Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.11.2020, Qupperneq 49

Fréttablaðið - 25.11.2020, Qupperneq 49
BÆKUR Hestar Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring Fuglabók Hjörleifs Hjartarsonar og Ránar Flygenring sem kom út árið 2017 er mörgum í fersku minni en þar voru fuglar landsins skoðaðir frá öðru sjónarhorni en í öðrum fugla- bókum með geysiskemmtilegum árangri. Í Hestabókinni er róið á svipuð mið en þó alls ekki, þar sem hestar eru jú gerólíkir fuglum, bæði að nýtingu og burðum, sögnum og tengingum við menn. Hestabókin inniheldur alls konar fjölbreyttan fróðleik um þarfasta þjóninn, allt frá kynningu á formóð- ur flestra hesta fyrir 55 milljónum ára og að hestinum Skugga-Sveini frá Hafnarfirði sem kann að telja en gaf stærðfræðiferilinn upp á bátinn fyrir málaralistina. Fjallað er um hesta frá upphafi samlífis þeirra og manna enda virðast hestar hafa fylgt f lestum samfélögum manna um árþúsunda skeið og eiga því sinn stað í flestum þjóðarsálum. Sagt er frá goðsagna- kenndum hestum þar sem afar mörg trúarbrögð eiga sér hesta, bæði vængjaða eins og Pegasus og okkar áttfætta Sleipni og alla hina hestana sem koma við sögu í Snorra-Eddu, hestum í Íslendingasögunum eru gerð góð skil sem og hestunum í þjóðsögunum eins og honum Faxa frá Myrká og reynt að setja sig inn í hugarheim hans þar sem hann stendur og horfir á Garúnu hringja kirkjuklukkunum. Sagt er frá hest- um sem höfðu mannsvit, hestum sem voru sendir í bardaga og þann- ig mætti lengja telja. Sögurnar eru ekki allar jafn huggulegar og jafnvel má finna uppskrift að folaldagúllasi þannig að það má með sanni segja að í þessari bók sé ekkert dregið undan. Gamli sorrí Gráni eftir Megas á sér opnu ásamt fleiri hestum í ljóðum og söngvum og svo er auðvitað farið í hestaliti, gangtegundir, reiðtygi og búnað, orðtök og málshætti þar sem hestar koma við sögu og svo mætti lengi telja. Texti Hjörleifs Hjartarsonar er hnyttinn og læsilegur og býr yfir þeim dásamlega eiginleika að vera jafnskemmtilegur fyrir lesendur á öllum aldri. Textinn er þó ekki nema hálf sagan því myndir Ránar Flygenring eru einstaklega skemmti- legar, lýsandi, fyndnar og bæta miklu við bæði sögur og fróðleik. Á sumum síðum er textinn hreint aukaatriði og jafnvel bara ekki til staðar heldur fá myndirnar að njóta sín og segja sínar sögur. Í takt við mikilvægi myndanna er mikið lagt upp úr útliti bókarinnar, pappírinn er þykkur, brotið ekki alveg af hefðbundinni stærð og bókin meira í ætt við listaverkabók en textaverk. Fyrst og fremst er þetta þó bók um hesta fyrir alla sem einhvern snefil af áhuga hafa á þessum þarfasta þjóni Íslendinga gegnum aldirnar. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Hestabókin er afar falleg og skemmtileg bók sem allir unn- endur hesta, sagna og myndskreytinga munu njóta, sama á hvaða aldri þeir eru. Á harðaspretti Af lausn eftir Yrsu Sigurðar-dóttur er tilnefnd til Petrona-verðlaunanna sem besta nor- ræna glæpasagan í Bretlandi árið 2020. Yrsa hlaut þessi sömu verð- laun árið 2015 fyrir Brakið. Aflausn kom fyrst út á íslensku árið 2016 og er þriðja bókin í röðinni um Freyju sálfræðing og Huldar lögreglu- mann. Fyrsta bókin í f lokknum, DNA, var valin besta glæpasaga ársins 2016 í Danmörku, auk þess að hljóta Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin. Yrsa hefur sent frá sér fimmtán glæpasögur frá árinu 2005 sem hafa selst í á sjöttu milljón eintaka, nú síðast Bráðina sem kom út á dögunum. Verk hennar hafa verið gefin út á yfir þrjátíu tungumálum í öllum byggðum heimsálfum jarðar. Þá hefur Yrsa sent frá sér sex barna- bækur, þar á meðal Herra Bóbó, Amelíu og ættbrókina sem kom út á dögunum. Auk Yrsu eru tilnefnd til Petrona- verðlaunanna í ár Norðmennirnir Jörn Lier Horst, Thomas Enger og K jel l Ol a D a h l , Antti Tuomainen frá Finnlandi og S t i n a J a c k s o n frá Svíþjóð. Vic- toria Cribb þýddi Af lausn á ensku. A f lau sn he f st á þv í að ráðist er á u ng l i ng s - stúlku á salerni í k vik my ndahúsi. Á óhugnanlegum m y n d s k e i ð u m s e m s e n d e r u vinum hennar á Snapchat sést þessi v i n s æ l a s t e l p a ítrekað biðjast fyr- irgefningar – en á hverju og af hverju? Lögreglan er ráða- laus í leit sinni að of beldismanninum og stúlkunni, sem er horfin. Og þá tekur málið ískyggilega stefnu. Yrsa tilnefnd í Bretlandi MÖGNUÐ OG MYRK Mergjuð samtímafurðusaga eftir Alexander Dan sem nálgast þjóðsagnaarfinn og Íslandssöguna á ferskan og afar frumlegan hátt „Hér er eitthvað nýtt! Eins og Heimskringla og 1984 að deita í djöfullegri Reykjavík framtíðar.“ HALLGRÍMUR HELGASON „Þessari bók gleymi ég ekki á næstunni.“ THE FANTASY INN „... einhver metnaðarfyllsta, magnaðasta, frumlegasta og mest hrollvekjandi frumraun sem ég hef hnotið um lengi.“ GRIMDARK MAGAZINE Innbundin Rafbók Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga fram að jólum | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25M I Ð V I K U D A G U R 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.