Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 30

Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 30
„Ég flutti hingað 2016 frá Bandaríkjunum en er auðvitað frá Skotlandi,“ segir Kenneth. „Ég fór til náms í Bandaríkjunum og lék þar fótbolta á íþróttastyrk. Ég útskrifaðist 2014 með gráður í stærðfræði og efnaverk- fræði og eftir háskólann gerðist ég kennari þar úti, kenndi stærðfræði á framhaldsskólastigi. Ég starfaði við það í tvö ár og spilaði fótbolta samhliða vinnu, bæði innan- og utanhúss.“ Í fyrsta sinn einn í annari heimsálfu „Eftir að ég kom hingað var ég fyrst á Sauðárkróki og lék með Tinda- stóli í eitt og hálf tímabil, þá flutti ég hingað til Njarðvíkur og hef verið hér síðan.“ – Er engin fjölskylda með þér, ertu einn? „Já, ég kom hingað einn. Fjölskylda mín er öll í Skotlandi fyrir utan bróðir minn sem er á Englandi, hann er í hernum svo hann er eiginlega út um allt. Ég bjó einn í Bandaríkjunum í fimm ár.“ – Þannig að þú ert einhleypur? „Já ... sorglega,“ segir Kenneth og hlær. „Það eru skoskir strákar í liðinu svo það er fínt finnst mér, við höfum sama bakgrunn og komum frá svip- uðum slóðum í Skotlandi.“ – Hvað varstu gamall þegar þú fórst til Bandaríkjanna? „Ég var nítján ára gamall. Fyrst fórum við fjölskyldan í frí til Florida, svo kom ég heim í viku áður en ég fór í skóla. Það reyndi svolítið á og var skrýtið, ég hafði verið í háskóla í Skotlandi og skólinn var skammt frá þar sem ég átti heima svo ég bjó ennþá heima. Þannig að í fyrsta skipti sem ég bjó að heiman þá flutti ég í aðra heimsálfu, það var ekki eins og ég væri að flytja í hálftíma fjarlægt frá húsinu hennar mömmu svo þetta voru miklar breytingar en ég myndi mæla með þessu við alla. Ef maður kemst út á skólastyrk er námið ókeypis og allur aðbúnaður til fótboltaiðkunar er ótrúlegur þarna. Ég átti nú ekki von á að enda uppi á Íslandi en á þeim tíma sem ég kláraði námið í Bandaríkjunum var ég í sambandi og það átti þátt í því að ég ílengdist þar. Á endanum rann landvistarleyfið mitt út og þótt skólinn hafi viljað halda mér áfram þá var ég búinn að fá nóg af því að kenna. Ég hafði gaman af kennslunni en það er þreytandi að kenna áhuga- lausum krökkum stærðfræði, ég veit ekki hvort þú hafir prófað það? Að reyna að kenna þrjátíu krökkum, sem vilja ekki læra, stærfræði, það dregur úr manni allan vind. Donni (Halldór Jón Sigurðsson) hafði sett sig í samband við mig og reynt að fá mig til liðs við Tindastól svo ég sló til að prófaði – á þeim tíma hélt ég að ég væri að koma hingað í þrjá mánuði áður en ég héldi heim til Skotlands en það hefur dregist á langinn. Ég kom beint til Íslands og lék reyndar minn fyrsta leik hérna, í Sandgerði. Ég hafði ekki einu sinni hitt liðið, lenti bara í Keflavík og beið eftir þeim. Það var skrýtið.“ – Þú hefur átt góðu gengi að fagna í sumar, ert marka- hæstur í deildinni. „Eins og er, já. Þetta er búið að vera gott tímabilið fyrir okkur, við erum eitt af betri liðunum í deildinni og ég held að við eigum góða möguleika á að vinna okkur upp um deild. Við eigum „þægilegra“ leikjaplan en hin liðin sem er ekkert endilega betra. Okkur hefur gengið ágætlega á móti betri liðunum en verið að tapa stigum gegn liðum sem við ættum að vinna. Við höfum trú á því að við komumst upp. Það er vissulega gaman að vera búinn að skora mörg mörk, ég er aftur farinn að spila sem sóknarmaður en hef verið að spila hinar og þessar stöður – í ár hef ég stundum verið á kantinum en það er gott að vera kominn aftur í sóknina, þar hef ég lengst af spilað. Þegar við í Njarðvík unnum okkur upp um deild þá lék ég í sókninni.“ Kenneth lék með yngri f lokkum St . Mirren og í stuttan tíma með Partick Thistle í Glasgow. „Síðan fór ég að hugsa mér til hreyfings því ungir leikmenn í Skotlandi fá ekki greidd há laun en á sama tíma er ætlast til að þeir æfi og séu til taks alla daga.“ – Þú ert í vinnu hérna samhliða fótboltanum, er það ekki? „Jú, ég er í fullu starfi í Kópavogi. Þetta er fyrirtæki í tæknigeiranum, sem framleiðir tæki sem mæla hita- stig í sendingum. Það eru aðallega fyrirtæki í lyfjaiðnaðinum sem við þjónustum. Ég hef unnið þar síðan í febrúar en áður var ég á bílaleigu upp á flugvelli. Þegar ég kom hingað fyrst þá vann ég ekkert, þá bjó ég á Sauðárkróki sem er mjög lítill bær og mér fór að leiðast mjög fljótlega. Þá hugsaði ég með mér að ég gæti alveg eins fundið mér eitt- hvað að gera, aðallega til að koma í veg fyrir leiða. Fyrst var ég ekkert á því að vinna en núna nýt ég þess, það heldur mér uppteknum – sérstaklega yfir veturinn.“ – Ferðu ekkert heim yfir vetrartímann? „Fyrstu tvö árin fór ég heim milli október og febrúar. Síðasta ár var ég hérna allan veturinn að undan- skilinni einni viku, svo heimsótti fjölskylda mín mig í viku. Núna í ár verð ég hérna í allan vetur fyrir utan jólin, þá fer ég til Skotlands. Það er aðallega út af vinnunni, þeir þurfa á mér að halda þar. Námið nýtist mér í vinnunni að hluta til en það er margt sem maður lærir ekki í skóla og þarf að tileinka sér á vinnumarkaðnum – eins og í hverju öðru starfi.“ Kemur frá „litlum“ bæ í Skotlandi „Ég kem frá Irvine, sem er á suð- vesturströnd Skotlands. Það er lítill bær á skoskan mælikvarða en væri stór á Íslandi, þar búa um þrjátíu þúsund manns. Foreldrar mínir voru frá Glasgow en við fluttum þangað vegna vinnu pabba míns, hann var einnig verkfræðingur og vann hjá fyrirtækinu sem skipulagði bæinn. Mamma var kennari svo hún gat unnið hvar sem var og því flutti fjöl- skyldan þangað, þar ólst ég upp. Ég á yngri systur og tvo eldri bræður, svo auðvitað mömmu en faðir minn lést þegar ég var tíu ára gamall. Ég er mjög náinn mömmu minni, hún hefur gert mikið fyrir okkur systk- inin.“ Skoski markvarðahrellirinn Kenneth Hogg Markahrókur Njarðvíkinga, skotinn Kenneth Hogg, hefur búið á Íslandi frá árinu 2016, þar á undan hafði hann dvalið um nokkurra ára skeið við nám og störf í Bandaríkjunum. Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Kenneth með mömmu sinni og systkinum. Kenneth með hundinn sinn Storm. Að reyna að kenna þrjátíu krökkum, sem vilja ekki læra, stærfræði, það dregur úr manni allan vind ... Ég kem frá Irvine, sem er á suð­ vesturströnd Skotlands. Það er lítill bær á skoskan mælikvarða en væri stór á Íslandi ... 30 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.