Læknablaðið - jan. 2021, Síða 48
48 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
Dögg Pálsdóttir
lögfræðingur Læknafélags Íslands
dogg@lis.is„Helgunin“
L Ö G F R Æ Ð I 3 9 . P I S T I L L
Í kjarasamningi fjármála- og efnahagsráð-
herra og Læknafélags Íslands (LÍ) hefur
lengi verið ákvæði um það að heilbrigðis-
stofnun megi greiða lækni sérstakt álag á
laun ef hann vinnur eingöngu á viðkom-
andi stofnun. Þetta ákvæði er í grein 3.2.4 í
kjarasamningi aðila sem rann út 28. febrú-
ar 2019 og er svohljóðandi:
Sérstakt álag, 15%, greiðist til sérfræðilækna og
yfirlækna sem sinna í starfi sínu verkefnum sem
krefjast þess að þeir vinni eingöngu á viðkom-
andi stofnun. Álag þetta reiknast af launaflokki
og þrepi viðkomandi.
Lengi hafa verið skiptar skoðanir meðal
lækna um þetta ákvæði. Því er haldið fram
að ákvæðið sé brot á lögum um starfs-
menn í hlutastörfum nr. 10/2004. Einnig
hefur verið bent á að það sé í andstöðu
við jafnlaunaákvæði laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008
(jafnréttislög).
Í lögum um starfsmenn í hlutastörfum
segir í 1. mgr. 4. gr.:
Starfsmenn í hlutastörfum skulu ekki njóta hlut-
fallslega lakari kjara eða sæta lakari meðferð en
sambærilegir starfsmenn í fullu starfi af þeirri
ástæðu einni að þeir eru ekki í fullu starfi, nema
slíkt sé réttlætanlegt á grundvelli hlutlægra
ástæðna.
Með lögunum var innleidd í íslenskan rétt
tilskipun ráðsins 97/81/EB frá 15. desember
1997, um rammasamning um hlutastörf
sem ýmis evrópsk sambönd gerðu. Megin-
sjónarmið þessa rammasamnings er að
hlutavinnufólk sæti ekki lakari meðhöndl-
un en þeir sem eru í fullu starfi nema
mismunun verði réttlætt á grundvelli hlut-
lægra ástæðna.1
Í jafnréttislögum segir í 1. mgr. 19. gr.:
Konum og körlum er starfa hjá sama atvinnurek-
anda skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu
kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Hér er jafnlaunaregla lögfest og hana ber
að skýra í samræmi við ákvæði EES-samn-
ingsins og gerðir sem hafa verið felldar
undir hann. Í tilskipun um launajafnrétti,
nr. 75/117/ EBE, er talað um jafnverðmæt
(of equal value) störf. Margir dómar Evrópu-
dómstólsins hafa slegið því föstu að ólík
störf geti verið jafnverðmæt. Hvort störf
eru jafnverðmæt verður að byggjast á
heildstæðu mati. Þeir sem vísa til þessa
ákvæðis telja að helgunarákvæðið feli í sér
að greitt sé með mismunandi hætti fyrir
jafnverðmæt störf.2
Það hefur verið afstaða LÍ að helgunar-
ákvæðið byggist á hlutlægum ástæðum og
að framkvæmd þess sé hin sama hjá kven-
og karllæknum. Það brjóti því hvorki gegn
lögum um starfsmenn í hlutastörfum né
jafnréttislögum. LÍ hefur þó lengi reynt,
árangurslaust, að semja um rýmkun þess
og bregðast þannig við gagnrýni lækna á
ákvæðið.
Því má mögulega halda fram að í fram-
kvæmd helgunarákvæðisins felist brot á
jafnræðisreglu. Læknar sem starfa á eigin
starfsstofum eru eini hópur lækna sem
aldrei fær greitt helgunarálag. Ýmsir hópar
lækna sinna störfum utan heilbrigðisstofn-
unar þeirrar sem þeir starfa aðallega á og
fullnægja því ekki skilyrði ákvæðisins
að vinna eingöngu á viðkomandi stofnun, en
njóta samt helgunarálagsins.
Læknar sem starfa hjá heilbrigðisstofn-
unum sem ríkið rekur eru opinberir starfs-
menn. Um þá gilda því lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996
(starfsmannalög). Í 1. mgr. 20. gr. laganna
segir:
Áður en starfsmaður hyggst, samhliða starfi
sínu, taka við launuðu starfi í þjónustu
annars aðila, ganga í stjórn atvinnufyrirtækis
eða stofna til atvinnurekstrar ber honum að
skýra því stjórnvaldi, er veitti starfið, frá því.
Innan tveggja vikna skal starfsmanni skýrt
frá því ef áðurnefnd starfsemi telst ósamrým-
anleg starfi hans og honum bannað að hafa
hana með höndum. Bera má slíkt bann undir
hlutaðeigandi ráðherra.
Sambærilegt ákvæði var í eldri starfs-
mannalögum frá 1954 en gildandi ákvæði
er þrengra. Í því felst að skylt er að leita
samþykkis veitingarvaldshafa fyrir auka-
starfi, sama í hvers þágu það er unnið.
Ákvæðið nær þó eingöngu til launaðra
aukastarfa, ekki venjulegra félagssstarfa,
starfa sjálfboðaliða eða nefndarstarfa. For-
stöðumanni beri við ákvörðun varðandi
erindi af þessu tagi að gæta reglna stjórn-
sýsluréttarins, meðal annars meðalhófs-
reglunnar.3
Mögulega má halda því fram að tilvist
helgunarákvæðis í kjarasamningi sé í eðli
sínu brot á meðalhófsreglunni. Auk þess
sviptir ákvæðið lækna þeim rétti að leita
þeirrar málsmeðferðar sem 20. gr. starfs-
mannalaganna gerir ráð fyrir í tilvikum
sem þessum.
Í nýgerðum kjarasamningi sem undir-
ritaður var 7. desember síðastliðinn, er í
bókun 5 gert ráð fyrir að samningsaðilar
skipi vinnuhóp til að meta framkvæmd
helgunarákvæðisins hjá heilbrigðisstofn-
unum. Hópinn skal skipa eigi síðar en 1.
febrúar 2021 og á hann að ljúka störfum
fyrir 1. október 2021. Í þeirri vinnu verða
framangreind álitaefni væntanlega vand-
lega skoðuð.
Heimildir
1. Frumvarp til laga um starfsmenn í hlutastörfum, 411. mál
á 130. löggjafarþingi, sjá athugasemdir við frumvarpið.
althingi.is/altext/130/s/0559.html - desember 2020.
2. Frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla, 142. mál á 135. löggjafarþingi, sjá athugasemdir við
19. gr. althingi.is/altext/135/s/0149.html - desember 2020.
3. Frumvarp til laga um réttindi og skyldur starfsmanna rík-
isins, 372. mál á 120. löggjafarþingi, sjá athugasemdir við
19. gr. althingi.is/altext/120/s/0650.html - desember 2020.