinum
Lagalegt umhverfi Nordic Smart Government
Björg Anna Kristinsdóttir, ráðgjafi hjá KPMG
Tæknilegt umhverfi Nordic Smart Government
Georg Birgisson, ráðgjafi hjá Midran
Næstu skref
Snorri Olsen, ríkisskattstjóri
10:00 Fundarslit
Fjárfesting í stafrænni þróun og nýsköpun er brýn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, faraldurs og
samdráttar. Hvar liggja tækifærin?
Verkefnishópur Nordic Smart Government vinnur að því að skoða hvernig skapa má verðmæti fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki með því að gera rauntíma viðskiptagögn aðgengileg svo þau nýtist til
nýsköpunar og vaxtar.
Boðið er til fundar um helstu afurðir þriðja áfanga verkefnisins. Fjallað verður um vegvísinn að
stafrænu vistkerfi Nordic Smart Government, notkun stafrænna viðskiptaskjala á Norðurlöndunum
og stöðu Íslands í því samhengi hvað varðar lagalegt og tæknilegt umhverfi. Næstu skref í verkefninu
verða kynnt en til að framtíðarsýn Nordic Smart Government verði að veruleika þarf að koma á
samstarfi hagaðila bæði í opinbera og einkageiranum.
Skráning á fundinn fer fram á vefsvæði Skattsins: https://www.rsk.is/skraning-a-nsg/
Fundarstjóri
Hólmfríður S. Jónsdóttir, verkefnastjóri á verkefnastofu um stafrænt Ísland