Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 16
S uðurnesjakonurnar Silja Dögg Gunnarsdóttir og Eydís Mary Jónsdóttir gefa út bók um íslenska matþörunga sem þær segja að séu í miklu magni í fjörum á Suðurnesjum „Þessi bók er hugsuð fyrir venjulegt fólk, ekki sérvitringa. Þannig að það geti farið niður í fjöru og tínt sér til matar,“ segja þær Silja Dögg Gunn- arsdóttir og Eydís Mary Jónsdóttir en Sögur útgáfa gaf á dögunum út bókina Íslenskir matþörungar – ofur- fæða úr fjörunni. Í bókinni fjallað á hagnýtan hátt um hvernig tína má matþörunga, verka þá og matreiða – auk þess sem í ritinu er að finna mikinn fróðleik um þessa nytjajurtir, bæði sögulegan fróðleik og svo líf- fræðilegar upplýsingar um þessar undirstöðu lífverur á jörðinni. Höfundarnir eru fjórir; Eydís Mary Jónsdóttir, land- og umhverf- isfræðingur, Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumeistari, Silja Dögg Gunn- arsdóttir, sagnfræðingur, og Karl Pet- ersson, ljósmyndari. Ræturnar að útgáfu bókarinnar liggja aftur til háskólaára Eydísar í kringum árið 2011 en fyrsta starf hennar eftir útskrift var að kort- leggja fjöruvistgerðir. „Ég var svo heppin að fá að vinna við það í tvö ár, fyrir Náttúrustofu Reykjaness og var í fjöruvistgerðakortlagn- ingarhópi Náttúrufræðistofnunar í Natura2000-verkefninu – þar sem allar vistgerðir landsins voru kort- lagðar. Þar öðlaðist ég gríðarlega þekkingu á hinum ýmsu tegundum sem vaxa við landið og má segja að í gegnum þá vinnu hafi ég kolfallið fyrir þörungum,“ segir Eydís um for- sögu áhuga hennar á matþörungum. Þörungar framleiða mest allt súrefni okkar „Það er svo margt að dást að varð- andi þessar stórkostlegu lífverur. Þörungar framleiða allt að 90 pró- sent af því súrefni sem við öndum að okkur og við eigum þeim bókstaflega líf okkar að þakka. Fjöruþörungar lífa í einu erfiðasta umhverfi sem finnst á jörðinni. Það er síbreytilegt og þeir fara aldrei í dvala eins og lífríkið uppi á landi. Í staðinn framleiða þeir líf- virk efni sem gera þeim kleift að lifa af breytilegt hita-, seltu- og rakastig sem getur breyst mikið með aðeins nokkurra klukkustunda millibili vegna sjávarfallanna. Þeir eru einnig frumframleiðendur, sem þýðir að þeir nýta orku sólarinnar til þess að framleiða og fanga næringarefni sem ferðast svo upp með lífkeðjunni. Ofan á allt þetta eru þeir ein sjálfbærasta uppspretta næringar- efna, og einnig sú vannýttasta, sem okkur stendur til boða hér á jörðinni. Fjöruþörungar þurfa ekki landsvæði, jarðveg, ferskt vatn eða áburð til að vaxa og stærstu þörungarnir vaxa um 80 sentimetra á dag. Sé rétt að ræktun staðið getur ræktun þeirra og nýting jafnvel haft jákvætt kol- efnisspor. Það er held ég ekkert sem ekki er hægt að elska við þörunga,“ segir Eydís og Silja bætir því við að fjörur á Suðurnesjum og Suðvestur- horni landsins séu ríkar af þessum mögnuðu þörungum en hvað segir hún við fréttamanninn sem spyr hana út í vondu lyktina sem er oft efst í fjörunni af þaranum. „Já, þarinn er oft búinn að rotna og úldna þarna efst í fjörunni. Við förum neðar og náum í ferskan þara og því er gott að gæta að sjávarföllunum áður en maður fer að tína.“ Hráefni til heilsubótar og veisluhalda Bókin snýst kannski aðallega um það hvernig nýta megi hinar ýmsu þör- ungategundir til manneldis, bæði til matargerðar og einnig sem hráefni til heilsubótar. „Allan þennan tíma hef ég verið að leika mér með þörunga í matargerð og verið að lauma þessu að í hina ýmsu rétti í eldhúsinu heima en það var í rauninni ekki fyrr en ég hitti Hinrik Carl Ellertsson, matreiðslumeistara, árið 2016 að ég fór virkilega að prófa mig áfram. Hinrik vann á þessu tíma á hinum þekkta verðlaunaveitingastað Dill og hann opnaði fyrir mér heim matar sem ég vissi ekki að væri til. Fyrir mér er hann algjör listamaður á sínu sviði og hans uppáhaldshráefni eru þau sem við getum nýtt okkur úr nærumhverfinu,“ segir Eydís. Silja Gunnarsdóttir, alþingiskona og sagnfræðingur og mágkona Ey- dísar, var einn daginn í kaffi hjá henni og sýndi henni erlenda mat- reiðslubók með matþörungum sem hún vildi þýða en hún pantaði sér bókina eftir að hafa séð innslag um þörunga í þættinum 60 mínútur. „Eydís, sem er sérfræðingur í þör- ungum, skoðaði bókina og sagði að við myndum gera okkar eigin bók. Í framhaldinu fengum við Hinrik og hann fékk Karl Petersson, matarljós- myndara, með í hópinn. Þeir hafa báðir ástríðu fyrir því sem þeir gera í matargerð og matarljósmyndun. Við sóttum um og fengum styrk fyrir gerð bókarinnar frá Miðstöð íslenskra bókmennta og hófumst handa,“ segir Silja. Mágkonurnar unnu saman texta bókarinnar, Eydís gerði kortin og skýringarmyndirnar, Hinrik skrifaði matartengda textann og þróaði uppskriftirnar og Karl ljósmyndaði. „Okkur fannst gríðarlega mikilvægt að hönnun bókarinnar væri einstak- lega falleg því matþörungar eru svo misskildir. Þeir eiga það skilið að vera upphafðir og sýndir á fallegan hátt, því þetta er stórkostlegt hrá- efni. Við fengum Einar Geir og Ósk hjá hönnunarstofunni E&Co til að hanna bókina og setja hana upp – og eftir þriggja ára vinnu kom hún loksins út.“ Sætur beltisþari Bókin, sem er 261 blaðsíður, er í raun tvískipt, helmingur bókarinnar er helgaður uppskriftum og matar- tengdum texta. Silja segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að upp- skriftirnar væru aðgengilegar og bragðgóðar. Fyrri hluti bókarinnar er hins vegar alhliða fróðleikur um þörunga, hvers vegna við eigum að borða þá, hvernig þeir voru nýttir áður fyrr og hvernig nýta má þá á öruggan og sjálfbærann hátt. Svo Það er svo margt að dást að varðandi þessar stórkostlegu lífverur. Þörungar framleiða allt að 90 prósent af því súrefni sem við öndum að okkur og við eigum þeim bókstaflega líf okkar að þakka ... Bók um íslenska matþörunga: Ofurfæða úr fjörunni Páll Ketilsson pket@vf.is 16 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.