Fréttablaðið - 25.11.2020, Side 25

Fréttablaðið - 25.11.2020, Side 25
Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsvið Helstu verkefni: Þróa tækifæri til að selja raforku eða aðrar vörur og þjónustu til nýrra viðskiptavina Útbúa viðskiptalíkön og stýra viðskiptaþróunarverkefnum Koma á og viðhalda góðu samstarfi við mögulega nýja viðskiptavini og stýra samningagerð Koma á og stýra samstarfi við önnur fyrirtæki, klasa og fleiri aðila vegna sóknar í ný viðskiptatækifæri Móta skilaboð, efni og viðeigandi markaðssetningu til að styðja markaðssókn Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi. Viðskiptaþróunarstjóri Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsvið Helstu verkefni: Stýra orkutengdri nýsköpun í vetni, rafeldsneyti og orkuskiptum með það markmið að auka verðmætasköpun Vinna nýsköpunaráætlanir í samstarfi við viðskiptaþróun og aðra aðila Móta og stýra samstarfi við sveitarfélög, önnur fyrirtæki, klasa og fleiri aðila vegna sóknar í nýsköpun Stýra alþjóðlegri þekkingaröflun og samstarfi vegna rannsóknar- og nýsköpunarverkefna Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi. Verkefnastjóri nýsköpunar Orkusölusvið Helstu verkefni: Eiga samskipti við og þjónusta viðskiptavini ásamt því að halda utan um rafmagnssamninga fyrirtækisins Sjá um innleiðingu og móttöku á nýjum viðskiptavinum Leiða eða eftir atvikum taka þátt í samningaviðræðum við núverandi viðskiptavini og taka þátt í samningagerð Taka þátt í að þróa þjónustu og vöruframboð Landsvirkjunar á raforkumarkaði Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi. Gerð er krafa um framhaldsnám og reynslu sem nýtist í starfi. Viðskiptastjóri Orkusölusvið Helstu verkefni: Greina markaði, t.d. innlenda og erlenda orkumarkaði og þá markaði þar sem viðskiptavinir okkar starfa Vinna í þverfaglegu teymi sem metur viðskiptatækifæri á innlendum og erlendum orkumarkaði og áhrif alþjóðlegra loftslagsaðgerða á þróun markaða á heimsvísu Veita almenna ráðgjöf innanhúss, vinna að framsetningu gagna og eiga í samskiptum við hagaðila Sérfræðingur í viðskiptagreiningu Breytingum fylgja tækifæri. Nú er að verða einhver mesta bylting í orkubúskap jarðarinnar frá örófi alda, þegar öll heimsbyggðin ætlar að hætta að nota eldsneyti sem losar gróðurhúsalofttegundir og skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa. Þessi vegferð er kunnugleg fyrir okkur Íslendinga, sem höfum þegar fetað okkur eftir slóð orkuskipta með hitaveitu og grænni raforkuvinnslu. En við erum ekki komin á leiðarenda. Ísland er land endurnýjanlegrar orku og við höfum ýmislegt fram að færa í þeirri viðleitni að gera veröldina að hreinni og betri stað fyrir komandi kynslóðir. Möguleikarnir eru nær ótakmarkaðir: Græn vetnisvinnsla, vistvænir iðngarðar, orkutengd matvælaframleiðsla og svo má áfram lengi telja. Við auglýsum eftir reynslumiklu fólki til að koma með okkur í þessa spennandi vegferð og gera heiminn grænan. Um er að ræða fjögur störf á tveimur nýjum sviðum hjá okkur: Orkusölusviði og Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði. Gerum heiminn grænan saman Sæktu um störfin hjá VinnVinn.is, þar sem þú finnur nánari upplýsingar um þau og helstu menntunar- og hæfniskröfur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.