Fréttablaðið - 25.11.2020, Side 25
Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsvið
Helstu verkefni:
Þróa tækifæri til að selja raforku eða aðrar vörur og þjónustu til
nýrra viðskiptavina
Útbúa viðskiptalíkön og stýra viðskiptaþróunarverkefnum
Koma á og viðhalda góðu samstarfi við mögulega nýja viðskiptavini
og stýra samningagerð
Koma á og stýra samstarfi við önnur fyrirtæki, klasa og fleiri aðila
vegna sóknar í ný viðskiptatækifæri
Móta skilaboð, efni og viðeigandi markaðssetningu til að styðja
markaðssókn
Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi.
Viðskiptaþróunarstjóri
Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsvið
Helstu verkefni:
Stýra orkutengdri nýsköpun í vetni, rafeldsneyti og orkuskiptum
með það markmið að auka verðmætasköpun
Vinna nýsköpunaráætlanir í samstarfi við viðskiptaþróun og
aðra aðila
Móta og stýra samstarfi við sveitarfélög, önnur fyrirtæki, klasa og
fleiri aðila vegna sóknar í nýsköpun
Stýra alþjóðlegri þekkingaröflun og samstarfi vegna rannsóknar-
og nýsköpunarverkefna
Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi.
Verkefnastjóri nýsköpunar
Orkusölusvið
Helstu verkefni:
Eiga samskipti við og þjónusta viðskiptavini ásamt því að halda
utan um rafmagnssamninga fyrirtækisins
Sjá um innleiðingu og móttöku á nýjum viðskiptavinum
Leiða eða eftir atvikum taka þátt í samningaviðræðum við
núverandi viðskiptavini og taka þátt í samningagerð
Taka þátt í að þróa þjónustu og vöruframboð Landsvirkjunar
á raforkumarkaði
Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi.
Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi.
Viðskiptastjóri
Orkusölusvið
Helstu verkefni:
Greina markaði, t.d. innlenda og erlenda orkumarkaði og þá
markaði þar sem viðskiptavinir okkar starfa
Vinna í þverfaglegu teymi sem metur viðskiptatækifæri á
innlendum og erlendum orkumarkaði og áhrif alþjóðlegra
loftslagsaðgerða á þróun markaða á heimsvísu
Veita almenna ráðgjöf innanhúss, vinna að framsetningu gagna og
eiga í samskiptum við hagaðila
Sérfræðingur í viðskiptagreiningu
Breytingum fylgja tækifæri. Nú er að verða einhver mesta bylting í
orkubúskap jarðarinnar frá örófi alda, þegar öll heimsbyggðin ætlar
að hætta að nota eldsneyti sem losar gróðurhúsalofttegundir og
skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa.
Þessi vegferð er kunnugleg fyrir okkur Íslendinga, sem höfum þegar fetað okkur
eftir slóð orkuskipta með hitaveitu og grænni raforkuvinnslu. En við erum ekki
komin á leiðarenda.
Ísland er land endurnýjanlegrar orku og við höfum ýmislegt fram að færa í þeirri
viðleitni að gera veröldina að hreinni og betri stað fyrir komandi kynslóðir.
Möguleikarnir eru nær ótakmarkaðir: Græn vetnisvinnsla, vistvænir iðngarðar,
orkutengd matvælaframleiðsla og svo má áfram lengi telja.
Við auglýsum eftir reynslumiklu fólki til að koma með okkur í þessa spennandi
vegferð og gera heiminn grænan. Um er að ræða fjögur störf á tveimur nýjum
sviðum hjá okkur: Orkusölusviði og Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði.
Gerum heiminn
grænan saman
Sæktu um störfin hjá VinnVinn.is, þar sem þú finnur nánari
upplýsingar um þau og helstu menntunar- og hæfniskröfur.