Læknablaðið - jan. 2021, Síða 45
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 45
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 3 6 . P I S T I L L
Notkun lyfja í flestum lyfjaflokkum er
áþekk meðal Norðurlandaþjóðanna ef frá
er talin notkun tauga- og geðlyfja sem hef-
ur lengi verið hæst á Íslandi.1 Munurinn
skýrist að einhverju leyti af því að fleiri
einstaklingar fá ávísað tauga- og geðlyf-
jum á Íslandi (mynd 1). Árið 2019 fengu
36% Íslendinga ávísað einu eða fleiri lyfj-
um úr flokki tauga- og geðlyfja en 27-29%
einstaklinga fengu ávísað á hinum Norð-
urlöndunum. Frá árinu 2017 hefur heldur
dregið úr fjölda notenda á Íslandi en ef
hlutfallslega jafn margir notuðu lyfin hér
á landi og í Danmörku hefðu 26.000 færri
Íslendingar fengið lyfin árið 2019. Notkun-
in er mjög áþekk á hinum Norðurlöndun-
um og hefur lítið breyst undanfarin ár.
Munurinn á fjölda einstaklinga í
löndunum er mismunandi á milli undir-
flokka tauga- og geðlyfja (sjá mynd 2) en
athygli vekur að Danmörk er með hlut-
fallslega fæsta notendur í öllum flokkum
en Danir eru næst hæstir í heildarhlutfalli
einstaklinga sem fá tauga- og geðlyf. Þetta
bendir til þess að fjöllyfjanotkun tauga-
og geðlyfja sé mismikil innan landanna,
sem gæti verið rannsóknarefni. Áberandi
flestir notendur örvandi lyfja eru á Íslandi
en nærri þrefalt fleiri fá lyfin hér á landi
miðað við fjölda notenda hjá næstu þjóð.
Frá árinu 2017 hefur notkun sumra
tauga- og geðlyfja á Íslandi heldur
minnkað en það er þó enn langt frá því
að notkunin verði sambærileg og meðal
annarra Norðurlandaþjóða. Mörg tauga-
og geðlyf teljast ávanabindandi og er vitað
að einhver hópur einstaklinga notar lyfin
óhóflega; í of miklu magni og/eða of lengi.
Þegar einstaklingar byrja notkun ávana-
bindandi lyfja er alltaf einhver hætta á að
þeir ánetjist lyfjunum. Afleiðingar óhóf-
legrar notkunar birtast á margvíslegan
hátt og geta bæði skert lífsgæði tímabund-
ið en einnig valdið varanlegum skaða.
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar sýna
að á Íslandi eru fleiri sem deyja vegna
eitrana en á hinum Norðurlöndunum og
Tauga- og geðlyfjanotkun á
Norðurlöndum
Alma Dagbjört Möller landlæknir
Ólafur B. Einarsson verkefnastjóri
að lyf eru ráðandi orsök andláta vegna
eitrunar á Íslandi.2 Aðrar afleiðingar óhóf-
legrar notkunar lyfja eru ótaldar en það er
líklega til mikils að vinna, bæði heilsufars-
lega og fjárhagslega, að draga enn frekar
úr ávísunum tauga- og geðlyfjanotkun á
Íslandi. Embætti landlæknis veit að lækn-
ar halda vöku sinni er kemur að ávísunum
ávanabindandi lyfja og hvetur þá til að
vera sérstaklega á verði gagnvart lyfjum
sem leitt geta til eitrunar og hefur emb-
ættið áður vakið athygli á hættulegum
lyfjablöndum.3
Heimildir
1. Nordic Welfare dataBASE - knowledge and numbers on
Health and Social Protection in Nordic Countries. nowba-
se.org - desember 2020.
2. Simonsen KW, Kriikku P, Thelander G, et al. Fatal poi-
soning in drug addicts in the Nordic countries in 2017.
Forensic Sci Int 2020; 313: 110343.
3. Jóhannsson M, Aradóttir AB, Guðmundsson LS, et al.
Hættulegar lyfjablöndur. Frá Embætti landlæknis 15.
pistill. Læknablaðið 2016; 102: 461.
Mynd 1. Hlutfall einstaklinga sem fá ávísað tauga- og geðlyfjum á Norðurlöndum 2014-2019.
Mynd 2. Fjöldi notenda helstu tauga- og geðlyfja á Norðurlöndum árið 2019.