Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 73

Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 73
„Hjólreiðadeild Grindavíkur var stofnuð árið 2016,“ segir Bjarni. „Þetta er ekki stór deild, það eru um tuttugu manns sem eru að hjóla hérna í Grindavík en færri mæta á æfingar. Fjöldinn hefur svolítið staðið í stað hérna hjá okkur, við höfum ekki getað verið með neitt unglingastarf. – Eru þið eingöngu að keppa í götuhjólreiðum? „Já, við erum bara að æfa götuhjólin en það eru fáeinir hjá okkur sem eru eitthvað á fjallahjólum líka.“ – Keppirðu sjálfur? „Eiginlega ekki, ég tók eitthvað að- eins þátt í sumar en ég var að keppa á árunum 1992 til 1996. Þá var ég á fullu í þessu sjálfur. Þetta er búið að vera mitt áhugamál síðan ég var unglingur, það datt aðeins niður á tímabili en svo kom áhuginn kominn aftur þegar börnin urðu aðeins eldri. Ég hef alltaf fylgst með Tour de France og líka öllu hérna heima, mér finnst þetta æðislega skemmtileg sport.“ – Hefurðu orðið var við áhugavakningu á hjól- reiðum í þessu Covid-fári? „Jú, ég hef alveg orðið var við að fleiri eru farnir að hjóla en þeir eru meira bara að þessu sjálfir. Við höfum ekki getað haldið úti þessum föstum æfingatímum, út af tveggja metra reglunni og öðru, svo það hefur ekki orðið nein aukning í deildinni.“ – Æfið þið líka yfir veturinn? „Já, við gerum það – en hver gerir það bara heima hjá sér. Hjólreiða- deildin hefur enga æfingaaðstöðu en það stendur vonandi til bóta. Við erum að reyna að komast inn í íþróttamiðstöðina og þau mál eru í skoðun, það er ekkert komið á hreint og þessi mál eru bara á umræðustigi ennþá en vonandi gengur það. Þessi mál eiga til að sofna svolítið yfir veturna þegar það er ekkert starf í gangi. Þríþrautadeild Njarðvíkur er líka í hjólreiðum og það hafa ein- hverjir frá okkur farið á æfingar þar yfir vetrartímann. Við höfum tæki- færi til að æfa með þeim sem er ágætt, það er fínasta samstarf á milli félaga í hjólreiðafélögunum – þetta er svo fámennur hópur.“ – Hvert á fólk að snúa sér ef það vill byrja að æfa hjólreiðar? „Það eru þessi tvö félög sem leggja stund á þetta á Suðurnesjum, hjól- reiðadeild Grindavíkur og 3N í Njarðvík. Það er bara að setja sig í samband við þessi félög, þau taka vel á móti öllum,“ segir Bjarni. Samskipamótið – Nú var mót hjá ykkur um helgina, þar áttuð þið þrjá keppendur. Segðu mér, voru margir þátttakendur í mótinu? „Það voru fáir núna miðað við undanfarin ár, það voru 98 skráðir en til samanburðar voru yfir 200 í fyrra. Það er þetta ástand sem er búið að vera, það hefur áhrif. Þetta mót hefði átt að vera haldið í maí en svo var allt stopp og engin hjólreiða- keppni fyrr en í júní þannig að þetta mót lenti í þeirri seinkun. Svo átti að halda það 8. ágúst en þá fór allt í baklás aftur eftir verslunarmanna- helgina, á endanum var mótið haldið um síðustu helgi og þá fengum við alveg frábært veður. Við nutum að- stoðar sunddeildarinnar við umferð- argæslu hérna í Grindavík, styrkjum þau með því móti, svo eru tvö önnur félög sem eru með okkur í mótinu.“ – Sonur þinn, Jóhann Dagur sem varð Íslandsmeistari í sínum flokki fyrr í sumar, hann virðist vera mjög efnilegur. „Já, hann er það. Hann byrjaði nú ekki í hjólreiðum fyrr en eftir að deildin var stofnuð svo hann er ágætlega efnilegur. Núna er hann kominn með þjálfara sem rekur hann áfram – það þýðir ekkert fyrir mig að segja honum til. Þjálfarinn er reyndar í Reykjavík en þeir æfa saman í gegnum forrit þar sem hann fær upplýsingar um hvað hann eigi að gera. Hann ætlaði á Evrópumótið í ár en Hjólreiðasambandið og lands- liðsnefndin ákvað að senda engan á EM þetta árið út af ástandinu, þá horfðum við til þátttökur í HM en það var fært og á endanum ákveðið að vera bara með fullorðna kepp- endur. Það eru því miður allt of fáir á þessum aldri í hjólreiðum hérna á Íslandi. Ég held að ef þeir ætla að ná einhverjum árangri þurfa þeir að fara út að keppa og æfa – eins og í flestum íþróttum. Bestu körfuboltamennirnir okkar fara í nám erlendis, skipta um umhverfi.“ Bjarni Már Svavarsson er einn stofnenda hjólreiðadeildar Grindavíkur, hann er formaður Ungmennafélags Grindavíkur og situr í stjórn hjólreiðadeildarinnar, hann er jafnframt formaður Hjólreiðasambandins. Víkurfréttir ræddu við Bjarna um stöðu hjólreiða í Grindavík. Bjarni Már hefur haft hjólreiðar að áhugamáli frá því hann var unglingur. Hjólreiðar í Grindavík Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 41 Ljósmyndir: Hörður Ragnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.