Fjölrit RALA - 15.02.1995, Side 40

Fjölrit RALA - 15.02.1995, Side 40
38 3. kafli Frjóvgun og fræsetning alaskalúpínu Fertilization and seed set in Nootka lupine Snorri Baldursson Inngangur Þekking á æxlunarkerfi alaskalúpínu er undirstaða kynbóta hennar og rannsóknir á náttúrlegri fræsetningu eru æskileg forsenda fræræktar og notkunnar tegundarinnar við uppgræðslu Iands. Beiskjuefni (alkalóíðar) eru talin vernda plöntur fyrir beit (Lopez-Bellido & Fuentes 1986). Alaskalúpína inniheldur nokkurt magn slíkra beiskjuefna (sbr. 4. kafla). Oft hafa vaknað hugmyndir um að þróa sæt afbrigði af alaskalúpínu, þ.e. afbrigði sem innihalda lítið sem ekkert af beiskjuefnum eða alkalóíðum, svipað og gert hefur verið við fóðurlúpínur (L. albus, L. angustifolius, L. luteus, L. mutabilis og L. polyphyllus). Líkur á að unnt sé að varðveita slíkar arfgerðir í "hálfvilltri" ræktun byggjast m.a. á vægi sjálffrjóvgunar á móti víxlfrjóvgun. Við mikið beitarálag er að öllum líkindum sterkt val á móti sætum arfgerðum. Ef víxlfrjóvgun er algeng er hætt við að slíkar arfgerðir víki fljótt vegna æxlunar við villta beiska lúpínu, en slík er reynsla Evrópumanna af sætu afbrigði af Lupinus polyphyllus (Gladstone, skriflegar upplýsingar 1987). Ef beitarálag er takmarkað, má búast við hinu gagnstæða, þar sem framleiðsla beiskjuefnanna kostar orku. Sjálffrjóvgun er algeng í mörgum lúpínutegundum (Braatne 1989). Æxlunarfæri lúpínunnar eru lokuð inni í kili blómsins þannig að vindfrævun er útilokuð. Öflugt skordýr þarf til að nálgast frjókorn og blómsafa. Hunangsflugur eru einu skordýrin, sem nýta sér blómaafurðir alaskalúpínunnar að einhverju ráði hérlendis. Þar sem lúpínan blómstrar mjög snemma er hún sérstaklega mikilvæg fæðulind fyrir hunangsflugudrottningar á vorin. Þernur úr fyrsta klaki sækja líka mikið í hana (Kristján Kristjánsson 1983). Tækifæri til víxlfrjóvgunar með hunangsflugum eru því fyrir hendi hjá alaskalúpínu hérlendis. Markmið þessa hluta verkefnisins var að varpa ljósi á: 1. Vægi víxlfrjóvgunar á móti sjálffrjóvgun hjá alaskalúpínu. 2. Fræmyndun alaskalúpínu og þætti sem áhrif hafa á hana. Aðferðir Rannsóknunum var valinn staður á hálfgrónum mel á Keldnaholti þar sem lúpína var í hraðri útbreiðslu (sbr. 1. kafla). Þrjátíu plöntur voru valdar af handahófi og merktar.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.