Fjölrit RALA - 15.02.1995, Síða 7

Fjölrit RALA - 15.02.1995, Síða 7
Inngangur 5 Inngangur Alaskalúpína á sér liðlega aldarlanga sögu hér á landi. Fyrstur til að rækta hana var Schierbeck landlæknir sem var formaður Hins íslenska garðyrkjufélags og gerði tilraunir til jurtaræktunar á íslandi. Hann sáði lúpínunni í Reykjavík árið 1885 en líklegt er að fræið hafi hann fengið frá Noregi. í skýrslu Schierbecks (1886) er lúpínan skráð undir tegundarheitinu Lupinus nootkatensis, en einnig var hann með fjórtán aðrar amerískar og evrópskar tegundir lúpína í prófun. Getið er um ræktun fjölærra heylúpína (Lupinus Nutcaensis og L. polyphyllos) í Gróðrarstöðinni í Reykjavík árið 1910 (Einar Helgason 1911) og er líklegt að fyrrnefnda tegundin hafi verið alaskalúpína. Ekki virðast aðrar heimildir vera til um tegundina frá þessum tíma, en sennilegt er þó að plöntur af þessum gamla stofni hafi viðhaldist í litlum mæli í görðum í Reykjavík fram á þennan dag (Jóhann Pálsson, munnlegar upplýsingar). Haustið 1945 kom Hákon Bjarnason skógræktarstjóri með til landsins sem svaraði tveim matskeiðum af fræi og nokkrar rætur af alaskalúpínu. Hann hafði tekið þetta á strönd College-fjarðar í Alaska, er hann var þar við söfnun trjáfræs (Hákon Bjarnason 1946, 1981). Segja má að Hákon hafi fyrstur manna komið auga á hvað í plöntunni bjó til uppgræðslu gróðurvana lands. Hann stóð fyrir því að hún var flutt á ýmis svæði, einkum í girðingar Skógræktar ríkisins, og reynd við ólík skilyrði. Vakti hann áhuga annarra á plöntunni. Af þessum efniviði Hákonar er komin lúpína sú sem breiðst hefur ört út hér á landi og notuð er í auknum mæli til landgræðslu. Náttúrleg heimkynni alaskalúpínunnar eru meðfram Kyrrahafsströndinni, frá suðurhluta Bresku-Kólumbíu (50° N) í Kanada norður til suðurhluta Alaska (63° N) og út eftir Aleutin-eyjaklasanum, allt til Attu-eyjar sem liggur þar vestast. Mun engin plöntutegund sem bundin er við Norður-Ameríku hafa útbreiðslu jafn langt til vesturs, en alaskalúpínunni hefur ekki tekist, fremur en öðrum lúpínutegundum, að komast yfir Beringssundið til Síberíu (Dunn & Gillett 1966). í heimkynnum sínum finnst lúpínan einkum með skógarjöðrum í brattlendi og skriðum, á áreyrum og malarkömbum við sjó. Hún er fyrst og fremst strand- og eyjaplantna, en vex þó sums staðar nokkuð inn til landsins (Dunn & Gillett 1966; Hultén 1968). Líklegt er að samkeppni við annan gróður, svo sem hávaxnari runna og trjátegundir, takmarki útbreiðslu lúpínunnar við þetta búsvæði, sem einkennist af tíðu raski og umróti. Villtar lúpínur eiga sér tvö meginútbreiðslusvæði, sem eru Ameríka annars vegar og lönd við Miðjarðarhaf og í norðanverðri Afríku hins vegar (Gross 1986). Á öðrum svæðum vaxa þær ekki í náttúrlegum heimkynnum. Talið er að uppruna lúpínuættkvíslarinnar megi rekja til svæðis sem nú er í norðausturhluta Brasilíu. Fyrir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fjölrit RALA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.