Fjölrit RALA - 15.02.1995, Side 44

Fjölrit RALA - 15.02.1995, Side 44
42 3. kafli Umræður Varhugavert er að draga víðtækar ályktanir af rannsókn sem takmarkast við lítið svæði og stendur aðeins eitt sumar. Þó verður ekki látið hjá líða að spá aðeins í niðurstöðurnar í víðara samhengi. Að því gefnu að minni fræseta í pokum stafi af útilokun hunangsflugna fremur en beinum áhrifum af pokunum sjálfum er lúpína að meðaltali um 70% sjálffrjóvga. Mikill breytileiki meðal einstaklinga, hvað varðar hlutfall sjálf- og víxlfrjóvgunar, bendir til að unnt sé að kynbæta alaskalúpínuna fyrir þetta hlutfall í hvora áttina sem er. Fræðilegt hámark belgja á hverjum stöngli er jafnt fjölda blóma eða nálægt 65. Fjöldi eggbúa í hverjum belg liggur á bilinu 8-12, þannig að hámarksframleiðsla á stöngul gæti að meðaltali numið um 650 fræjum. Miðað við þessar tölur er meðal belg- og fræmyndun hjá ópokuðum stönglum um 26% og 13% af líffræðilegu hámarki. í pokum er hún 17,2% og 9,7% af hámarki. Neikvæð fylgni milli hæðar lúpínuplantna og sjálffrævunar er athyglisverð og gæti bent til þess að lúpínuplöntur dragi úr framleiðslu sjálffrjóvgaðs fræs með aldri. Að jafnaði er líklegt að yngstu plönturnar finnist í jaðri, en þær elstu inni í breiðum Fyrir ungar jaðarplöntur er væntanlega hagstætt að framleiða sem mest af fræi með öllum ráðum, en fyrir eldri plöntur í breiðum fara gæðin að skipta meira máli. Framleiðsla víxlfrjóvgaðs fræs er því aukin á kostnað sjálffrjóvgaðs. Ef þessi neikvæða fylgni réðist eingöngu af aldri og/eða næringarástandi plöntunnar ætti hún að koma jafnt fram hjá ópokuðum stönglunum. Líklega má rekja stærðarmun lúpínuplantna milli gróðurlenda að mestu til aldurs þeirra (plöntur í breiðunni eru væntanlega elstar frá sáningu) og e.t.v. næringar- ástands. Hæðarmunur skýrist þó væntanlega að einhverju leyti af skjóláhrifum innan breiðunnar. Hæðarmunurinn endurspeglast í marktækt lengstri blómskipan á ópokuðum stönglum í breiðunni. Þessi munur kemur ekki fram á stönglum með poka vegna vaxtarhindrandi áhrifa pokanna. Ólíldegt er að skjóláhrif (þ.e. minni vindhristingur og þess vegna minni sjálf- frjóvgun) geti að fullu skýrt litla framleiðslu sjálffrjóvgaðs fræs inni í lúpínubreiðunni þar sem enginn munur kemur fram á ópokuðum stönglum hvað þetta snertir. Niðurstöðurnar sýna með öðrum orðum að hlutfallslega langmest er framleitt af víxlfrjóvguðu fræi inn í breiðunni. Þetta rennir frekari stoðum undir þá tilgátu, sem sett var fram hér að ofan, að áhersla á víxlfrjóvgun aukist með aldri og næringar- ástandi plötunnar. í svipaða átt bendir sú staðreynd að fræmyndun í pokum, sem hlutfall af blómfjölda, er langhæst á melnum eða 14,8% miðað við 2,2% í lúpínubreiðunni og 8,4% annars staðar.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.