Víkurfréttir - 09.09.2020, Page 73
„Hjólreiðadeild Grindavíkur var stofnuð árið 2016,“ segir Bjarni. „Þetta
er ekki stór deild, það eru um tuttugu manns sem eru að hjóla hérna í
Grindavík en færri mæta á æfingar. Fjöldinn hefur svolítið staðið í stað
hérna hjá okkur, við höfum ekki getað verið með neitt unglingastarf.
– Eru þið eingöngu að keppa í
götuhjólreiðum?
„Já, við erum bara að æfa götuhjólin
en það eru fáeinir hjá okkur sem eru
eitthvað á fjallahjólum líka.“
– Keppirðu sjálfur?
„Eiginlega ekki, ég tók eitthvað að-
eins þátt í sumar en ég var að keppa
á árunum 1992 til 1996. Þá var ég
á fullu í þessu sjálfur. Þetta er búið
að vera mitt áhugamál síðan ég var
unglingur, það datt aðeins niður á
tímabili en svo kom áhuginn kominn
aftur þegar börnin urðu aðeins eldri.
Ég hef alltaf fylgst með Tour de
France og líka öllu hérna heima, mér
finnst þetta æðislega skemmtileg
sport.“
– Hefurðu orðið var við
áhugavakningu á hjól-
reiðum í þessu Covid-fári?
„Jú, ég hef alveg orðið var við að
fleiri eru farnir að hjóla en þeir
eru meira bara að þessu sjálfir. Við
höfum ekki getað haldið úti þessum
föstum æfingatímum, út af tveggja
metra reglunni og öðru, svo það
hefur ekki orðið nein aukning í
deildinni.“
– Æfið þið líka yfir veturinn?
„Já, við gerum það – en hver gerir
það bara heima hjá sér. Hjólreiða-
deildin hefur enga æfingaaðstöðu
en það stendur vonandi til bóta.
Við erum að reyna að komast inn í
íþróttamiðstöðina og þau mál eru í
skoðun, það er ekkert komið á hreint
og þessi mál eru bara á umræðustigi
ennþá en vonandi gengur það. Þessi
mál eiga til að sofna svolítið yfir
veturna þegar það er ekkert starf í
gangi. Þríþrautadeild Njarðvíkur er
líka í hjólreiðum og það hafa ein-
hverjir frá okkur farið á æfingar þar
yfir vetrartímann. Við höfum tæki-
færi til að æfa með þeim sem er
ágætt, það er fínasta samstarf á milli
félaga í hjólreiðafélögunum – þetta er
svo fámennur hópur.“
– Hvert á fólk að snúa sér ef það
vill byrja að æfa hjólreiðar?
„Það eru þessi tvö félög sem leggja
stund á þetta á Suðurnesjum, hjól-
reiðadeild Grindavíkur og 3N í
Njarðvík. Það er bara að setja sig í
samband við þessi félög, þau taka vel
á móti öllum,“ segir Bjarni.
Samskipamótið
– Nú var mót hjá ykkur um
helgina, þar áttuð þið þrjá
keppendur. Segðu mér, voru
margir þátttakendur í mótinu?
„Það voru fáir núna miðað við
undanfarin ár, það voru 98 skráðir
en til samanburðar voru yfir 200
í fyrra. Það er þetta ástand sem er
búið að vera, það hefur áhrif. Þetta
mót hefði átt að vera haldið í maí en
svo var allt stopp og engin hjólreiða-
keppni fyrr en í júní þannig að þetta
mót lenti í þeirri seinkun. Svo átti
að halda það 8. ágúst en þá fór allt
í baklás aftur eftir verslunarmanna-
helgina, á endanum var mótið haldið
um síðustu helgi og þá fengum við
alveg frábært veður. Við nutum að-
stoðar sunddeildarinnar við umferð-
argæslu hérna í Grindavík, styrkjum
þau með því móti, svo eru tvö önnur
félög sem eru með okkur í mótinu.“
– Sonur þinn, Jóhann Dagur
sem varð Íslandsmeistari í
sínum flokki fyrr í sumar, hann
virðist vera mjög efnilegur.
„Já, hann er það. Hann byrjaði nú
ekki í hjólreiðum fyrr en eftir að
deildin var stofnuð svo hann er
ágætlega efnilegur. Núna er hann
kominn með þjálfara sem rekur
hann áfram – það þýðir ekkert fyrir
mig að segja honum til. Þjálfarinn
er reyndar í Reykjavík en þeir æfa
saman í gegnum forrit þar sem hann
fær upplýsingar um hvað hann eigi
að gera.
Hann ætlaði á Evrópumótið í ár
en Hjólreiðasambandið og lands-
liðsnefndin ákvað að senda engan
á EM þetta árið út af ástandinu, þá
horfðum við til þátttökur í HM en
það var fært og á endanum ákveðið
að vera bara með fullorðna kepp-
endur.
Það eru því miður allt of fáir á
þessum aldri í hjólreiðum hérna á
Íslandi. Ég held að ef þeir ætla að ná
einhverjum árangri þurfa þeir að fara
út að keppa og æfa – eins og í flestum
íþróttum. Bestu körfuboltamennirnir
okkar fara í nám erlendis, skipta um
umhverfi.“
Bjarni Már Svavarsson er einn stofnenda hjólreiðadeildar
Grindavíkur, hann er formaður Ungmennafélags Grindavíkur
og situr í stjórn hjólreiðadeildarinnar, hann er jafnframt formaður
Hjólreiðasambandins. Víkurfréttir ræddu við Bjarna um stöðu
hjólreiða í Grindavík.
Bjarni Már hefur haft hjólreiðar að
áhugamáli frá því hann var unglingur.
Hjólreiðar í Grindavík
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 41
Ljósmyndir: Hörður Ragnarsson.