Læknablaðið - Jan 2021, Page 54
54 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
Erfitt að byrja. Hvað poppar fyrst upp í
hugann? Covid eða Trump? Trump eða
Covid? Plágan hefur vinninginn.
Af einhverjum ástæðum komu eftirfar-
andi hugartengsl upp. Listaverk Magnúsar
Tómassonar af Óþekkta embættismann-
inum. Hann stendur á tjarnarbakkanum
við Iðnó, grár, andlitslaus, með skjalatösku
í hendi. Enginn þekkir hann, enginn
þakkar honum. Afhjúpaður á nýjum stað
2012, af engum öðrum en Jóni Gnarr.
Hugartengslin við styttuna eru
myndir af óteljandi og oftast ósýni-
lega heilbrigðisstarfsfólki, innan og
utan stofnana, sem er að takast á við
Covid-19, dag og nótt. Fæst þeirra
fá sín „fifteen minutes of fame“;
vinnandi undir ofurálagi, í smit-
hættu og mjög svo streitufylltum að-
stæðum. Þeim verða líklega ekki reist
formleg minnismerki. Þjóðin stendur
í mikilli þakkarskuld við þau.
Í nýútkominni bók sinni Spænska
veikin lýsir Gunnar Þór Bjarnason
plágunni sem skall á haustið 1918.
Fróðleg og skemmtileg lesning um
hræðilega atburði. Plágan kom að
óvörum, snörp og mannskæð. Höggið
var mest á Suðvesturhorninu. Alls
létust af völdum veikinnar um 440
manns, það er 482/100.000. Þegar þetta
er skrifað er dánartalan af völdum Covid
7,5/100.000. Í Reykjavík voru tvö sjúkrahús,
Landakot og Franski spítalinn, alls með 80
rúmum. Innan við 20 læknar voru starf-
andi í höfuðborginni, ekki allir í klíník.
Íslenskir hjúkrunarfræðingar voru stétt
í fæðingu, um 10 á svæðinu, Til viðbótar
voru nokkrar erlendar, og svo 16 „systur“
á Landakoti, belgískar nunnur með þjálfun
í hjúkrun. Ekki má gleyma ljósmæðrum
og yfirsetukonum. Þeim til aðstoðar sendu
yfirvöld ákall til almennra borgara um að
koma til hjálpar. Samstaðan var ótrúleg.
Álaginu á lækna er best lýst af Þórði
Thoroddsen lækni, sem var orðinn 62 ára
þegar hér var komið sögu. Í dagbók sinni
skráir hann frá 28. október til 6. desember
1232 sjúklinga og sleppir þá „léttum til-
fellum“. Af þeim létust 77, flestir í heima-
húsi. Ekki nein furða að góðvinur Þórðar
hafi skrifað seinna, að aldrei hafi hann
„séð þennan þrekmikla fjörmann eins út-
slitinn og útþvældan eins og eftir spönsku
veikina 1918“.
Hugtakið starfskulnun var ekki til á
þessum tíma. Hvað er það í starfsumhverfi
okkar, eftir 100 ára framfarir, sem skapar
króníska streitu, starfskulnun, jafnvel ör-
mögnun? Meiri kröfur, meiri hraði, meira
áreiti úr öllum áttum eru meðal orsaka-
valda, yfirþyrming af kröfum sem fylgja
tölvuvæðingu, síaukinni skriffinnsku,
snjallsímum og samfélagsmiðlum. Óvarin
fyrir áreiti 24/7. Köllun okkar í læknisstarfi,
drifkrafturinn, víkur, allt hitt hefur tekið
yfir.
Albert Camus lýsir í bók sinni, La
Peste (1947), plágu í borginni Oran í Alsír.
Kjarninn í boðskap höfundar er að mann-
eskjan býr við stöðuga plágu innra með
sér; vitneskjuna um hið endanlega, dauð-
ann. Trúarbrögð afskrifar hann, fáránleik-
inn einkennir líf mannsins. Við neyðumst
til að lifa hvern dag undir yfirþyrmandi
tómlæti himinsins. Plágan er myndlíking
á stöðu mannsins þar sem æðri tilgangur
er ekki til. Það stendur því upp á hvert og
eitt okkar að skilgreina tilgang í gegnum
köllun, vinnu, vinskap og ástir. Okkar
er að endurskoða markmið vinnunnar,
nálgast aftur upphaflega tilganginn, að
lækna og líkna. Ef ekki, mun vélmenni
með IQ upp á 10.000 taka af okkur
ómakið, á sinn vélræna hátt.
Að lokum, veruleikafirrtur Trump.
Vísa í því samhengi á tragískan endi
Lés konungs í samnefndu leikriti
Shakespeares. Blindur, hafandi misst
völdin í hendur elstu dóttur sinnar,
í örvæntingu og ofsareiði, ásakandi
vini og samherja, svikinn af öllum.
Það er ekki Shakespeare-líkur stíll yfir
Trump. Reiðikast hans minnir á þriggja
ára barn sem liggur öskrandi í gólfinu
heimtandi að fá vilja sínum framgengt,
laga raunveruleikann að frekju sinni.
Trump hefur tekist með lygum, sjúk-
legri sjálfhverfni, brengluðu gildismati
og markvissu einelti, að fá vænan hluta
bandarísku þjóðarinnar í lið sitt. Það
sem verra er, honum hefur tekist að
kúga þinglið repúblikana og ráðamenn
flokksins á landsvísu til að halda á lofti
lygum hans og blekkingum. Trump-
-plágan hefur breiðst út í flesta afkima
samfélagsins, og hefur því miður fest
rætur víðar í okkar heimshluta. Ekki þó
hér á Fróni, að neinu marki, ennþá.
Nýársósk mín er að þessar plágur
hverfi úr daglegu lífi okkar sem fyrst.
Óska ykkur öllum árs og friðar.
L I P R I R P E N N A R
Plágurnar
Högni Óskarsson
geðlæknir
hogni@humus.is