Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 5
Suzuki Grand Vitara
árg. 2010, ekinn 134 þús., sjálfskiptur
Tilboð 800.000 kr.
Suzuki Jimny
árg. 2015, ekinn 168 þús., 5 gírar
Tilboð 790.000 kr.
Dacia Duster
árg. 2018, ekinn 122 þús., 6 gírar
Tilboð 1.850.000 kr.
Ford Kuga Titanium
árg. 2017, ekinn 147 þús., sjálfskiptur
Tilboð 1.990.000 kr.
Toyota Hiace Diesel
árg. 2011, ekinn 136 þús., beinskiptur
Tilboð 2.890.000 kr.
við gamla aðalhliðið á Ásbrú Sími 421 5444
Vantar þig sendibíl? sendibillinn.is
Dacia Duster
árg. 2018, ekinn 138 þús., 6 gírar
Tilboð 1.840.000 kr.
Bílaútsöludagar alla daga á Bílaútsölunni
Tilboðsvika á 4x4 bílum
Gylfi Þór Gylfason,
lögg. bifreiðasali
4.000 atvinnulausir og mikið álag á starfs-
fólki Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum
Lokað inn á starfsstöðina í Reykjanesbæ og þjónusta veitt í gegnum tölvupóst og síma
Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum, segir að það
sem af er september hafa 137 nýjar umsóknir borist um atvinnuleysisbætur til Vinnumála-
stofnunar á Suðurnesjum en nýjar umsóknirnar voru 54 í ágústmánuði. Alls eru skjólstæðingar
Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum um 4.000 talsins. Á landsvísu er gert ráð fyrir að nýjar
umsóknir verði um 3.000 talsins á mánuði fram í nóvember. Gert er ráð fyrir að umsóknum
um bætur á Suðurnesjum haldi áfram að fjölga.
Þar sem atvinnulausum hefur fjölgað hratt
á Suðurnesjum þá hefur álagið á starfsstöð
Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ verið
mikið. Hins vegar hefur aðgengi að skrif-
stofunni verið takmarkað vegna Covid-19, og
til að hafa stjórn á verkefnum, og samskipti
því öll farið fram í gegnum síma eða að fólk
hefur bókað tíma í viðtöl hjá ráðgjöfum. Frá því
í mars hefur aðgengi aðeins verið með hefð-
bundnum hætti í um þrjár vikur.
Hjá Vinnumálastofnun á Suðurnesjum geta
þrír ráðgjafar tekið á móti fólki í viðtöl í einu og
eru hverju viðtali úthlutaðar fimmtán mínútur.
Það er því tímafrekt að ræða við þann stóra
hóp sem nú er án vinnu. Undanfarna daga hafa
allir starfsmenn Vinnumálastofnunar verið í
því verkefni að borga út bætur til þeirra sem
eru án vinnu og á meðan hafa viðtöl ráðgjafa
fallið niður.
Að sögn Hildar hefur þurft að breyta öllu
verklagi á starfsstöðinni í Reykjanesbæ vegna
álagsins. Framundan er að finna úrræði fyrir
allt það fólk sem er á atvinnuleysisskrá á
Suðurnesjum og það verður mikil vinna að
hennar sögn. Hjá Vinnumálastofnun er sérstök
greiðslustofa sem annast útborgun á bótum og
greiðslur í hlutabótaleið sem dæmi. Hjá Vinnu-
málastofnun á Suðurnesjum hefur verið opnuð
önnur lítil greiðslustofa til hliðar við hina, til að
hraða úrvinnslu mála á Suðurnesjum.
Aðgengi að skrifstofunum í Reykjanesbæ
verður áfram lokað en öllum er svarað í
gegnum síma eða tölvupóst. Fólk þarf þó að
sýna biðlund en allir muni fá svör.
„Við verðum því miður að hafa aðgengi að
skrifstofunum okkar lokað áfram um tíma,
því öðruvísi komumst við ekki yfir verkefnið
sem er stórt um þessar mundir,“ segir Hildur.
Hún segir að framundan sé að veita ráðgjöf í
gegnum símatíma. Um leið og regluverki hefur
verið breytt og betri tök náist á ástandinu er
þó gert ráð fyrir að opna að nýju inn á starfs-
stöðina í Reykjanesbæ.
Hildur segir að starfsmenn Vinnumálastofn-
unar séu að upplifa pirring hjá skjólstæðingum
sínum vegna þessa og það sé bæði eðlilegt og
sanngjörn gagnrýni. Hún segir fjölmarga út-
lendinga eiga erfitt með að skilja ástandið og
þeir vilji koma og fá úrlausn mála augliti til aug-
litis og fá að vita að allt sé í lagi.
„Okkur þykir leitt að geta ekki verið með
opið en við erum að reyna að vinna í því að
opna sem fyrst – en á meðan ekki er opið inn
á gólf þá reynum við að efla símaráðgjöf. Þá
erum við að vinna okkur niður úr stafla af
umsóknum en allar starfsstöðvar Vinnumála-
stofnunar eru saman í því máli,“ segir Hildur.
Á tímabili tók upp undir tólf vikur að vinna
úr umsóknum um atvinnuleysisbætur, sá tími er
að styttast en er samt frá fjórum og upp í átta
vikur. Tölvukerfi Vinnumálastofnunar er orðið
þrjátíu ára gamalt og annar ekki lengur verk-
efninu en nú er verið að innleiða nýtt kerfi sem
verður tilbúið öðru hvoru megin við áramót.
– Það eru um 4.000 einstaklingar án at-
vinnu á Suðurnesjum og þið talið um að
koma fólki í úrræði. Hvaða úrræða er aðal-
lega verið að horfa til á Suðurnesjum?
„Það er lítið um störf og á meðan reynum við
að koma á móts við fólk og við höfum verið
að tala við atvinnurekendur um hvað fólk
vill fræðast um eða læra. Sumir vilja fara í
háskólanám og sumir eitthvað annað. Við
erum að reyna að finna hvað samfélagið vill
og bregðast við því með einhverjum hætti.
Eftir áramót getur fólk farið í háskólanám á
fullum atvinnuleysisbótum í heila önn. Það er
þó nokkuð að gera í vinnumiðlun en sveitar-
félögin hafa verið að óska eftir starfsfólki til að
sinna verkefnum sem þau hafa ekki komist í,
sem er vel, og við erum að reyna að fá fleiri til
að taka þátt í þessu. Við erum öll að reyna að
vinna saman hér í samfélaginu og biðjum bara
um biðlund.“
– Hvernig hópur er þetta sem er at-
vinnulaus á Suðurnesjum?
„Þetta er bara allur skalinn. Það er að koma
fólk sem hefur aldrei verið atvinnulaust áður
og er kannski á miðjum aldri. Þetta er alls-
konar fólk og mikið af mjög frambærilegu fólki
og jafnvel fólk sem hefur unnið í mörg ár hjá
sama fyrirtækinu og aldrei orðið atvinnulaust.
Við erum að reyna að skoða hópinn í heild og
sjá hvaða hópur er viðkvæmastur og hvernig
við getum sinnt honum. Við erum að bæta við
ráðgjöfum hjá okkur til að geta komið betur til
móts við fólk. Við erum einnig að auka ráðgjöf
í gegnum samfélagsmiðla, því unga fólkið vill
það, þó svo sumir þurfi að koma og hitta okkur
og hafi gott af því. Í dag erum við að skoða allar
leiðir til að mæta fólkinu okkar og vera sýni-
legri, þrátt fyrir að aðgengi að skrifstofunum
sé lokað,“ segir Hildur Jakobína Gísladóttir,
forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suður-
nesjum, í samtali við Víkurfréttir.
Hildur Jakobína Gísladóttir,
forstöðumaður Vinnumálastofnunar
á Suðurnesjum
vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 5