Fjölrit RALA - 15.02.1995, Qupperneq 41
Frjóvgun og fræsetning
39
Rétt fyrir blómgun (2. júní 1987) voru bundnir pokar (u.þ.b. 20x40 cm, saumaðir úr
akríl yfirbreiðsludúk) yfir einn blómstöngul, sem valinn var af handahófi, á hverri
plöntu. Næsti blómstöngull við hliðina var merktur til samanburðar. í umfjöllun hér
eftir er rætt um "pokaða" og "ópokaða" stöngla til að aðgreina þessar mismunandi
meðferðir. Þegar aldinmyndun var vel á veg komin (6. ágúst 1987), voru stönglar
skornir og settir í frysti til síðari greiningar.
Á hverjum blómstöngli voru eftirfarandi atriði metin: lengd aðalblómskipunar,
fjöldi blóma (ör eftir blómleggi meðtalin), belgja og fræja í aðalblómskipan, fjöldi
hliðarstöngla, fjöldi blóma, belgja og fræja á hliðarstönglum.
Til að skoða hvort nánasta umhverfi hefði áhrif á fræsetu var lúpínuplöntunum
skipt í þrjá flokka í úrvinnslunni, eftir tegund gróðurlendis sem þær uxu í, þ.e. mel
(flokkur I), lúpínubreiðu (flokkur II), og annað gróðurlendi, svo sem jaðar, mosa-
þemba og lyng (flokkur III).
Niðurstöður
Niðurstöður eru byggðar á athugunum á 27 plöntum, þar sem pokaðir blómstönglar
höfðu brotnað í þremur tilvikum. Blóm og fræ mynduðust aðeins á 15 hliðarstönglum
af 115 alls. Hliðarstönglum er því sleppt í úrvinnslu.
Meðaltöl nokkurra mæliþátta á pokuðum og ópokuðum blómstönglum eru sýnd í 6.
töflu. Ópokaðir stönglar mynduðu 15,2 belgi með 5,2 fræjum í hverjum, eða um 79
fræ að jafnaði. Belg- og fræmyndun var marktækt minni á pokuðum stönglum (t-
próf, P<0,05) en ópokuðum. í báðum tilvikum munaði um 30%. Munur á fjölda
hliðarstöngla, lengd blómskipunar, fjölda blóma í blómskipun og fjölda fræja í
hverjum belg var ekki marktækur milli samanburðarhópanna.
Hlutfall fræframleiðslu í og utan poka var afar breytilegt milli einstakra plantna
(14. mynd). Engin eða hverfandi fræmyndun var á pokuðum stönglum fjögurra
athugunarplantna. Hjá þremur plöntum var fræframleiðsla heldur meiri á pokuðum en
ópokuðum stönglum. Athugun á fylgni milli fræsetu og ýmissa vaxtarþátta hjá
plöntunum sýndi nokkuð sterka neikvæða fylgni (-0,617) milli hæðar plöntunnar og
fræsetu í pokum. Sambærileg fylgni (-0,111) reyndist ekki til staðar hjá ópokuðum
stönglum (7. tafla)
Lúpínuplöntur sem uxu í breiðunni (flokkur II) voru að meðaltali marktækt
hávaxnari en aðrar plöntur (8. tafla). Meðallengd blómskipunar mældist einnig mest á
ópokuðum stönglum í lúpínubreiðunni, en blómafjöldi var mestur á pokuðum
stönglum í blönduðu gróðurlendi (flokkur III). Pokaðir stönglar inni í lúpínubreiðunni
(flokkur II) framleiddu 5-6 sinnum minna fræ en samsvarandi stönglar á plöntum sem
uxu í jaðri breiðu eða stakar utan hennar (8. tafla).